Hanna skrifaði:
Voisinko saada ohjeen suomeksi neuleliivistä koko 146/152 cm.
24.10.2026 - 19:51DROPS Design svaraði:
Hei, ohjeen otsikon alapuolelta löydät valikon, josta voit valita haluamasi kielen. Tai valitse "Suomi" etusivulla.
26.10.2026 - 18:51
Bonita skrifaði:
This was a waste of my time.Very frustrating pattern hard to follow. It says to cast off middle fourteen stitches.But what do you do with the rest on both sides?I will not finish this pattern.What a waste
29.05.2026 - 21:33DROPS Design svaraði:
See below - should you have more question, please feel free to use that space so that we can help you. Happy knitting!
01.06.2026 - 07:37
Bonita skrifaði:
This was a waste of my time.Very frustrating pattern hard to follow. It says to cast off middle fourteen stitches.But what do you do with the rest on both sides?I will not finish this pattern.What a waste
29.05.2026 - 21:31DROPS Design svaraði:
Dear Bonita, you cast off the middle 14 sts for neck on back piece then finish each shoulder separately casting off 1 stitch at the beg of next row from the neck (from RS on left shoulder/from WS on right shoulder). Then when piece measures 33-36 cm (see size), cast off remaining sts and work 2nd shoulder the same way. Happy knitting!
01.06.2026 - 07:37
Michelle skrifaði:
Avec des torsades il faut mettre10m de plus.Comment faire pour que les épaules soient pareilles??MERCI
21.05.2026 - 18:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Michelle, tout dépend de vos torsades, de leur emplacement, de leur taille, recalculez en fonction de la taille tricotée, des mesures et de votre nombre de mailles en fonction de celui indiqué ici; votre magasin saura vous aider pour toute assistance personnalisée, n'hésitez pas à le contacter, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
22.05.2026 - 07:59
Michelle skrifaði:
Merci de m'avoir répondu rapidement. Je vais faire un échantillon.Bonne journée.Bien créativement
20.05.2026 - 09:46
Michelle skrifaði:
Vous dites,à18cm faire les emmanchures,est ce 18cm de hauteur totale ou à partir du jersey? si je fais 3torsades combien mettre de mailles en plus pour lle devant?Merci de me répondre.Bien créativement
19.05.2026 - 18:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Michelle, les mesures indiquées sont prises à partir du rang de montage (sauf mention contraire). Pour être bien certaine du nombre de mailles à prévoir en plus, réalisez un échantillon des torsades que vous souhaitez et mesurez le pour savoir le nombre de mailles qu'il vous faudra ajouter pour conserver la bonne largeur. Bon tricot!
20.05.2026 - 07:44
Gerda Kuperus skrifaði:
Zou u mij het patroon van deze spencer kunnen sturen, breien met twee naalden i.p.v rondbreinaalden?
17.05.2026 - 16:33DROPS Design svaraði:
Dag Gerda,
Wij kunnen helaas geen patronen opsturen. Al onze patronen zijn gratis af te drukken via het print pictogram rechts boven bij het patroon. Klik op het print pictogram en dan op 'Patroon afdrukken'.
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
18.05.2026 - 20:35
Else Kristin Hilde Krogh skrifaði:
Halskant: Får ikkje antal masker til å stemme med forklaringa; 69 masker rett vrang (68+1). Det vil sei at det blir to rette eller to vrange etter kvarandre. Og så står det at det skal avpassast slik at maska midt foran blir ei rettmaske...?
11.11.2025 - 13:00DROPS Design svaraði:
Hei Else Kristin, Du kan legge opp 68 masker som du sier, for å få vrangbord til å passe på omgangen. Hilsen Drops Team.
12.11.2025 - 06:54
Katinka Ingves skrifaði:
Halskanten, ska jag börja minska på första varvet eller ska jag sticka ett varv utan minskning först? Och efter minskningen, ska jag börja med en rät eller avig? Mvh Katinka
18.05.2025 - 17:17
Bè skrifaði:
Hallo, Kan ik dit werk ook op 2 naalden breien.? ImN affecting op uw antwoord avast bedankt. Grt, Bè.
23.01.2025 - 07:58DROPS Design svaraði:
Dag Bè,
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
23.01.2025 - 20:42
Lavender Smiles#lavendersmilesvest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti / slipover með v-hálsmáli fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með stroffi. Stærð 3-12 ára.
DROPS Baby & Children 38-23 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig og lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli á framstykki. Að lokum er prjónaður stroffkantur í kringum hálsmál og handvegi. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 108-116-124-128-136-144 lykkjur á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið, síðan er prjónað stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-18-21-24-27-30 cm fellið af lykkjur fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 4 lykkjur í umferð, prjónið næstu 46-50-54-56-60-64 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 8 lykkjur, prjónið næstu 46-50-54-56-60-64 lykkjur (= bakstykki) og fellið af síðustu 4 lykkjur í umferð. Látið lykkjur fyrir framstykki hvíla á prjóni eða setjið þær á þráð á meðan bakstykkið er prjónað. BAKSTYKKI: = 46-50-54-56-60-64 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka – JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 1 sinni = 40-44-48-50-54-58 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 31-34-38-42-46-50 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 14-14-16-16-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 12-14-15-16-17-19 lykkjur eftir á hvorri öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-52 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 46-50-54-56-60-64 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðju á stykki þannig að það eru 23-25-27-28-30-32 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (það á að nota prjónamerkið þegar fækka á lykkjum fyrir v-hálsmáli). LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 1 sinni = 40-44-48-50-54-58 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-22-25-29-32-36 cm skiptist stykkið og lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli þannig – frá réttu: Prjónið fram þar til 3 lykkjur eru eftir að prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Það eru 19-21-23-24-26-28 lykkjur í umferð. Setjið 20-22-24-25-27-29 lykkjur sem eftir eru á eftir prjónamerki á þráð án þess að prjóna þessar lykkjur. Héðan eru axlirnar prjónaðar hvor fyrir sig, ekki klippa þráðinn. Vinstri öxl er prjónuð áfram héðan. VINSTRI ÖXL (framstykki): = 19-21-23-24-26-28 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli alveg eins innan við 1 kantlykkju í lok umferðar frá réttu með 1½-1½-1-1-1-1 cm millibili 7-7-8-8-9-9 sinnum til viðbótar (alls 8-8-9-9-10-10 úrtökur, fyrsta úrtakan er gerð þegar framstykkið skiptist) = 12-14-15-16-17-19 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni við hálsmál þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-52 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRI ÖXL (framstykki): Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 20-22-24-25-27-29 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í byrjun á umferð frá réttu með 1½-1½-1-1-1-1 cm millibili (fækkið lykkjum með því að lyfta 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð) alls 8-8-9-9-10-10 sinnum = 12-14-15-16-17-19 lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni við hálsmáli þar til stykkið mælist alls 33-36-40-44-48-52 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HANDVEGI: Notið stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4, byrjið frá réttu neðst í handveg og prjónið upp ca 58-62-66-70-74-78 lykkjur innan við 1 kantlykkju hringinn allan handveginn (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kanturinn mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4, byrjið við axlasauminn frá réttu og prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál ca 67-69-75-77-79-83 lykkjur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1). Prjónið nú stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – stillið af að það komi slétt lykkja mitt framan í v-hálsmáli, JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt að framan: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan sléttu lykkjunni mitt að framan, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Með þessu þá kemur v-hálsmálið til með að leggjast fallega í hálsmáli og slétta lykkjan kemur til með að fylgja með upp úr eins og bein lína mitt að framan. Prjónið stroff svona þar til kantur í hálsmáli mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavendersmilesvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.