Pia wrote:
Hals 100m str. m. Herefter tages der 14masker ud efter ribben, 114m. På pind nr. 13 tages 17 m ud. Det skal efter jeres beregning give 136m. Det forstår jeg ganske enkelt ikke. Efter min beregning giver det 131m. Der mangler 5 masker😡
05.07.2021 - 14:02DROPS Design answered:
Hej Pia, det ser ud til at vi har skrevet 5 masker for meget i alle størrelser efter udtagningerne på pind 13. Vi er nødt til at lade design se på det efter ferien.
12.07.2021 - 15:11Norma Martin wrote:
Nothing
07.12.2020 - 22:04Norma Martin wrote:
Was trying to knit Andromeda but instructions are basic . Also cant be found on your site for help!!!
07.12.2020 - 22:03DROPS Design answered:
Dear Mrs Martin, which kind of help do you need? There are videos and lessons to the techniques used in that pattern - but feel free to ask your question here if you like to. Happy knitting!
08.12.2020 - 09:12Minna Virolainen wrote:
Aloitetaanko kuvio A5 alhaalta vai ylhäältä päin?
26.11.2020 - 07:52DROPS Design answered:
Piirros A.5 neulotaan alhaalta ylös.
04.12.2020 - 14:22Sylvaine Rigaut wrote:
D'après mes calculs (taille xl) pour avoir 286 m après les diagrammes de l'empiècement, i, faut faire 27 augmentations au 13ème rang. Est-ce correct ? Merci 🙏🌞
18.04.2020 - 16:30Sylvaine Rigaut wrote:
Bonjour, il me semble qu il y a une erreur pour les augmentations de l'empiècement au rang 13. Merci d'ava6 de me confirmer le nombre d'augmentations et le nombre de mailles à obtenir pour la taille XL. Cordialement
18.04.2020 - 00:04DROPS Design answered:
Bonjour Mme Rigault, nos stylistes vont vérifier ces augmentations, pour avoir les 151 mailles requises pour tricoter les diagrammes suivants, il faudrait augmenter 27 mailles en XL. Bon tricot!
20.04.2020 - 09:23
Cornflower Jacket |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri, garðaprjóni og stroffi. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-29 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.4 og A.5). ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 95 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 7,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftri 7. og 8. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 2½-3 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9½-10-8½-9-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 95-100-100-105-110-115 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með Paris. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 6 lykkjur kantur að framan), * prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt og endið með A.2 (= 6 lykkjum kantur að framan). Haldið svona áfram með stroff í 2½-3 cm og stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur A.3 innan við A.1 og A.3 í hvorri hlið (kantlykkjur að framan halda áfram í hvorri hlið til loka), jafnframt er aukið út jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, þannig: Í 1. umferð er aukið út um 11-14-18-19-20-23 lykkjur jafnt yfir = 106-114-118-124-130-138 lykkjur. Í 13. umferð er aukið út um 20-22-28-27-26-28 lykkjur jafnt yfir = 126-136-146-151-156-166 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur þannig (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð): Prjónið A.1, A.4 yfir næstu 4 lykkjur, * A.5 yfir næstu lykkju, A.4 yfir næstu 4 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 22-24-26-27-28-30 sinnum, endið með A.2. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka eru 214-232-250-286-296-316 lykkjur í umferð. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki á eftir stroffi. Prjónið nú sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður til loka. Þegar stykkið mælist 16-17-18-20-21-22 cm frá prjónamerki á eftir stroffi, aukið út 4-4-5-0-4-12 lykkjur jafnt yfir = 218-236-255-286-300-328 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki á eftir stroffi. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 35-38-40-44-48-53 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 45-48-53-60-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 58-64-69-78-84-94 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 45-48-53-60-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 35-38-40-44-48-53 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-152-165-182-200-220 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 38-41-44-48-53-58 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 64-70-77-86-94-104 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og kantlykkjum að framan eins og áður á hringprjón 5,5. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 10 cm millibili alls 3 sinnum = 152-164-177-194-212-232 lykkjur. Þegar stykkið mælist 27 cm frá skiptingu, aukið út 23-26-28-31-33-38 lykkjur jafnt yfir = 175-190-205-225-245-270 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff frá réttu þannig: A.1, * 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, 3 lykkjur slétt, A.2. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 45-48-53-60-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 nýjum lykkjum undir ermum = 51-54-61-68-70-74 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 3-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum. Þegar ermin mælist 4 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi -sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-4-3-2-1½-1½ cm millibili alls 7-8-10-13-13-15 sinnum = 37-38-41-42-44-44 lykkjur. Þegar ermin mælist 36-34-33-31-29-28 cm – eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-2-4-3-1-6 lykkjur jafnt yfir = 40-40-45-45-45-50 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Öll ermin mælist ca 41-39-38-36-34-33 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Pia wrote:
Hals 100m på str. m. Herefter tages der 14m ud efter ribben 114m På pind nr. 13 tages 17 masker ud. Det skal efter jeres beregning give 136m. Det forstår jeg ganske enkelt ikke det giver 131m. Altså mangler der 5 masker😡
04.07.2021 - 15:58