DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

December Dunes

Prjónað sjal úr DROPS Alpaca eða DROPS Lace. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni, gatamynstri og öldumynstri.

DROPS 203-17
DROPS Design: Mynstur la-041
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: Mælt meðfram miðju = ca 39 cm.
Breidd: Mælt meðfram efri hlið frá hlið að hlið = ca 162 cm.

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250 g litur 2020, ljós kamel

Eða notið:
DROPS LACE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 2020, ljós kamel

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GATAUMFERÐ:
Þegar gataumferð er prjónuð, á að auka út í byrjun á hverri umferð eins og áður.
Prjónið þannig:
UMFERÐ 1: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og prjónið 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið afgagn af lykkjum slétt.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 33 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 2,7.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Ef prjónfestan passar ekki, getur sjalið fengið rangan lykkjufjölda ef þú þarft að prjóna fleiri eða færri umferðir en þær sem gefnar eru upp til að fá rétt mál í cm. Það er hægt að laga þessi frávik í næstu útauknings umferð.
Ef prjónað er of fast, þannig að 6 cm verði ekki 30 umferðir garðaprjón, heldur t.d. 32 umferðir garðaprjón, koma til með að vera 4 eða 2 lykkjur ofaukið í umferð (ef þetta er gert á undan eða á eftir ÚTAUKNING 3).
Ef prjónað er of laust, koma til með að vera of fáar lykkjur í umferð þegar prjónað er að uppgefnu máli í cm. Þetta er hægt að laga í næstu útauknings umferð, þannig að fjöldi lykkja passi við lykkjufjölda sem gefinn er upp þegar útaukning hefur verið prjónuð til loka

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

FORMUN:
Leggið stykkið í volgt vatn þar til það er orðið gegnblautt. Pressið varlega vatnið úr – ekki vinda. Rúllið síðan stykkinu upp í handklæði og pressið til þess að ná enn meira vatni úr stykkinu – nú á stykkið að vera aðeins rakt. Leggið stykkið á mottu eða á dýnu – dragið stykkið varlega út í þá stærð sem stendur efst í útskýringu undir STÆRÐ og látið þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem stykkið er þvegið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Meiri hlutinn af sjalinu er prjónaður í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, kantur neðst niðri er prjónaður í öldumynstri.

SJAL:
Fitjið upp 13 lykkjur á hringprjón 3,5 með Alpaca eða Lace. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga). Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri).
Prjónið sléttprjón og haldið áfram að auka út um 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð þar til prjónaðar hafa verið alls 8 umferðir garðaprjón frá byrjun = 29 lykkjur.

Prjónið 1 GATAUMFERÐ – sjá útskýringu að ofan (= 4 lykkjur fleiri) = 33 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

ÚTAUKNING 1:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir, sjá ÚTAUKNING-1 í útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt = 45 lykkjur.

Prjónið garðaprjón og haldið áfram að auka út um 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð eins og áður þar til prjónaðar hafa verið alls 6 umferðir garðaprjón (meðtalin útaukning) frá fyrri gataumferð = 53 lykkjur.

* Prjónið 1 GATAUMFERÐ. Prjónið garðaprjón og haldið áfram að auka út um 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð eins og áður þar til prjónaðar hafa verið alls 6 umferðir garðaprjón á eftir gataumferð *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 85 lykkjur.

Prjónið 1 GATAUMFERÐ (= 4 lykkjur fleiri) = 89 lykkjur.

ÚTAUKNING 2:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 21 lykkjur jafnt yfir. Næsta umferð er prjónuð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt = 110 lykkjur.

Prjónið garðaprjón og haldið áfram að auka út um 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð eins og áður þar til stykkið mælist 6 cm frá fyrri gataumferð, það jafngildir ca 30 umferðum garðaprjón (meðtalin fyrri útaukning) = 166 lykkjur. Ef lykkjufjöldinn passar ekki, er hægt að jafna hann til í næstu umferð – sjá ÚTAUKNING-2 í útskýringu að ofan.

ÚTAUKNING 3:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 57 lykkjur jafnt yfir. Það eiga að vera 223 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.

ATH: Nú breytist útaukningin í hliðum frá 2 lykkjum yfir í 1 lykkju (í gataumferð er einnig aukið einungis um 1 lykkju í hlið í hverri umferð).

Aukið út og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið afgang af lykkjum slétt (= 1 lykkja fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið afgang af lykkjum slétt (= 1 lykkja fleiri).

Prjónið garðaprjón og aukið svona út í hliðum þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir garðaprjón frá fyrri útaukningu = 229 lykkjur.

* Prjónið 1 GATAUMFERÐ – sjá útskýringu að ofan. Prjónið garðaprjón og haldið áfram með að auka út um 1 lykkju í byrjun á hverri umferð eins og áður þar til prjónaðar hafa verið alls 4 umferðir garðaprjón á eftir gataumferð *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 253 lykkjur.

Prjónið 1 GATAUMFERÐ (= 2 lykkjur fleiri) = 255 lykkjur.

