Manitoba Mingle#manitobaminglesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni með röndum. Ermar eru prjónaðar í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 223-32 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR: Litur A: 2 þræðir hveiti Air + 1 þráður ljung Brushed Alpaca Silk. Litur B: 2 þræðir kóralrif Air + 1 þráður Brushed Alpaca Silk. Litur C: 2 þræðir rúbínrauður Air + 1 þráður ljung Brushed Alpaca Silk. LEIÐBEININGAR: Ef þú ert í einhverjum vafa um hvaða lit þú átt að prjóna næst með þegar prjónað er tveggjalita klukkuprjón með uppslætti eins og útskýrt er að neðan, þá getur þú alltaf séð hvaða lit fyrri umferð var prjónuð með á litnum á kantlykkjunni. EINLITT KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað með lit A – sjá útskýringu í kaflanum RENDUR að ofan): 2 umferðir klukkuprjón gefur 1 sýnilega lykkju á hæðina. UMFERÐ 1 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið (stingið inn hægri prjóni í lykkjuna á vinstri prjóni frá hægri til vinstri) * prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið umferð 2 og 3. TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI Í LIT A OG B eða LIT B OG C: 2 umferðir klukkuprjón gefur 1 sýnilega lykkju á hæðina. UMFERÐ 1 (= rétta og prjónað er með lit B): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Færið síðan lykkjurnar til baka á hringprjóninum þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá réttu. Skiptið um lit og lesið LEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2 (= rétta og prjónað er með lit A eða C): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Snúið stykkinu og skiptið um lit. UMFERÐ 3 (= ranga og prjónað er með lit B): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Færið síðan til baka lykkjurnar á hringprjóninum þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá röngu. Skiptið um lit. UMFERÐ 4 (= ranga og prjónað er með lit A eða C): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Snúið stykkinu og skiptið um lit. Endurtakið umferð 1-4. ÚRTAKA (á við um í hliðum á ermum): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum til skiptis í byrjun og í lok umferðar eins og útskýrt er að neðan. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið þessar 2 kantlykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum og prjónað er neðan frá og upp. Allt stykkið er prjónað með 2 þráðum Air + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir frá garnflokki C). Framstykkið og bakstykkið er prjónað í röndum með einum lit og tveggja lita klukkuprjóni með uppslætti. Allur lykkjufjöldinn sem gefinn er upp í uppskrift er talinn án uppsláttar í klukkuprjóni, þar til uppslátturinn er talinn sem 1 lykkja saman með lyftu lykkjunni. Ermar eru prjónaðar í sléttprjóni. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í stroffprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 31-33-35-39-41-45 lykkjur á hringprjón 10 með 2 þráðum hveiti Air + 1 þræði ljung Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Prjónið síðan þannig: Prjónið EINLITT KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 19-20-20-21-22-22 cm, prjónið TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI Í LIT A OG B – sjá útskýringu að ofan og lesið LEIÐBEININGAR! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af 2-2-2-4-4-6 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg (mundu að uppslátturinn er ekki talinn sem eigin lykkja) = 27-29-31-31-33-33 lykkjur eftir. Haldið áfram með tveggja lita klukkuprjón með uppslætti eins og áður og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 38-40-40-42-44-44 cm, prjónið TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI Í LIT B OG C – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fellið af miðju 5-5-7-7-7-7 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 9-10-10-10-11-11 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 31-33-35-39-41-45 lykkjur á hringprjón 10 með 2 þráðum í litnum hveiti Air + 1 þræði í litnum ljung Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Prjónið síðan þannig: Prjónið einlitt klukkuprjón með uppslætti á sama hátt og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 19-20-20-21-22-22 cm, prjónið tveggja lita klukkuprjón með uppslætti í lit A og B á sama hátt og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af 2-2-2-4-4-6 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 27-29-31-31-33-33 lykkjur eftir. Haldið áfram með tveggja lita klukkuprjón með uppslætti eins og áður og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 38-40-40-42-44-44 cm, prjónið tveggja lita klukkuprjón með uppslætti í lit B og C. Þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm, setjið miðju 5-5-7-7-7-7 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 9-10-10-10-11-11 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til 1 lykkja er eftir í umferð þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjurnar. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Framstykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant svo saumurinn verði ekki of þykkur. ERMI: Prjónið upp lykkjur meðfram handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. byrjið upp frá réttu og prjónið upp 38-40-42-44-44-46 lykkjur á hringprjón 10 með 2 þráðum í litnum kóralrif Air + 1 þræði í litnum rauður Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir). Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 3-3-3-7-7-10 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Bilið á milli hæðar fram að prjónamerkjum á að vera jafn langt og botninn á handveg (þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). Þegar stykkið mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá prjónamerki, fækkið um 1 lykkju í byrjun á umferð – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 12-14-14-16-14-16 sinnum, fækkið lykkjum til skiptis í lok og í byrjun umferðar = 26-26-28-28-30-30 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 46-46-45-42-41-39 cm frá prjónamerki. Nú er eftir ca 1 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Ermin mælist ca 50-50-49-50-49-50 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið botninn á handveg – prjónamerkin sem voru sett í ermar eiga að passa við hliðar á framstykki og bakstykki. Saumið saum neðan á ermi og hliðarsauma í eitt – byrjið neðst á ermi og saumið upp að handveg, saumið síðan niður að uppfitjunarkanti á framstykki og bakstykki – saumið í ystu lykkjubogana, svo saumurinn verði flatur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 40 til 48 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á stuttan hringprjón 8 með 2 þráðum í litnum rúbínrauður Air + 1 þræði í litnum ljung Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff hriginn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), en stillið af að stroffið passi fallega yfir lykkjur mitt framan í hálsmáli með slétta lykkju yfir slétta klukkuprjónslykkju og brugðna lykkju yfir brugðna klukkuprjónslykkju. Þegar kantur í hálsi mælist ca 3 til 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #manitobaminglesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.