DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Land

Prjónuð peysa úr DROPS Baby Merino. Stykkið er prjónað með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 223-19
DROPS Design: Mynstur bm-084
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 01, hvítur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4: fyrir A.4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir A.1.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3: fyrir sléttprjón og mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir sléttprjón og mynstur.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið síðan umferð 2.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 204 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 17.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 17. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur eins og áður (prjónamerkið situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í hring á hringprjón, neðan frá og upp, að handveg. Hér skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 204-228-252-276-300-324 lykkjur á hringprjón 4 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 yfir allar lykkjur (= 17-19-21-23-25-27 mynstureiningar með 12 lykkjum). Prjónið A.1 1 sinni á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið síðan eftir A.2 yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – sjá ÚTAUKNING = 216-240-264-288-312-336 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar eftir A.2 á breiddina. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað eftir A.3 yfir allar lykkjur (= 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið áfram með þetta mynstur.

Prjónið þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 4 lykkjur í umferð, prjónið næstu 100-112-124-136-148-160 lykkjur, fellið af næstu 8 lykkjur, prjónið næstu 100-112-124-136-148-160 lykkjur og fellið af síðustu 4 lykkjurnar. Héðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 100-112-124-136-148-160 lykkjur. Haldið áfram með A.3 eins og áður. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, fellið af í byrjun á hverri umferð frá réttu og frá röngu þannig: 3 lykkjur 1-1-2-2-3-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-5-5-7 sinnum og 1 lykkja 1-3-3-4-6-7 sinnum = 88-92-94-96-98-100 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm. Prjónið PERLUPRJÓN yfir miðju 48-52-54-56-58-60 lykkjur, aðrar lykkjur halda áfram í mynstri eins og áður - sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, fellið af miðju 38-42-44-46-48-50 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 25-25-25-25-25-25 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg).

FRAMSTYKKI:
= 100-112-124-136-148-160 lykkjur. Haldið áfram með A.3 eins og áður. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, fellið af í byrjun á hverri umferð frá réttu og frá röngu: 3 lykkjur 1-1-2-2-3-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-5-5-7 sinnum og 1 lykkja 1-3-3-4-6-7 sinnum = 88-92-94-96-98-100 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm. Prjónið perluprjón yfir miðju 48-52-54-56-58-60 lykkjur, aðrar lykkjur halda áfram í mynstri eins og áður. Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, fellið af miðju 38-42-44-46-48-50 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 25-25-25-25-25-25 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg).

ERMI:
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 84-84-84-96-108-108 lykkjur á sokkaprjón 4 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 7-7-7-8-9-9 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Nú er prjónað eftir A.2, þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað eftir A.3 til loka.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-6-5-5-5 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Aukið út með 4-2-1-1-2-1 cm millibili alls 2-5-8-7-4-7 sinnum – sjá ÚTAUKNING-2 = 88-94-100-110-116-122 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-16-15-15-15-13 cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi (= 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Stykkið er nú prjónað til loka fram og til baka á hringprjón. Haldið áfram með A.3 og fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið, í byrjun á hverri umferð frá réttu og röngu þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum, 1 lykkja 8-10-12-10-11-16 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 26-26-27-27-28-28 cm, fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið af 4 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 27-27-28-28-29-29 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.08.2021
Útskýring fyrir PERLUPRJÓN hefur verið bætt við + ERMAR:.. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 7-7-7-8-9-9 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina...

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Eipie wrote:

Thank you so much for your answer! Lovely pattern!

27.03.2024 - 15:58

country flag Eipie wrote:

Just wondering about the neck edge. Moss stitch is worked over the middle stitches for approximately 1 cm before casting them off and the shoulders worked separate for 25 stitches for another 2 to 4 cm for the small size. Are a few stitches on the neck edge for those shoulder pieces worked in moss stitch also? It would otherwise appear as a raw edge and might not look nice. Please advise. Thank you.

