Iva wrote:
Hallo, Größe M Ich verstehe die Zunahmen bei dem Rumpfteil nicht. Mir wird gesagt ich soll alle 10cm insgesamt 3 Mal zunehmen, sprich wir haben nach 30 cm 152 Maschen auf der Rundnadel. Dann wird gesagt bei 27cm 23 Maschen aufnehmen, wir sollten 175 Maschen auf der Rundnadel haben. Ich finde es ist ein Widerspruch, da bei 30cm die Maschenzahl 152 ist, und bei 27cm die Maschenzahl 175 ist. Würde mich um Aufklärung freuen LG Ivanka
25.06.2023 - 11:14DROPS Design answered:
Liebe Iva, die 1. Zunahme stricken Sie nach 4 cm, dann die 2. 10 cm später = 14 cm und die 3. 10 cm später: 24 cm; dann stricken Sie 3 cm (bis 27 cm) und nehmen Sie 23 Maschen regelmäßig verteilt zu (= auf einer Runde nehmen Sie von 152 auf 175 Maschen) dann Bündchen stricken. Viel Spaß beim stricken!
26.06.2023 - 08:48Frey Marie wrote:
Bonjour, je voulais savoir pour une taille 42 Europe , je dois faire un M ou un L ? C’est pour offrir donc je n’ai pas les mesures . Merci pour votre aide
16.05.2022 - 14:46DROPS Design answered:
Bonjour Mme Frey, les tailles sont toutes différentes d'une marque à l'autre, il est donc difficile de vous donner une taille type, l'idéal restant de mesurer un vêtement similaire, vous serez ainsi sûre de pouvoir choisir la taille qui convient correctement à la personne pour laquelle vous le tricoterez. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
16.05.2022 - 16:49Ilona wrote:
Non capisco come aumentare e lavorare secondo il motivo dopo aver lavorato il diagramma in verticale
16.05.2020 - 21:54DROPS Design answered:
Buongiorno Ilona, a quale parte del modello e a quale diagramma fa riferimento? Buon lavoro!
17.05.2020 - 12:49Betina Kauer wrote:
Sehr schönes Modell, ich freue mich schon auf die Anleitung.
21.12.2019 - 23:45
Cornflower Top |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónaður toppur með hringlaga berustykki úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni og stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-31 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.3). ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 85 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 11) = 7,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8 hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Síðan skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar og haldið er áfram í hring á fram- og bakstykki. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 85-90-90-95-100-105 lykkjur á hringprjón 4 með Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroffprjón (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroffprjón í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki á eftir stroffprjóni í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið A.1 hringinn, jafnframt er aukið út jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, þannig: Í 1. umferð er aukið út um 11-12-18-19-20-21 lykkjur = 96-102-108-114-120-126 lykkjur. Í 13. umferð er aukið út um 14-18-22-21-20-24 lykkjur = 110-120-130-135-140-150 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur þannig (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð): * A.2 yfir 1 lykkju, A.3 yfir næstu 4 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 22-24-26-27-28-30 sinnum hringinn í umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 198-216-234-270-280-300 lykkjur í umferð. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki á eftir stroffi. Nú er prjónað sléttprjón til loka. Þegar stykkið mælist 16-17-18-20-21-22 cm frá prjónamerki á eftir stroffi, aukið út 8-8-10-4-8-16 lykkjur jafnt yfir = 206-224-244-274-288-316 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki á eftir stroffi. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 29-32-34-38-42-47 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 45-48-53-60-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 58-64-69-77-84-94 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 45-48-53-60-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermum), prjónið næstu 29-32-35-39-42-47 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 128-140-154-170-188-208 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið (= 3-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið. Nú eru 64-70-77-85-94-104 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki og framstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni á hringprjón 5,5. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 10 cm millibili alls 3 sinnum = 140-152-166-182-200-220 lykkjur. Þegar stykkið mælist 27 cm frá skiptingu, aukið út 20-23-24-28-30-35 lykkjur = 160-175-190-210-230-255 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Toppurinn mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 45-48-53-60-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 nýjum lykkjum undir ermum = 51-54-61-68-70-74 lykkjur. Prjónið 2 umferðir í sléttprjóni – eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 50-55-60-70-70-75 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S og L er fækkað um 1-1 lykkju, í stærð M, XL og XXXL er aukið út um 1-2-1 lykkjur og í stærð XXL er ekki aukið út né lykkjum fækkað). Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Hanne Duli Olsen wrote:
Hei! :) Veldig søt, denne! Fant den i kveld, og ville begynne å strikke, men så er det ingen oppskrift på den. Når kommer den?
25.01.2020 - 23:24