DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8580.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sahara Rose Sweater

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 213-32
DROPS Design: Mynstur ks-164
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-100-100-100-125-125 g litur 01, natur
50-75-75-75-75-100 g litur 12, beige
25-50-50-50-50-50 g litur 20, ljós beige

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8580.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

RENDUR:
ATH: Rönd 1 byrjar á berustykki (á eftir stroffi).
RÖND 1: 5-5-5-5-6-6 cm með 1 þræði ljós beige + 1 þræði natur (+ 3 cm í stroffi = alls 8-8-8-8-9-9 cm).
RÖND 2: 7-8-8-8-8-8 cm með 2 þráðum natur.
RÖND 3: 2-2-2-2-2-2 cm (þ.e.a.s., 4 umferðir) með 1 þræði natur + 1 þræði beige.
RÖND 4: 5-5-5-6-6-7 cm með 2 þráðum beige.
RÖND 5: 7-8-8-8-8-8 cm með 1 þræði ljus beige + 1 þræði natur.
RÖND 6: 2-2-2-2-2-2 cm (þ.e.a.s., 4 umferðir) með 1 þræði beige + 1 þráðum natur.
RÖND 7: 7-7-8-8-8-8 cm með 2 þráðum ljus beige.
RÖND 8: 5-5-5-6-6-7 cm með 2 þráðum natur.
RÖND 9: Prjónið með 2 þráðum beige til loka (ca 5-5-6-6-7-7 cm).

RENDUR ERMI:
Haldi síðan áfram með rendur á sama hátt og á fram- og bakstykki þar til rönd 7 hefur verið prjónuð til loka á hæðina. Prjónið síðan með 2 þráðum í litnum natur þar til ermin mælist 32-31-29-28-26-25 cm. Prjónið síðan með 2 þráðum í litnum beige til loka.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 40.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 40. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð 39. og 40. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um berustykki):
Aukið er út til skiptis fyrir á og eftir prjónamerki. Þ.e.a.s. við 1. útaukningu er aukið út á undan öllum prjónamerkjum í umferð, við 2. útaukningu er aukið út á eftir öllum prjónamerkjum í umferð, við 3. umferð er aukið út á undan öllum prjónamerkjum í umferð, o.s.frv.
Aukið út á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerkið situr hér.
Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 80-84-88-92-96-100 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði natur og + 1 þræði ljós beige (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 78-84-90-96-102-108 lykkjur – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA (þ.e.a.s. í stærð S er fækkað um 2 lykkjur, í stærð M er lykkjufjöldi ekki jafnaður út og í stærð L, XL, XXL og XXXL er aukið út um 2-4-6-8 lykkjur). Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). HÉÐAN ER NÚ MÆLT.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Fyrsta umferð á berustykki er prjónuð þannig: * 3 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér, prjónið 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 13-14-15-16-17-18 prjónamerki í stykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í berustykki.
Prjónið sléttprjón og RENDUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð 3-3-6-5-4-3 sinnum og í 4.-4.-6.-6.-6.-6. hverri umferð 9-9-6-7-8-9 sinnum = 234-252-270-288-306-324 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-2-6-6-12-14 lykkjur jafnt yfir = 234-254-276-294-318-338 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 33-36-39-42-46-50 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 51-55-59-63-67-68 lykkjur á þráð og fitjið upp 8-8-8-10-10-12 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 66-72-79-84-92-101 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 51-55-59-63-67-68 lykkjur á þráð og fitjið upp 8-8-8-10-10-12 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 33-36-40-42-46-51 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 148-160-174-188-204-226 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 20 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-32-34-40-40-46 lykkjur = 176-192-208-228-244-272 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 49-51-53-55-57-59 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 51-55-59-63-67-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-12 nýjum lykkjum undir ermi = 59-63-67-73-77-80 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 4-4-4-5-5-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón og RENDUR ERMI. Þegar ermin mælist 4-4-4-4-4-3 cm frá skiptingu byrjar úrtaka – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 6½-4-3-2½-2-2 cm millibili alls 5-7-8-10-11-12 sinnum = 49-49-51-53-55-56 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 33-32-30-29-27-26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 9-9-7-5-7-8 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-48-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Marina wrote:

Hola!, esta vez mi consulta es sobre las disminuciones en las mangas. Para talle S, cuando dice "cuando la manga mida 4cm desde la división, comenzar las disminuciones cada 6½ cm un total de 5 veces = 49 puntos". La pregunta es, por cada vez de esas 5, se disminuyen 2 puntos?, de modo tal que en 5 veces x2 son 10 puntos totales, para obtener los 49?. La disminución se hace antes y después del marcador?. Agradezco la orientación. Saludos!

01.10.2023 - 04:03

DROPS Design answered:

Hola Marina, la forma de disminuir está indicado en TIP PARA LAS DISMINUCIONES (para las mangas). Se disminuye a ambos lados del marcapuntos, tal y como se indica en el TIP. Por lo tanto se disminuyen 10 puntos y obtienes 49 puntos al final.

