LyseRichard skrifaði:
Comment je repars mon tricot une fois que j’ai coupé le fil après l’ajout des 12 mailles pour faire le bas de la cagoule Je n’ai pas trouvé de vidéo à ce sujet
10.05.2025 - 02:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Richard, glissez les mailles de l'aiguille circulaire de gauche sur celle de droite jusqu'à ce que vous arriviez au milieu du dos, puis joignez le fil et continuez A.1 en rond à partir de là. Bon tricot!
12.05.2025 - 07:37
Fay skrifaði:
På mittpartiet står det När arbetet mäter 13-14 cm och nästa varv stickas från avigsidan, maskas det av 1 kantmaska i varje sida = 22-22 maskor på varvet. Men jag har nu maska av första kantmaskan och fortsatte mönster a.1 på 22 maskor men nu fattar jag inte hur jag ska maska av Endast sista kantmaskan? Om jag maskar av som jag vet så blir ju kantmaskan kvar och i stället försvinner sista maska på mönstret a.1
20.01.2025 - 10:17DROPS Design svaraði:
Hej Fay, kantmasken i den anden side masker du av når du har vendt arbejdet og strikker tilbage :)
22.01.2025 - 14:01
Deborah Laxague skrifaði:
Thanks for this fun pattern. I wish I could read the questions in other languages because maybe this has already been asked. It looks to me like you've done some decreases at the corner where the final ribbing that circles the face shifts from the part under the chin to the horizontal parts up the side of the face? I don't see that mentioned in the pattern instructions, do you think it's important?
24.10.2024 - 19:09DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Laxague, we are working here from top down, so that there won't be any decreases after face opening when piece is worked in the round but increases that are worked as explained in A.3 under paragraph NECK. Happy knitting!
25.10.2024 - 07:51
Barbara skrifaði:
Neck: Started the round at the marker mid-back and continued A1 knit 1 in the stitch below and purl 2 stitches all the way round to the marker. Row 2 for A1 which is purl 2 knit 1 , do I turn my work around and go back in the opposite direction? That will leave a hole, the work will not be joined. Or do I continue A1 as knit 1 in the stitch below and the purl 2 stitches for every row from now on. When do I turn my work to complete the pattern? Is there a video or lesson I can follow?
08.10.2024 - 21:35DROPS Design svaraði:
See below :)
09.10.2024 - 08:19
Barbara skrifaði:
Neck: Started the round at the marker mid-back and continued A1 knit 1 in the stitch below and purl 2 stitches all the way round to the marker. Row 2 for A1 which is purl 2 knit 1 , do I turn my work around and go back in the opposite direction? That will leave a hole, the work will not be joined. Or do I continue A1 as knit 1 in the stitch below and the purl 2 stitches for every row from now on. When do I turn my work to complete the pattern? Is there a video or lesson I can follow?
08.10.2024 - 21:32DROPS Design svaraði:
Dear Barbara, you now work in the round, this means you read all rows in A.1 from the right towards the left; on 2nd row work (K1, P2), on 3rd row work as 1st row (K1 below, P2). Happy knitting!
09.10.2024 - 08:18
Marta skrifaði:
Hello, I was wondering ehat the final dimensions are for the pieces. I would like to block them before assembly, but I am not sure how to. Thanks for the help!
03.10.2024 - 12:38DROPS Design svaraði:
Dear Marta, the whole piece is worked together; it's not separate parts sewn together. You work one piece and knit up stitches to work the next one. So it's difficult to block this. As you can see, there is no assembly section or sewing section in this pattern. Happy knitting!
06.10.2024 - 14:37
Michele Ragusa skrifaði:
I’m wanting to buy yarn for this pattern but don’t seem to see how many yards the pattern calls for. (I’m in the US). I see grams. Can you advise?
28.06.2024 - 17:56DROPS Design svaraði:
Dear Michele, these patterns are written to support the sales of DROPS yarns, that is why DROPS yarns are listed for materials. You can find how many meters/balls for each yarn under our "yarns" tab. Happy Knitting!
30.06.2024 - 15:28
Jorun skrifaði:
Hei! Jeg får ikke A1 til å stemme med videoene som viser hvordan strikke patentmaske. Som jeg forstår det, starter A1 på rettsida, men da strikker man patent i en rettmaske, ikke en vrangmaske, som i videoene. Ikke minst i videoen "Hvordan strikke i masken under og hvordan øke 4 masker i 1 maske" vises et diagram som alternerer med tre rette på vrangsida, ikke en rett og to vrange, som i denne oppskrifta. Kan dere forklare?
