Beatriz skrifaði:
Bonjour, il est possible de tricoter cette capuche avec la laine Baby Merino plutôt que la laine Merino extrafine? merci de me guider
06.10.2021 - 15:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Beatriz, pas vraiment car ces 2 laines ne sont pas du même groupe, pour trouver des alternatives à Merino Extra Fine utilisez notre convertisseur. Bon tricot!
07.10.2021 - 08:43
Céline Francoeur skrifaði:
Pourquoi rabattre les 26 mailles et laisser les 2 lisières? ces 26 mailles nous en aurons besoin pour continuer le dos entre les 32 mailles de chaque côté. Je ne comprends pas. la capuche indique de relever 32 mailles ensuite de tricoter en jersey les 26 mailles sur l'aiguille...on vient de les rabattre ?
27.09.2021 - 18:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Francoeur, quand la partie centrale mesure 14 cm, vous rabattez les mailles lisières (vous n'en avez plus besoin), il vous reste donc 26 mailles sur l'aiguille, vous coupez le fil et relevez ensuite les mailles à 1 m lis du bord, vous tricotez les 26 m et relevez les mailles à 1 m lis du bord de l'autre côté. Bon tricot!
28.09.2021 - 07:57
Ivanka Patljak skrifaði:
Da li mogu dobiti opis rada na hrvatskom Hvala
20.04.2021 - 15:12
Maaike skrifaði:
Er staat dat er een ribbelsteek gebreid moet worden, maar ik zie die nergens op de foto’s. Waar heb je die ribbelsteek voor nodig?
13.02.2021 - 12:21
Uncharted Territory#unchartedterritory |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð balaclava / húfa / lambhúshetta fyrir herra úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með kanti í stroffprjóni.
DROPS 219-22 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (á við um í hvorri hlið við miðju að framan): Aukið út innan við ystu 5 lykkjur við miðju að framan. Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 4,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt aftan á húfunni): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 5 lykkjum á undan prjónamerki mitt að aftan, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 6 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LAMBHÚSHETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Miðjueiningin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna frá miðju framan á höfði og aftur. Lykkjur eru prjónaðar upp hvoru megin við miðjueininguna. Síðan er húfan prjónuð fram og til baka á hringprjóna, áður en lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmál mitt að framan. Síðan er afgangur af húfunni prjónaður í hring á hringprjóna að loka máli. Að lokum er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum op að framan. MIÐJUEINING: Fitjið upp 28-30 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-15 cm, fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið = 26-28 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn frá. Prjónið nú húfuna eins og útskýrt er að neðan. HÚFA: Prjónið nú upp lykkjur hvoru megin við miðjueiningu, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið upp 32-33 lykkjur meðfram hlið á miðjueiningu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, haldið áfram í sléttprjóni yfir 26-28 lykkjur á prjóni og prjónið upp 32-33 lykkjur meðfram annarri hlið á miðjueiningu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni = 90-94 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að aftan). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt að aftan. Að auki er sett 1 prjónamerki í byrjun á umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið mitt að framan. Aukið síðan út í hvorri hlið við miðju að framan og fækkið lykkjum mitt að aftan eins og útskýrt er að neðan – lestu kaflann um útaukningu og úrtöku áður en þú prjónar áfram! ÚTAUKNING Í HVORRI HLIÐ VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN: Þegar stykkið mælist 13-15 cm frá prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING-1 (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6 sinnum í hvorri hlið. ÚRTAKA MITT AÐ AFTAN: JAFNFRAMT þegar auka á út í 3. Skipti, er fækkað um 2 lykkjur mitt að aftan – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 4 sinnum (útaukning og úrtaka endar samtímis). Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 94-98 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 20-22 cm frá prjónamerki, á að fitja upp lykkjur fyrir hálsmáli mitt að framan. Mátið e.t.v. húfuna og prjónið að óskaðri lengd áður en nýjar lykkjur eru fitjaðar upp. Fitjið upp 16-18 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 110-116 lykkjur í umferð. Prjónið síðan hálsmál í hring á hringprjóna eins og útskýrt er að neðan. HÁLSMÁL: Prjónið 5 umferðir sléttprjón yfir allar lykkjur. Í næstu umferð er aukið út um 30-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 140-148 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm, aukið út allar 2 lykkjur slétt til 3 lykkjur slétt með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverri sléttri einingu (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, svo ekki myndist gat) = 175-185 lykkjur. Haldið áfram hringinn með 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 11-12 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 39-42 cm frá mitt á miðjueiningu og niður meðfram hlið. KANTUR Í KRINGUM OP AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst í opi að framan, þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir hálsmál og prjónið upp ca 140 til 156 lykkjur í kringum op að framan innan við 1 kantlykkju á stuttan hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #unchartedterritory eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 219-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.