Ingrid skrifaði:
Liebes Drops Team, bei der Musterzeichnugn muss ein Fehler unterlaufen sein. Der Musterbeginn laut Zeichnung (4. Reihe) ist eine Linksreihe. Wie beginnt das Muster ? Um baldige Antwort wird gebeten, das ich dies stricken möchte.
11.04.2021 - 14:25DROPS Design svaraði:
Liebe Ingrid, danke für den Hinweis, das Diagram wurde korrigiert. Viel Spaß beim stricken!
13.04.2021 - 11:45
Eva skrifaði:
Funfair vest
19.01.2021 - 08:16
Summer Land Jacket#summerlandjacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað með gatamynstri, v-hálsmáli og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 223-20 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið síðan umferð 2. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 215 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 17,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 17. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur eins og áður (prjónamerkið situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (v-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu: Fækkið lykkjum á hægra framstykki þannig (= á eftir kantlykkjum að framan): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður = 1 lykkja færri. Fækkið lykkjum á vinstra framstykki þannig (= á undan kantlykkjum að framan): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni eins og áður = 1 lykkja færri. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 6, 11, 16, 21 og 27 cm M: 6, 11, 17, 22 og 28 cm L: 6, 12, 18, 24 og 30 cm XL: 6, 12, 18, 24 og 31 cm XXL: 6, 12, 18, 25 og 32 cm XXXL: 6, 12, 19, 26 og 33 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka, neðan frá og upp, á hringprjóna frá miðju að framan, upp að handveg. Hér skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 215-239-263-287-311-335 lykkjur á hringprjón 4 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 5 lykkjur PERLUPRJÓN (= kantur að framan) – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 204-228-252-276-300-324 lykkjur (= 17-19-21-23-25-27 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið 1. lykkjuna í A.1 (þannig að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið), endið með 5 lykkjur perluprjón (= kantur að framan). Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið þannig: 5 kantlykkjur að framan í perluprjón, A.2 yfir næstu 204-228-252-276-300-324 lykkjur, JAFNFRAMT sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, endið með 1. lykkju í A.2 og 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni = 227-251-275-299-323-347 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar með A.2 á breiddina. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað þannig: 5 kantlykkjur að framan í perluprjón, A.3 yfir næstu 216-240-264-288-312-336 lykkjur (= 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar með 12 lykkjum) endið með 1. lykkju í A.3 og 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 55-61-67-73-79-85 lykkjurnar, fellið af næstu 8 lykkjur, prjónið næstu 101-113-125-137-149-161 lykkjur, fellið af næstu 8 lykkjur og prjónið síðustu 55-61-67-73-79-85 lykkjur í umferð. Héðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 55-61-67-73-79-85 lykkjur. Haldið áfram með 5 lykkjur perluprjón í kanti að framan og A.3 eins og áður. Fellið af fyrir handveg, fellið af í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: 3 lykkjur 1-1-2-2-3-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-5-5-7 sinnum og 1 lykkja 1-3-3-4-6-7 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-29-30-32-33-34 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Fækkið um 1 lykkju á eftir 5 kantlykkjum að framan, fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 21-22-23-24-25-26 sinnum – sjá ÚRTAKA. Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handveg eru 28-29-29-29-29-29 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). VINSTRA FRAMSTYKKI: = 55-61-67-73-79-85 lykkjur. Haldið áfram með 5 lykkjur perluprjón í kanti að framan og A.3 eins og áður. Fellið af fyrir handveg, fellið af í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur 1-1-2-2-3-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-5-5-7 sinnum og 1 lykkja 1-3-3-4-6-7 sinnum = 49-51-52-53-54-55 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-29-30-32-33-34 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Fækkið um 1 lykkju á undan 5 kantlykkjum að framan, fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 21-22-23-24-25-26 sinnum – sjá ÚRTAKA. Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handveg eru 28-29-29-29-29-29 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). BAKSTYKKI: = 101-113-125-137-149-161 lykkjur. Haldið áfram með A.3 eins og áður. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, fellið af í byrjun á hverri umferð frá réttu og frá röngu þannig: 3 lykkjur 1-1-2-2-3-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-5-5-7 sinnum og 1 lykkja 1-3-3-4-6-7 sinnum = 89-93-95-97-99-101 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm. Prjónið perluprjón yfir miðju 43-45-47-49-51-53 lykkjur, aðrar lykkjur halda áfram í mynstri eins og áður. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, fellið af miðju 33-35-37-39-41-43 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 28-29-29-29-29-29 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 84-84-84-96-108-108 lykkjur á sokkaprjón 4 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 7-7-7-8-9-9 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Nú er prjónað eftir A.2, þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað eftir A.3 til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-6-5-5-5 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Aukið út með 4-2-1-1-2-1 cm millibili alls 2-5-8-7-4-7 sinnum – sjá ÚTAUKNING-2 = 88-94-100-110-116-122 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-16-15-15-15-13 cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi (= 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Stykkið er nú prjónað til loka fram og til baka á hringprjón. Haldið áfram með A.3 og fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið, í byrjun á hverri umferð frá réttu og röngu þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum, 1 lykkja 8-10-12-10-11-16 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 26-26-27-27-28-28 cm, fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið af 4 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 27-27-28-28-29-29 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerlandjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.