Jennifer Carvalho wrote:
After the three increase stitches, there are 108 stitches. The band stitches being 12 altogether leaves 96 stitches to insert the four markers....20+20+28+20+20 ends up with 108 stitches (which is the total number of stitches that includes the band stitches). I am short 12 stitches. Where did i go wrong? Am i missing something? Thank you
12.12.2023 - 03:33DROPS Design answered:
Dear Mrs Carvalho, the 6 band stitches are included in the 20 sts for each front piece, so that you have: 20 sts (left front piece, including 6 front band sts), 20 sts (sleeve), 28 sts (back piece), 20 sts (sleeve) and 20 sts (right front piece, including 6 front band sts). Happy knitting!
12.12.2023 - 09:17Francesca wrote:
Bjr, en taille S quand on arrive à la séparation à19cm, pouvez-vous me dire combien de maille je dois avoir pour les devant, Manche et dos s'il vous plaît? Merci Franseca
23.12.2022 - 16:06DROPS Design answered:
Bonjour Francesca, vous avez augmenté 23 fois pour le raglan, vous aurez: 20+23 = 43 m pour le devant gauche/le devant droit; 20+(23x2)=66 m pour chaque manche et 28+(23x2)=74 m pour le dos soit 43+66+74+66+43=292 mailles. Bon tricot!
02.01.2023 - 08:31ESTER MARTINEZ wrote:
Gracias. Me di cuenta después que habia leido los puntos de la talla S. Gracias por la rapidez
12.12.2022 - 07:47ESTER MARTINEZ wrote:
Voy a tejer la manga. No entiendo como hacerlo. Porque si tejo 46 puntos en A.2 y luego 22 en punto revés. Son 68 puntos. Si tengo 72 puntos en la aguja. ¿Que hago con los otros 4 ?
08.12.2022 - 08:52DROPS Design answered:
Hola Ester, qué talla estás trabajando? Para la talla S, tienes 68 pts y trabajas 46 en A.2 y 22 pts de revés = 68 pts. Para la talla M, tienes 72 pts y trabajar 46 en A.2 y 26 de revés = 72 pts.
11.12.2022 - 20:51Chris wrote:
Bonjour pouvez vous me dire ce que je fais quand j'ai fini d'augmenter pour le raglan, dois-je continuer à augmenter pour le dos ou juste continuer jusqu'à 19cm sans aucune augmentation ? Merci pour votre éclairage ! Bien cordialement
02.08.2022 - 15:31DROPS Design answered:
Bonjour Chris, lorsque vous avez terminé les augmentations, vous avez 292 mailles (en taille S), si votre ouvrage ne mesure pas encore 19 cm à partir du col, tricotez comme avant: la bordure des devants, les devants et le dos en jersey et les points fantaisie aussi comme avant, mais vous ne faites plus de jetés pour le raglan de chaque côté de A.1. Bon tricot!
02.08.2022 - 17:21Monika wrote:
Hallo, können Sie mir bitte helfen? Ich bin jetzt mit dem Körper fertig und frage mich, wie ich das Muster, das zuerst in Reihen gestrickt wurde, jetzt in Runden weiterstricke? Nach der Strickschrift kann ich ja nicht gehen, da die Rückreihen jetzt anders gestrickt werden müssen. Wie mache ich das richtig? Danke, Monika
05.03.2022 - 17:41DROPS Design answered:
Liebe Monika, bei den Ärmeln lesen Sie das Diagram immer rechts nach links, und die Maschen werden dann so gestrickt, wie sie von der Vorderseihte (bei Hinreihen) aussehen sollen. Viel Spaß beim stricken!
07.03.2022 - 08:35Chris wrote:
Bonjour, J'ai du mal à comprendre le rangs 2, je suis toujours décalée. Pouvez vous me dire si je me trompe: 6m bordure , 9 m envers, 1 m Envers torse, A1envers= 1m envers, 3 endroits, 2 envers 3 endroit, 1 envers 1 envers torse A2envers= 1 endroit, 1 envers 3 endroit 2 envers 3 endroits 1 envers 1 endroit 1 envers torse Etc.... Merci pour vos explications car ce modèle est vraiment superbe mais je débute avec un diagramme 🙃.
26.01.2022 - 09:42DROPS Design answered:
Bonjour Chris, les augmentations des raglans se tricotent soit en jersrey = devants et dos), soit dans A.2 pour les manches, autrement dit, au 2ème rang sur l'envers, les augmentations figurent dans A.2 soit: 1 m torse à l'end (= le jeté = 1ère m de A.2 sur l'envers), 1 m env, 3 m end, 2 m env, 3 m end, 1 m env, 1 m torse à l'endroit (= le jeté = dernière m de A.2 sur l'envers). Ainsi, vous ne devriez plus être décalée. Bon tricot!
26.01.2022 - 09:51Zornitsa wrote:
Buongiorno, vorrei chiedere il numero di maglie iniziali (CO), in questo caso 109 (collo) includono già i 6 da ogni lato o le dobbiamo calcolare (109 + 12) ed aggiungerle noi? Grazie se mi risponderete e complimenti, i vostri schemi sono tutti bellissimi.
