Carol skrifaði:
I’m working on these now. It seems like the heel pocket is super deep. Three inches for the heel seems excessive, with over 90 stitches on the needles. I’ve never know a sock like this before with such a king heel. Wondering if I should just rip it out now.
16.05.2024 - 19:08DROPS Design svaraði:
Dear Carol, the heel is worked over 34 sts in first size, 38 sts in last size, heel measures 3⅛"-3½"-4", ie somewhat higher then usual, but that's the way to do to get the same shape as on the picture. Happy knitting!
17.05.2024 - 09:46
Sandra skrifaði:
In het patroon staat 19 steken boordsteek, 34 steken recht, 19 steken boordsteek. Je moet 4 steken minderen over deze 34 steken. Erbij staat tussen haakjes dat minderen het mooiste is in averechtse steken. Klopt het dan wel dat je in die 34 steken moet minderen aangezien die allemaal recht zijn?
18.12.2022 - 16:39DROPS Design svaraði:
Dag Sandra,
Dat wat tussen haakje staat hoort er inderdaad niet bij te staan omdat je inderdaad over de rechte steken mindert. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling.
08.01.2023 - 10:38
Ann Daley skrifaði:
Just completed my first ever pair of socks. It took me a while to get the gusset correct as mine came out upside down at first. Well they are done and are really snuggly and warm
19.11.2022 - 20:34
Elly skrifaði:
It would sure help if one of those very similar photos instead showed the underside of the sock so we could see the formation of the heel on the sole. It might be unusual and worth trying. But sadly, I cannot tell.
15.08.2022 - 20:14
Paola Paola skrifaði:
Questa costruzione sembra molto interessante
09.01.2021 - 08:11
River Rock Socks skrifaði:
The colors of these socks reminded me of tumbled River stones. Beautifu!
08.01.2021 - 04:34
Riverside Reel#riversidereelsocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar úr DROPS Fabel. Stærð 35 - 43.
DROPS 223-39 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 22-26-26 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Sokkarnir eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. SOKKUR: Fitjið upp 64-68-72 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Fabel. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig (byrjun á umferð = mitt að aftan): STÆRÐ: 35/37: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 lykkju brugðið. STÆRÐ: 38/40 og 41/43: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 17-19-19 lykkjur stroff eins og áður, prjónið 30-30-34 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 4 lykkjur jafnt yfir þessar 30-30-34 lykkjur (það er fallegast að fækka lykkjum yfir brugðnar lykkjur), prjónið 17-19-19 lykkjur stroff eins og áður = 60-64-68 lykkjur í umferð. Haldið áfram hringinn með 34-38-38 lykkjur stroff mitt aftan á sokknum og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru framan á sokknum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 7-8-9 cm. Prjónið nú hæl. Þ.e.a.s. haldið eftir fyrstu 17-19-19 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 26-26-30 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir þeim 17-19-19 lykkjum sem eftir eru á prjóni fyrir hæl = 34-38-38 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Fitjið upp 1 nýja lykkju í byrjun og í lok umferðar fyrir kantlykkjur = 36-40-40 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram með stroff fram og til baka yfir hællykkjur með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar 1 umferð er eftir þar til hællinn mælist 8-9-10 cm, fækkið um kantlykkju í hvorri hlið frá röngu = 34-38-38 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – prjónamerkið er notað síðar til að mæla lengd á fæti frá. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 22-26-26 hællykkjur, prjónið upp 22-26-26 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjón eins og áður yfir 2-16-26-30 lykkjur af þræði á fæti og prjónið upp 22-26-26 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl = 92-104-108 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað núna hvoru megin við 26-26-30 lykkjur á fæti þannig: Prjónið síðustu 3 lykkjur á undan lykkjum á fæti slétt saman (= 2 lykkjur færri) og prjónið fyrstu 3 lykkjur á eftir lykkjum ofan á fæti snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 10-12-12 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl – mælt undir fæti frá prjónamerki (nú eru eftir ca 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Takið frá gamla prjónamerkið. Setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið á sokknum, þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Prjónamerkin eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir tá. Fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið við hitt prjónamerkið (= 4 lykkjur færri í umferð). Klippið þráðinn frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #riversidereelsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.