09.10.2023 - 00:32

country flag Marina wrote:

Hola, quería aclarar una duda. En las indicaciones del cuerpo, dice que , cuando la labor mida 20cm, trabajar una vuelta en jersey y al mismo tiempo aumentar en talla S, 28 puntos y luego trabajar el elástico. Pata qué se hace ese aumento? La idea es en la vuelta previa al comenzar el elástico se realiza ese aumento de puntos? Gracias!

22.09.2023 - 21:55

DROPS Design answered:

Hola Marina, se trabajan aumentos antes de comenzar el elástico porque la textura del patrón elástico tiende a encoger o contraer la labor. Por lo tanto, para contrarrestarlo, aumentamos algunos puntos antes de comenzar el elástico.

24.09.2023 - 22:40

country flag Kinga wrote:

Jakie będzie zużycie włóczki w jednym kolorze? Pozdrawiam. Kinga

14.09.2023 - 08:50

country flag Marina wrote:

Hola!, quizá ya lo preguntaron, pero en el canesú, cuando dice que luego de los aumentos, contar desde el marcapuntos 21 cm, esos 21 se cuentan a partir del ultimo aumento o tiene que medir 21 desde el escote?. Perdón por si la consulta es muy obvia, pero es mi primer prenda en circular. Gracias!

13.09.2023 - 03:43

DROPS Design answered:

Hola Marina, la labor tiene que medir 21cm desde el marcapuntos en el escote.

17.09.2023 - 23:10

country flag Marianne Roslund wrote:

Jag undrar hur mycket garn det går åt att sticka denna tröja storlek medium utan ränder?

19.08.2023 - 17:32

DROPS Design answered:

Hei Marianne. Siden vi ikke har strikket denne uten striper, har vi ikke den nøyaktige garnmengden. Vil tippe +/- 175 gram. mvh DROPS Design

21.08.2023 - 11:45

country flag Lynn wrote:

Hi. Re this instruction for yoke increases: “Increase like this every 2nd round 3-3-6-5-4-3 times and every 4th-4th-6th-6th-6th-6th round 9-9-6-7-8-9 times”. Question: Are the increases “in every 4th or 6th round” done ‘after’ completing the increases in every 2nd round, or are they done at the same time?

01.08.2023 - 19:23

DROPS Design answered:

Hi Lynn, You first do the increases every 2nd round then the increases every 4/6th round afterwards. Happy knitting!

02.08.2023 - 06:47

country flag Marjolein wrote:

Hi! I have a question about the gauge swatch. Should I knit this in the round like the sweater? Thank you!

17.01.2023 - 15:43

DROPS Design answered:

Dear Marjolein, if your tension knitted in the round is different as when you knit back and forth, then you might have to work your swatch in the round. Happy knitting!

17.01.2023 - 17:28

country flag Marie-José GALERAND wrote:

Merci de votre réponse qui reprend les explications mais ne m'ont pas permis de mieux comprendre, mais j'ai trouvé de l'aide ailleurs, désolée car c'est le 6em modèle que je fais et j'apprécie vos modèles, merci

14.11.2022 - 17:44

country flag Galerand wrote:

Pour les augmentations empiècement avant le marqueur au rg 2 4 6 8 10 12 et après le marqueur au rang 5 11 17 23 29 et 37 pour la taille L , je ne suis pas sûre d'avoir bien compris Merci pour votre réponse

12.11.2022 - 19:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Galerand, les augmentations doivent être faites alternativement avant/après les fils marqueur - cf AUGMENTATIONS (empiècement):; autrement dit, la 1ère fois, augmentez avant tous les fils marqueurs, la fois suivante augmentez après tous les fils marqueurs et ainsi de suite, vous augmentez ainsi 6 fois tous les 2 tours (1 fois avant, 1 fois après)x 3; puis 6 fois tous les 6 tours (1 fois avant, 1 fois après)x3. Bon tricot!

14.11.2022 - 09:36

country flag Michelle wrote:

Hej i udtagningerne på bærestykket får vi for mange masker, efter de 9 rækker med udtagelser str m Hav en skøn dag

16.08.2022 - 08:08

DROPS Design answered:

Hei Michelle. Usikker på hva du mener med for mange masker etter 9. omgang. Du skal da ha 210 masker, hva har du? I str. M starter du med 84 masker og etter 12 omganger (når alle økningene er ferdig) skal du har 252 masker iflg oppskriften. 84+14 (1. øk) = 98 + 14 (2.øk) =112 + 14 (3.øk) = 126 + 14 (4. øk) =140 +14 (5.øk) = 154 + 14 (6.øk)= 168 + 14 (7. øk) = 182 + 14 (8.øk) =196 + 14 (9.øk) = 210 + 14 (10.øk) = 224 + 14 (11. øk)=238 + 14 (12. øk) = 252. mvh DROPS Design

22.08.2022 - 09:21