Daisy skrifaði:
Une veste toute simple avec un col châle. Tout comme j'aime ! En laine Alpaca et Kid-silk, cette veste doit être légère et bien chaude... ce sera mon prochain ouvrage ! Merci beaucoup pour tous ces beaux modèles. Bien à vous.
08.11.2020 - 20:17
MJ skrifaði:
How can a CO of 68 plus 4 increases TWICE =60 stitches? Think it is time to find a new Tech Editor. Maybe I should be the new Tech Editor. I was the Controller of a large Savings and Loan, so I know how to balance, WITHOUT cheating, or errors. Thank you for your time and attention to my query, yet again. Have a great day!
07.11.2020 - 00:05MJ svaraði:
My mistake. CO 68 and BO 4 sts TWICE =60. Sorry to fumble. Being too distracted in my working space HAS NEVER WORKED!
07.11.2020 - 00:10
Heli Viitanen skrifaði:
Ihana simppeli takki, tästä olisi lempivillatakiksi!
24.10.2020 - 10:00
Thérèse Bordessoules skrifaði:
Modèle tout simple et classe, l'occasion pour moi d'essayer l'Alpaga bouclé
15.06.2020 - 23:14
Benedicta skrifaði:
Me gusta por lo sencilla e informal, además de calentita.
06.06.2020 - 10:31
Good Book Cardigan#goodbookcardigan |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með smáum sjalkraga og uppábroti á ermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 215-36 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MÁL: Öll mál á breidd eru gerð þegar stykkið liggur flatt án þess að strekkja það. Öll mál á lengd eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur peysan til með að verða of síð þegar hún er mátuð. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á ermum): Aukið út um 1 lykkju innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Allt stykkið er prjónað með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Bakstykki, framstykki og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig, neðan frá og upp. Síðan er stykkið saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. BAKSTYKKI: Fitjið upp 62-68-73-79-85-91 lykkjur á hringprjóna 7 með 2 þráðum Kid-Silk og 1 þræði Alpaca Bouclé (= 3 þræðir). Takið frá annan þráðinn með Kid-Silk (afgangur af bakstykki er prjónaður með 1 þræði í hvorri tegund, en fitjað er upp með 1 auka þræði til að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði stífur). Skiptið yfir á hringprjóna 6 og prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjóna 7 og prjónið sléttprjón með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 45-47-48-49-50-51 cm – sjá MÁL, fellið af 3-4-5-7-7-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 56-60-63-65-71-77 lykkjur eftir. Prjónið áfram eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 61-64-66-68-70-72 cm, fellið af miðju 10-10-11-11-13-13 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 21-23-24-25-27-30 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til bakstykkið mælist 63-66-68-70-72-74 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 34-37-39-42-45-48 lykkjur á hringprjóna 7 með 2 þráðum Kid-Silk og 1 þræði Alpaca Bouclé (= 3 þræðir). Takið frá annan þráðinn með Kid-Silk (afgangur af framstykki er prjónaður með 1 þræði í hvorri tegund). Skiptið yfir á hringprjóna 6 og prjónið 6 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjóna 7 og prjónið sléttprjón með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hlið og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 45-47-48-49-50-51 cm, fellið af 3-4-5-7-7-7 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu umferð frá röngu = 31-33-34-35-38-41 lykkjur eftir. Prjónið áfram eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 63-66-68-70-72-74 cm, fellið af á öxl, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Fellið af fyrstu 21-23-24-25-27-30 lykkjurnar á öxl og prjónið sléttar lykkjur yfir þær 10-10-10-10-11-11 lykkjur sem eftir eru í umferð = kragi. Kraginn er prjónaður eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI KRAGI: = 10-10-10-10-11-11 lykkjur. Haldið eftir lykkjum á hringprjón 7. Byrjið frá réttu og prjónið garðaprjón fram og til baka með 1 þræði í hvorri tegund þannig: * Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 6-6-6-6-7-7 lykkjur við miðju að framan *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-8-8-8-8 cm innst þar sem stykkið er minnst. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 34-37-39-42-45-48 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum Kid-Silk og 1 þræði Alpaca Bouclé (= 3 þræðir): Takið frá annan þráðinn með Kid-Silk (afgangur af framstykki er prjónaður með 1 þræði í hvorri tegund). Skiptið yfir á hringprjóna 6 og prjónið 6 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjóna 7 og prjónið sléttprjón með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hlið og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 45-47-48-49-50-51 cm, fellið af 3-4-5-7-7-7 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu umferð frá réttu = 31-33-34-35-38-41 lykkjur eftir. Prjónið áfram eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 63-66-68-70-72-74 cm, fellið af á öxl, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 21-23-24-25-27-30 lykkjurnar á öxl og prjónið sléttar lykkjur yfir þær 10-10-10-10-11-11 lykkjur sem eftir eru í umferð = kragi. Kraginn er prjónaður eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI KRAGI: = 10-10-10-10-11-11 lykkjur. Haldið eftir lykkjum á hringprjón 7. Byrjið frá röngu og prjónið garðaprjón fram og til baka með 1 þræði í hvorri tegund þannig: * Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 6-6-6-6-7-7 lykkjur við miðju að framan *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-8-8-8-8 cm innst þar sem stykkið er minnst. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. ERMI: Fitjið upp 28-30-32-32-34-36 lykkjur á hringprjóna 7 með 2 þráðum Kid-Silk og 2 þráðum Alpaca Bouclé (= 4 þræðir): Takið frá 1 þráð í hvorri tegund (afgangur af ermi er prjónaður með 1 þræði í hvorri tegund, en fitjað er upp með 2 auka þráðum til að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði stífur). Skiptið yfir á hringprjóna 6 og prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjóna 7. Prjónið 1 umferð brugðið frá réttu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Síðan er prjónað sléttprjón (slétt frá réttu, brugðið frá röngu) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 8 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Þessi prjónamerki merkja hvar brjóta á uppá ermina og stykkið er síðan mælt frá þessum prjónamerkjum. Haldið áfram með sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9 cm frá prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 9-10-10-11-12-12 sinnum í hvorri hlið = 46-50-52-54-58-60 lykkjur. Þegar ermin mælist 45-44-43-42-41-40 cm frá prjónamerkjum, setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið. Þessi prjónamerki merkja hvar botninn á handvegi byrjar. Prjónið áfram þar til ermin mælist 48-47-47-47-46-45 cm frá prjónamerkjum neðst á ermi. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Öll ermin mælist ca 56-55-55-55-54-53 cm frá affellingarkanti að uppfitjunarkanti. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og saumið botninn á handvegi – prjónamerki sem var sett í hvora hlið efst á ermum á að passa við hliðar á fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. Saumið kragann saman mitt að aftan, en passið uppá að saumurinn snúi inn þegar kraginn er brotinn niður. Saumið kraga við hálsmál aftan í hnakka. Brjótið upp neðstu 8 cm á hvorri ermi og saumið e.t.v. niður með nokkrum smáum sporum. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goodbookcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.