Cindy skrifaði:
I am interested in knitting these pillow covers but my pillow inserts are approx. 18 " x 18". Is there any easy way to increase the size of the pillow covers. I am a fairly newish knitter so any help is appreciated.
19.07.2026 - 21:41DROPS Design svaraði:
Dear Cindy, the cover is fitting a cushion approx. 17¾" x 17¾" so it should fit yours without changes. Happy knitting!
10.08.2026 - 10:41
Ada Roks skrifaði:
Kan ik de hoes ook maken met gewone breinaalden?
23.01.2026 - 21:17DROPS Design svaraði:
Dag Ada,
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
25.01.2026 - 10:17
April N Bunney skrifaði:
How many skiens of yarn is needed in this drops lima yarn
13.02.2025 - 15:57DROPS Design svaraði:
Dear April, you need 300gr. Since each skein of DROPS Lima weighs 50gr you need 6 skeins of DROPS Lima for this pattern. Happy knitting!
16.02.2025 - 23:56
P K skrifaði:
Kun je dit patroon gebruiken voor plaid ,kortom kun je die breien zonder rond te breien ?
05.02.2022 - 16:38DROPS Design svaraði:
Dag P K ,
Ja, dat zou prima kunnen. Je breit dan het werk steeds heen en weer. Zorg ervoor dat de teruggaande naald een even naald is in het telpatroon zodat je steeds op de goede kant kunt kabelen. Waar je op de goede kant recht breit, brei je dan op de verkeerde kant averecht en vice versa.
11.02.2022 - 15:10
Els-Marie Edelfeldt skrifaði:
Ni har bara beskrivit framsidan med mönster. Hur gör jag med baksidan??? Saknar beskrivning på det.Mvh Els-Marie
30.11.2021 - 13:18DROPS Design svaraði:
Hej! Baksidan är i slätstickning, vi skriver: "Sticka rätmaskor över de sista 94 maskorna." Mvh DROPS Design
30.11.2021 - 13:42
Silke Röser skrifaði:
Wenn ich die Anleitung richtig gelesen habe, wird in Runden gestrickt und Anleitung A.2 zeigt jede Reihe. Wenn ich jetzt das Muster aber in einem Pullover stricke, handelt es sich da jeweils um Hin und Rückreihen?
21.08.2021 - 01:39DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Röser, die Diagramme zeigen alle Reihen bzw Runden, dh A.1 wird über 8 Reihen und A.2 über 16 Reihen wierdeholt. Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!
23.08.2021 - 07:14
Rizzini skrifaði:
Bonjour, je trouve ce modèle très beau. Je l'aime beaucoup pour ma part. Merci et bien à vous.
01.02.2021 - 09:54
Poetry Reading Pillow#poetryreadingpillow |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður púði með köðlum úr DROPS Lima.
DROPS 215-46 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 94 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 5,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca 5. og 6. hver lykkja slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PÚÐI – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring neðan frá og upp. Prjónað er mynstur á framhlið og sléttprjón á bakhlið. Púðinn er saumaður saman í botni og í toppi. PÚÐI: Fitjið upp 188 lykkjur á hringprjón 3,5 með Lima. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki í byrjun á umferð, 2. prjónamerki er sett á eftir 94 lykkjum – það eru jafn margar lykkjur hvoru megin við prjónamerkin. Prjónið nú 1 umferð slétt, JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út til að koma í veg fyrir að mynstrið dragi stykkið saman. Aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir fyrstu 94 lykkjur þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerkis – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 204 lykkjur. Það eru 110 lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis, það eru enn 94 lykkjur frá 2. prjónamerki og fram að byrjun á umferð. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið nú frá byrjun á umferð þannig: Prjónið 4 lykkjur slétt, A.1 yfir 18 lykkjur (1 sinni á breidd), A.2 yfir 24 lykkjur (1 sinni á breidd), A.1 yfir 18 lykkjur (1 sinni á breidd), A.2 yfir 24 lykkjur (1 sinni á breidd), A.1 yfir 18 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 4 lykkjur slétt – 2. prjónamerki situr hér. Prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 94 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram að prjóna mynstur svona þar til mynsturteikning A.2 hefur verið prjónuð alls 8 sinnum á hæðina (stykkið mælist ca 43 cm) eða prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 16 lykkjur jafnt yfir fyrstu 110 lykkjur / á milli 1. og 2. prjónamerkis = 188 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð. FRÁGANGUR: Leggið stykkið flatt þannig að það liggi tvöfalt með op í hvorum enda – passið uppá að mynstrið sé ekki snúið og að prjónamerkin séu í hliðum. Saumið saman opið meðfram uppfitjunarkanti – saumið í ystu lykkjubogana. Setjið kodda innan í púðaverið og saumið saman opið meðfram affellingarkanti. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #poetryreadingpillow eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-46
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.