18.02.2024 - 10:29DROPS Design svaraði:
Hei Jorun. I videoen strikkes det i masken under forrige omgang og den er en rettmaske (se diagram A.1 og tidspunkt: 0:36, 1:08, 1:42 og 1:56). Første diagramikon i diagram A.1 i videoen og første diagramikon i diagram A.1 i 214-73 strikkes likt selv om forrige omgang i videoen er vrang, så er det i omgangen under det skal strikkes i og den er rett, både i videoen og i 214-37. Videoen viser øketeknikken (4 økte masker) i A.2. I oppskrift 214-73 gjør du samme øketeknikk, men du må følge forklaringen hvordan maskene skal strikkes i 214-73 på neste omgang (i A.3). mvh DROPS Design
26.02.2024 - 11:08
Patricia Gilgan skrifaði:
Do you have a video of this garment
20.01.2024 - 23:07
Sølvi skrifaði:
Ønsker å få en bedre beskrivelse av økning A3. Får bare feil antall masker på venstre side av halsen. Dvs altfor mange
10.01.2024 - 14:45DROPS Design svaraði:
Hei Sølvi. Når du skal strikke omgangen med A.3 bruk maskemarkører mellom hver rapport. Så har du en bedre oversikt. Hvordan det økes kan du se på hjelpevideoen som ligger under oppskriften. Se: "Hvordan strikke i masken under og hvordan øke 4 masker i 1 maske" og se mellom tidspunktet 05:00-05:28. mvh DROPS Design
15.01.2024 - 13:45
Wrapped in Wonder#wrappedinwonderbalaclava |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð balaclava / húfa / lambhúshetta úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með klukkuprjónslykkjum og kanti í stroffprjóni.
DROPS 214-73 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LAMBHÚSHETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Miðjueiningin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna frá miðju framan á höfði og aftur. Lykkjur eru prjónaðar upp hvoru megin við miðjueininguna. Síðan er húfan prjónuð fram og til baka á hringprjóna, áður en lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmál mitt að framan. Síðan er afgangur af húfunni prjónaður í hring á hringprjóna að loka máli. Að lokum er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum op að framan. MIÐJUEINING: Fitjið upp 24-24 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 7-7 mynstureiningar með 3 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13-14 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið = 22-22 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn frá. Prjónið síðan húfuna eins og útskýrt er að neðan. HÚFA: Prjónið nú upp lykkjur hvoru megin við miðjueiningu, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið upp 25-28 lykkjur meðfram hlið á miðjueiningu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 eins og áður yfir 22-22 lykkjur á prjóni og prjónið upp 25-28 lykkjur meðfram annarri hlið á miðjueiningu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni = 72-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið mitt að framan – mynstrið á að passa fallega yfir lykkjur í miðjueiningu. Þegar stykkið mælist 16-18 cm frá prjónamerki og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út í hvorri hlið við miðju að framan þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið A.2A (= 1 lykkja), haldið áfram með A.1 eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.2B (= 1 lykkja), haldið áfram með A.1 yfir næstu 3 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út í hvorri hlið við miðju að framan eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 84-90 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 22-24 cm frá prjónamerki – húfan mælist ca 28-30 cm frá mitt á miðjueiningu og niður meðfram hlið á húfu. Nú á að fitja upp lykkjur fyrir hálsmáli mitt að framan. Mátið e.t.v. húfuna og prjónið að óskaðri lengd áður en fitjaðar eru upp nýjar lykkjur. Fitjið upp 12-18 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 96-108 lykkjur. Klippið þráðinn. Takið prjónamerkin úr miðjueiningu. Setjið 1 nýtt prjónamerki í stykkið – ca mitt aftan á húfu – prjónamerkið á að sitja í klukkuprjónslykkju. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan hálsmál í hring eins og útskýrt er að neðan. HÁLSMÁL: Byrjið umferð við prjónamerkið mitt að aftan og haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjur – passið uppá að mynstrið gangi jafnt upp alla leiðina hringinn. Þegar stykkið mælist 8-8 cm frá prjónamerki mitt að aftan, aukið út þannig: Prjónið A.3 í klukkuprjónslykkju með prjónamerki í, * haldið áfram með A.1 eins og áður yfir næstu 11 lykkjur, prjónið A.3 í næstu klukkuprjónslykkju *, prjónið frá *-* alls 7-8 sinnum og haldið áfram með A.1 eins og áður yfir síðustu 11 lykkjur = 128-144 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 15-15 cm frá prjónamerki mitt að aftan. Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 43-45 cm frá miðju á miðjueiningu og niður. KANTUR Í KRINGUM OP AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst í opi að framan, þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir háls og prjónið upp ca 140 til 160 lykkjur í kringum opið að framan innan við 1 kantlykkju á stuttan hringprjón 3 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2. ATH: Í miðjueiningu og meðfram lykkjum sem fitjaðar voru upp mitt að framan, prjónið upp 1 lykkju í hverja klukkuprjónslykkju og 3 lykkjur á milli hverra klukkuprjónslykkju. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3 cm – stillið af að stroffið passið fallega yfir lykkjur í miðjueiningu og við háls þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wrappedinwonderbalaclava eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-73
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.