12.10.2021 - 10:37DROPS Design answered:
Buonasera Zornitsa, il numero di maglie da avviare è già comprensivo delle maglie del bordo, come indicato nel testo. Buon lavoro!
13.10.2021 - 18:19Estelle wrote:
Wie viel Garn benötigt man für diese Jacke, wenn man lange Ärmel stricken möchte? Reichen zusätzliche 50g?
25.07.2021 - 20:50DROPS Design answered:
Liebe Estelle, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, dort hilft man Ihnen gerne weiter - auch telefonisch oder per E-Mail. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!
26.07.2021 - 09:05
Evening Glow Jacket |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og stuttum ermum með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-2 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (= 6 lykkjur): Prjónið frá réttu þannig: 2 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, 1 lykkja garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með garðaprjón yfir garðaprjón og sléttprjón yfir sléttprjón. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (= 6 lykkjur): Prjónið frá réttu þannig: 1 lykkja garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, 1 lykkja garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með garðaprjón yfir garðaprjón og sléttprjón yfir sléttprjón. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 105 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim 93 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 31. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 31. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan og kantar að framan eru prjónaðir eins og áður). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð ca 30. og 31. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (laskalína) og A.2 (mynstur á ermum). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 10 lykkjur í A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= alls 8 lykkjur fleiri í útauknings umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga), prjónið uppsláttinn snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á framstykki og bakstykki og í A.2 á ermum. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur brugðið (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá röngu! Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (rétta) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjur í garðaprjóni. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 9-9½-8½-9-8-8 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 105-109-113-119-123-127 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið VINSTRI KANT AÐ FRAMAN (= 6 lykkjur) – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (= 6 lykkjur) – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm, munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATH: Kantur að framan er prjónaður eins og útskýrt er að ofan til loka. Þegar stroffið hefur verið gert til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður) þar sem aukið er út um 3-7-7-5-1-5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 108-116-120-124-124-132 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan, í byrjun á umferð meitt að framan. Berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður (uppslátturinn frá útaukningu er prjónaður snúinn brugðið). Prjóni síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 20-22-23-24-24-26 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), teljið 28-32-34-36-36-40 lykkjur (= bakstykki) setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 20-22-23-24-24-26 lykkjur á hægra framstykki á eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umferð byrjar mynstur eins og útskýrt er að neðan, JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. í næstu umferð er aukið út frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, 9-11-12-13-13-15 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 (= 10 lykkjur og prjónamerki situr mitt í A.1), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 (= 10 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 (= 10 lykkjur og prjónamerki situr mitt í A.1), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 18-22-24-26-26-30 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 (= 10 lykkjur og prjónamerki situr mitt í A.1), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 (= 10 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 (= 10 lykkjur og prjónamerki situr mitt í A.1), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 9-11-12-13-13-15 lykkjur sléttprjón og endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 23-25-29-33-37-40 sinnum á hæð meðtaldar útaukningar sem útskýrðar eru í fyrstu umferð. ATH: Útauknar lykkjur á ermum eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur þar til alls 5-5-7-7-7-7 mynstureiningar eru á breidd yfir ermi, prjónið síðan næstu útauknu lykkjur brugðið frá réttu og slétt frá röngu til loka (A.2 sýnir ermi með öllum útaukningum í stærð S). Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 292-316-352-388-420-452 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram án útaukningar þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 46-50-55-60-66-72 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-64-72-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 80-88-98-108-120-132 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 60-64-72-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 46-50-55-60-66-72 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 188-204-224-244-268-292 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 50-54-59-64-70-76 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 88-96-106-116-128-140 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum á fram- og bakstykki. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 3 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 172-188-208-228-252-276 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16 cm frá skiptingu. Í næstu umferð frá röngu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 6 sinnum í hvorri hlið = 196-212-232-252-276-300 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 33 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður) og aukið jafnframt út 37-41-45-49-53-57 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 233-253-277-301-329-357 lykkjur. Prjónið stroff frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan eins og áður, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-64-72-80-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með mynstur hringinn með A.2 yfir miðju 46-46-64-64-64-64 lykkjur á ermi og brugðnum lykkjum yfir þær 22-26-16-24-28-32 lykkjur sem eftir eru mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1-½-½ cm millibili alls 5-6-8-10-12-13 sinnum = 58-60-64-68-68-70 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 17-15-14-12-11-9 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-6-8-10-8-8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 20-18-17-15-14-12 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Jennifer Carvalho wrote:
After the three increase stitches, there are 108 stitches. The band stitches being 12 altogether leaves 96 stitches to insert the four markers....20+20+28+20+20 ends up with 108 stitches (which is the total number of stitches that includes the band stitches). I am short 12 stitches. Where did i go wrong? Am i missing something? Thank you
12.12.2023 - 03:29