27.03.2024 - 05:34

DROPS Design answered:

Dear Elsie, the pattern tells you to knit moss stitch on the middle 48-52-54-56-58-60 stitches, then a few rowes later you cast off the middle 42-44-46-48-50-52 stitches. You now have 3-4-4-4-4 stitches with moss stitch on eash side of the neck. Then the pattern tells you to "continue the remaining stitches in pattern as before", which means the stocking stitches with stocking stitches, moss stitch as moss stitches. I hope this helps. Happy Knitting.

27.03.2024 - 10:15

country flag Elizabeth wrote:

Is the gauge for the smaller needle? Since that is the size for the most fitted part of the sweater, that is my guess.

26.02.2024 - 19:46

DROPS Design answered:

Dear Elizabeth, yes, the gauge is calculated with the 3mm needles. Happy knitting!

26.02.2024 - 21:11

country flag Susi wrote:

Lässt sich diese Strickschrift am Saumende auch bei einer Strickanleitung von oben nach unten lesen und verwenden?

15.02.2023 - 11:21

DROPS Design answered:

Liebe Susi, vielleicht schon, am besten stricken Sie eine Maschenprobe mit diesem Muster von oben nach unten so können Sie mal schauen, ob es Ihnen so gefällt. Viel Spaß beim stricken!

15.02.2023 - 15:00

country flag Ann-Mari Hansen wrote:

Hvordan gør jeg når jeg vil ha langt ærme , skal jeg evt starte med 5-6 border?

02.02.2022 - 15:07

country flag Anni Walther Nielsen wrote:

Jeg kan ikke finde opskrift på halsafslutningen, er det med vilje?

14.08.2021 - 13:52

DROPS Design answered:

Hei Anni. Jo, det står under BAGSTYKKE: ....Når arbejdet måler 44-46-48-50-52-54 cm, lukkes de midterste 38-42-44-46-48-50 masker af til hals, og hver skulder strikkes færdig for sig. Under FORSTYKKE står det: ...Når arbejdet måler 42-44-46-48-50-52 cm, lukkes de midterste 38-42-44-46-48-50 masker af til hals, og hver skulder strikkes færdig for sig. mvh DROPS design

16.08.2021 - 14:38

country flag Anna wrote:

Dopo aver intrecciato le maglie dello scollo devo continuare a lavorare a grana di riso le 5 maglie adiacenti? Grazie in anticipo per la risposta:-)

12.05.2021 - 10:10

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, deve continuare a lavorare le altre maglie come prima, se non diversamente indicato. Buon lavoro!

14.05.2021 - 18:02

country flag Anna wrote:

Salve, grazie per i bellissimi modelli di questa estate, vorrei chiedere: dopo le diminuzioni dello scollo bisogna continuare a lavorare le rimanenti maglie laterali adiacenti allo scollo sempre a grana di riso?

12.05.2021 - 10:06

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, deve continuare a lavorare le altre maglie come prima, se non diversamente indicato. Buon lavoro!

14.05.2021 - 18:02

country flag Elisabetta Guareschi wrote:

Vorrei farlo con un filato in cotone puoi darmi un suggerimento? anche sulla quantita'. Grazie

22.04.2021 - 09:13

DROPS Design answered:

Buonasera Elisabetta, potrebbe utilizzare Safran. Buon lavoro!

24.04.2021 - 21:58

country flag Tone K Johansen wrote:

I oppskriften står det at en skal begynne arbeidet med å legge opp på pinne nr 4 og strikke mønster A1. Deretter skal en bytte til pinne nr 3. Er det riktig ?? Videre i mønsteret står det at når en begynner på armen skal en legge opp masker på pinne nr 3, strikke mønster A4 og bytte til pinne nr 3..... Her må det være noe feil. .....

10.04.2021 - 16:54

DROPS Design answered:

Hei Tone. Det er riktig det som står i oppskriften. Man starter nede med pinne 4 slik at ikke hullmønstret skal trekke seg sammen (heller være videre nederst). mvh DROPS design

26.04.2021 - 12:47