DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 209-21
DROPS Design: Mynstur fa-451
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 – 38/40 – 41/43
Lengd fótar: ca 22 – 24 - 27 cm.
Hæð á sokk: ca 25 -25 - 25 cm.

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-100 g litur 340, bláa lónið
50-50-100 g litur 100, natur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5: Fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.6.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 15 lykkjur eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Sokkarnir eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

SOKKUR:
Fitjið upp 72 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Fabel með litnum bláa lónið. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan 10 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1 (= 6 mynstureiningar í umferð).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt með litnum bláa lónið þar sem fækkað er um 8-0-0 lykkjur jafnt yfir = 64-72-72 lykkjur. Prjónið síðan A.2 yfir allar lykkjur (= 8-9-9 mynstureiningar af A.2). Haldið áfram þar til A.2 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina. Haldið eftir fyrstu 0-2-5 lykkjum í umferð á prjóni, setjið næstu 29-33-35 lykkjur á þráð, haldið eftir síðustu lykkjum í umferð á prjóni = 35-39-37 lykkjur eftir á prjóni fyrir hæl. Prjónið A.3 yfir lykkjur á hæl, JAFNFRAMT er fækkað um 2-6-4 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 33 lykkjur fyrir hæl í öllum stærðum. Þegar A.3 hefur verið prjónað, haldið áfram með A.4. Prjónið A.4 yfir hællykkjur þar til hællinn mælist 5-5½-6 cm, setjið 1 prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan (A.4 heldur áfram). Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13-13-14 lykkjur hvoru megin við hæl með litnum bláa lónið og 29-33-35 lykkjur af þræði á fæti eru settar til baka á prjóninn = 70-74-78 lykkjur. Þær 29-33-35 lykkjur á fæti eru prjónaðar þannig: A.5, A.6 (sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð), A.5, lykkjur undir fæti halda áfram í A.4 JAFNFRAMT er lykkjum núna fækkað hvoru megin við 29-33-35 lykkjur á fæti þannig: Prjónið 2 lykkjur á undan 29-33-35 lykkjum á fæti slétt saman með lit í núverandi rönd og 2 lykkjur á eftir 29-33-35 lykkjum á fæti snúnar slétt saman með lit í núverandi rönd (= 2 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 6 sinnum í öllum stærðum = 58-62-66 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 18-19-22 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 4-5-5 cm að loka máli). Prjónið síðan þannig: Prjónið A.5 eins og áður yfir 3 lykkjur í hvorri hlið og prjónið A.6 og A.4 eins og áður. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við A.5 í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.5, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum natur, prjónið A.5, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt með litnum natur, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 4 lykkjur færri).
Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 4-7-7 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-3-3 sinnum = 22-22-26 lykkjur eftir í umferð. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 með litnum natur = 11-11-13 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = natur
symbols = bláa lónið
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 209-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Anne Warren wrote:

Can I substitute a slightly heavier yarn for fa-451

13.03.2024 - 14:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Warren, you should use the same thickness to get the same tension and correct finished measuremens, use the yarn converter to see possible alternatives. Happy knitting!

13.03.2024 - 16:05

country flag Diana wrote:

Wenn ich den Fuss mit 66 M. stricke und dann 7x4 maschen abnehme, habe ich noch 38 M. ? und was dann die Beschreibung "in jeder Runde insgesamt 3x26 übrig" bedeutet, ergibt für mich keinen Sinn. Mit freundlichen Grüßen

25.09.2021 - 18:42

DROPS Design answered:

Liebe Diana, wenn Sie 4 Maschen in jeder 2. Runde 7 Mal abnehmen, werden 28 Maschen abgenommen, und so bleiben 38 Maschen, dann nehmen Sie in jeder Runde 3 Mal ab: 12 M werden abgenommen = 38-12=26 Maschen sind noch übrig. Viel Spaß beim stricken!

27.09.2021 - 08:12

country flag Silke wrote:

... oder man muss die letzten 2 Maschen der Runde für den Fussrücken stillegen, statt wie beschrieben die ersten 2 Maschen der Runde für die Ferse auf der Nadel zu lassen, dann stimmt das Muster mit dem Bild überein.

