Ditte skrifaði:
Er der en særlig grund til, man skal strikke 4 m r sammen og slå om to gange, når der tages ind i siderne? Giver det ikke det samme resultat som at strikke to masker sammen før og efter markøren?
20.03.2022 - 15:09DROPS Design svaraði:
Hej Ditte, jeg kan ikke finde hvor du er i opskriften. Du tager ud i siderne ved at lave omslag på hver side af 4 masker ret :)
22.03.2022 - 13:16
Suzan skrifaði:
Na de verdeling voor- en achterpand blijven er 128 steken over voor elk pand. Maar aan het begin van het voorpand staat 130 steken. Wat zie ik over het hoofd? (Maat XL)
15.01.2022 - 20:24DROPS Design svaraði:
Dag Suzan,
Dit moet inderdaad 128 zijn en niet 130. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling om aan te passen. Hopelijk kun je nu verder.
16.01.2022 - 14:10
DECOTTIGNIES BRIGITTE skrifaði:
COMBIEN DE PELOTES DE LAINE POUR CE MODELE ?
19.05.2021 - 14:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Decottignies, vous trouverez toujours la quantité indiquée au poids pour chaque taille dans l'en-tête, autrement dit, il faut ici en taille S par exemple 300 g DROPS Baby Alpaca Silk/50 g la pelote = 6 pelotes. Utilisez notre convertisseur si vous souhaitez voir la quantité dans une autre alternative. Bon tricot!
19.05.2021 - 15:54
Gerdine skrifaði:
Wanneer komt het patroon uit? Zit er met smart op te wachten.
18.03.2021 - 22:23
Demerlier Sonja skrifaði:
Graag het patroon
10.03.2021 - 07:48
Annika skrifaði:
Mint Leaf
16.01.2021 - 10:17
Eileen Di Cenzo skrifaði:
Sea Foam
13.01.2021 - 19:27
Cecilie Nissen Jøhnk skrifaði:
Sabrina Summer
11.01.2021 - 11:21
Kathrin skrifaði:
Die Ärmel gefallen mir besonders.
10.01.2021 - 22:49
Merete Bjørn skrifaði:
Green and Bright
10.01.2021 - 22:12
Mint Breeze#mintbreezetop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Baby Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-21 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 232 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 40) = 5,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptist ca 4. og 5. hverja og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg. Síðan eru framstykki og bakstykki prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp þar sem ermakúpan byrjar. Síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Stykkið er saumað saman á öxlum og ermar saumaðar í. Að lokum er prjónaður kantur að framan í stroffprjóni og kantur í hálsi í garðaprjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 232-256-276-304-340-376 lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 40-44-48-52-56-64 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 192-212-228-252-284-312 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 96-106-114-126-142-156 lykkjur (= hliðar). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-4-4-4-5-5 cm millibili alls 5 sinnum á hæðina í hvorri hlið = 212-232-248-272-304-332 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm. Fellið nú af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig – byrjið 3-3-3-4-4-4 lykkjum á undan prjónamerki í byrjun á umferð: Fellið af fyrstu 6-6-6-8-8-8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 100-110-118-128-144-158 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 6-6-6-8-8-8 lykkjur fyrir handveg (prjónamerki situr mitt í þessum lykkjum) og prjónið síðan þær 100-110-118-128-144-158 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= bakstykki). Prjónið bakstykki og framstykki til loka fyrir hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: = 100-110-118-128-144-158 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, fram og til baka á hringprjóna og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 0-0-0-3-3-3 lykkjur 0-0-0-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 2-3-4-4-6-7 sinnum og 1 lykkju 2-3-4-5-5-6 sinnum = 88-92-94-96-98-100 lykkjur eftir. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, fellið af miðju 42-44-46-48-50-52 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 22-23-23-23-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið laus af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 100-110-118-128-144-158 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, fram og til baka á hringprjóna og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 0-0-0-3-3-3 lykkjur 0-0-0-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 2-3-4-4-6-7 sinnum og 1 lykkju 2-3-4-5-5-6 sinnum = 88-92-94-96-98-100 lykkjur eftir. Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, setjið miðju 36-38-40-42-44-46 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 22-23-23-23-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið laus af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 80-88-88-96-96-96 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-1-1-5-5-5 lykkjur jafnt yfir = 81-89-89-101-101-101 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið mynstur þannig: 4-8-8-1-1-1 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 26-26-26-39-39-39 lykkjur (= 2-2-2-3-3-3 mynstureiningar með 13 lykkjum), A.2 (= 4 lykkjur), A.3 (= 13 lykkjur), A.1 yfir næstu 26-26-26-39-39-39 lykkjur (= 2-2-2-3-3-3 mynstureiningar með 13 lykkjum), A.2, 4-8-8-1-1-1 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með þetta mynstur þar til ermin mælist 21-22-21-21-19-18 cm, en endið umferð þegar 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu. Í næstu umferð eru felldar af fyrstu 6-6-6-6-6-6 lykkjur, síðan er mynstrið prjónað eins og áður út umferðina. Prjónið síðan ermakúpuna fram og til baka á hringprjóna þannig: Haldið áfram með A.1, A.2 og A.3 eins og áður og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 1 lykkju 12 sinnum í hvorri hlið = 51-59-59-71-71-71 lykkjur. Haldið áfram með A.1, A.2 og A.3 þar til stykkið mælist 29-30-30-31-31-32 cm. Prjónið allar lykkjur saman 2 og 2, í næstu umferð eru allar lykkjur felldar af. Ermin mælist ca 30-31-31-32-32-33 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 96 til 120 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þráðum að framan) á hringprjóna 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, sjá útskýringu að ofan, fellið síðan af. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mintbreezetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.