24.12.2020 - 08:57

DROPS Design answered:

Siehe Unten - bei der Verteilung sind die 2 ersten Maschen der Runde für die Ferse behalten. Viel Spaß beim stricken!

04.01.2021 - 07:44

country flag Silke wrote:

Hallo! Kann das sein, dass A6 für 38/40 auf dem Kopf steht? Ich meine, ich hätte alles genau nach Anleitung gemacht, aber dann muss man A6 andersrum nehmen. Meine Socken sind toll geworden, danke für die Anleitung!

23.12.2020 - 18:08

DROPS Design answered:

Liebe Silke, wenn Sie die 33 Maschen stilllegen, haben Sie die ersten 2 Maschen für den Fersen behalten? Dann ist die erste von diesen 33 M die 3. Masche in A.2, und später stricken Sie A.5 (= 3 Maschen) dann A.6 und so muss das Muster übereinander stimmen (und A.5 nochmal nach A.6 stricken). Viel Spaß beim stricken!

04.01.2021 - 07:43

country flag Patricia Olivia Fuchs wrote:

Okay, gut, danke, ich werde das jetzt einfach mal versuchen, ob es als Hebemaschenmuster funktioniert. Vielen Dank und einen schönen Tag!

05.12.2020 - 17:24

country flag Patricia Olivia Fuchs wrote:

Leider beantwortet das meine Frage nicht :-), mir ist klar, dass es sich bei der Anleitung um fair-isle-Isle-Technik handelt. Meine Frage war: Kann ich das prinzipiell auch als Mosaik stricken, oder ändert sich dadurch etwas beim Musterrapport?

04.12.2020 - 12:18

DROPS Design answered:

Liebe Frau Fuchs, prinzipiell lassen sich Norwegermuster auch als Hebemaschenmuster arbeiten - allerdings könnte es bei diesem Muster schwierig werden, z.b. weil die blaue Raute eine weiße Mittelmasche hat. Besser ist ein regelmäßigerer Wechsel der Farben. Außerdem müssten Sie beachten, dass Sie in der Höhe mehr Reihen brauchen - bei Socken, die passgenau werden müssen, könnte das auch etwas problematischer werden. Stricken Sie doch aber einfach mal einen kleinen Probelappen und probieren es aus, dann merken Sie auch, wie sich die Maschenprobe in der Höhe ändert. Viel Spaß beim Stricken!

05.12.2020 - 10:25

country flag Patricia Olivia Fuchs wrote:

Leider beantwortet das meine Frage nicht :-), mir ist klar, dass es sich bei der Anleitung um fair-isle-Isle-Technik handelt. Meine Frage war: Kann ich das prinzipiell auch als Mosaik stricken, oder ändert sich dadurch etwas beim Musterrapport?

04.12.2020 - 12:18

country flag Patricia Olivia Fuchs wrote:

Lassen sich generell fair isle muster eigentlich auch mit der Hebemaschen-Technik stricken (Mosaik-stricken)? Ich tue mir extrem schwer mit der Fadenhaltung bei der fair-isle-technik.

04.12.2020 - 09:04

DROPS Design answered:

Liebe Frau Fuchs, wir haben 2 Videos für das fair-isle stricken: mit den Arbeitsfäden auf der linken Hand und mit den Arbeitsfäden auf der rechten Hand dh alle Maschen werden gestrickt, nicht wie beim Mozaïck abgehoben. Viel Spaß beim stricken!

04.12.2020 - 11:57

country flag Leanne wrote:

I just dont understand a cast on of 72 m. I Will drown in then, and when you have a pattern there goes from size 35 - 43 it makes no sense that the cast on are the same, and even after taken in 8 m. There are still 64 m on they will still be huge Both on needle no 3 and 2 1/5. Is it just me or are all your sock pattern very large.

01.06.2020 - 01:04

country flag Mimi Routh wrote:

Love and prayers from south end of Lake Tahoe, California! I will make these pretty socks with yarn on hand. It is 6 April, under quarantine. I look at the numbers world-wide and send extra prayers to your designers, the animal herders, the bosses, and the folks who carry boxes. BE WELL! SEE YOU ON THE OTHER SIDE!

06.04.2020 - 17:59