Prjónið garðaprjón og haldið áfram að auka út um 1 lykkju í byrjun á hverri umferð eins og áður þar til stykkið mælist 3 cm frá fyrri gataumferð, það jafngildir ca 14 umferðum garðaprjóni = 269 lykkjur. Ef lykkjufjöldinn er ekki sá sami, er hægt að jafna hann til í næstu útauknings umferð – sjá ÚTAUKNING-2.

Prjónið 1 GATAUMFERÐ (= 2 lykkjur fleiri) = 271 lykkjur.

ÚTAUKNING 4:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 64 lykkjur jafnt yfir. Það eiga að vera 335 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.

Prjónið garðaprjón og haldið áfram að auka út um 1 lykkju í byrjun á hverri umferð eins og áður þar til stykkið mælist 3 cm frá fyrri gataumferð, það jafngildir 14 umferðum garðaprjóni = 349 lykkjur. Stykkið mælist ca 25 cm mælt frá miðju frá uppfitjunarkanti og niður. Það er mikilvægt að lykkjufjöldinn passi vegna mynsturteikningar. Prjónið e.t.v. 2 umferðir garðaprjón til að jafna lykkjufjöldann en hann passar ekki.

Prjónið eftir mynsturteikningu A.1 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 15 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni (A.1 er endurtekinn 23 sinnum) og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er slegið uppá prjóninn jafnframt því sem fellt er af með sléttum lykkjum frá réttu þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn yfir lykkjurnar sem var uppsláttur í mynstri, uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. Passaðu uppá að herða ekki á þræðinum. Ef kanturinn er enn of stífur, notaðu þá grófari prjón til að fella af með. Klippið þráðinn frá og festið enda. Nú er sjalið tilbúið og hægt er að skola það og forma til, ef maður vill – sjá FORMUN í útskýringu að ofan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.04.2021
Útskýring hvernig á að prjóna GATAUMFERÐ hefur verið uppfærð.
Yfirfarið á vefsvæði: 12.11.2021
Leiðrétting: Leiðrétting gerð á milli ÚTAUKNING 3 og ÚTAUKNING 4.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá röngu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð. Það eiga ekki að myndast göt

symbols = örin sýnir hversu margar lykkjur eru í hverri einingu í þessari umferð í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð. Það eiga að myndast göt
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Leslie Rifkin wrote:

Confused how to follow the diagram a.1 vertically???? how does it make a scalloped edge- thanks - leslie

27.09.2020 - 02:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rifkin, the scalloped edge will be made of the pattern worked as shown in diagram. This lesson<:a> explains how to read knitting diagrams. Happy knitting!

28.09.2020 - 09:59

country flag Ellie wrote:

I am having trouble following this pattern. After the initial setup rows, I have 29 sts. For the eyelet row, it says to 'knit and inc over the first 3 stitches' ie. YO, K, YO, K etc..(technically not 3 stitches, it is only 1 until the stitches are made). If I follow the eyelet pattern, with a YO, K, YO followed by the "..*knit 2 tog, 1 yarn over*...until 3 stitches remain", I don't end up with 3 stitches, I end up with 2. Am I misunderstanding or is there an error? Thanks.

03.03.2020 - 10:05

country flag Torill wrote:

Hei! Skal det ikke økes i starten av hver omgang, mens man strikker bølgemønsteret? Da blir det i såfall ikke den samme "skråen" i sidene som resten av sjalet...

21.12.2019 - 18:54

DROPS Design answered:

Hej Torill, nej det går ikke, du må følge økningen i bølgemønsteret som det vises i diagrammet. God fornøjelse!

15.01.2020 - 14:07

country flag Ly wrote:

J’aime beaucoup vos patron mais celui la j’ai bien des problèmes à comprendre le patron La section entre 53 mailles *tricoter 1 rang ajouré je ne comprend pas comment arriver à 85 mailles Et après ont dit 1 rang ajouré ( on augmente 4 mailles ) =89 mailles J’ai besoin des explications

06.12.2019 - 04:13

DROPS Design answered:

Bonjour Ly, vous augmnetez 4 mailles par chaque côte mousse (2 rangs endroit) et 4 mailles par chaque RANG AJOURE (2 rangs pour etre precis). Au debut il y a 53 m. Vous tricotez 1 rang ajoure (4 mailles augmentees, 2 au debut du 1er rang, 2 au debur du 2me rang), 3 cotes mousse (12 mailles augmentees), 1 rang ajoure (4 mailles augmentees), 3 cotes mousse (12 mailles augmentees)> 53+32=85 mailles. Ensuite 1 rang ajouré ( on augmente 4 mailles ) =89 mailles.

30.12.2019 - 10:26

country flag Ly wrote:

Bonjour, vous mentionnez 1rang ajouré =on augmente 4 mailles Dit moi ont augmenté au debout et à la fin du rang j’ai besoin explication

06.12.2019 - 03:43

DROPS Design answered:

Bonjour Ly, vous augmentez 2 mailles au debut du 1er rang, 2 au debut du 2me rang: RANG 1 (= sur l'endroit): Faire 1 jeté, 1 maille endroit, 1 jeté, tricoter à l'endroit les mailles restantes (= on augmente 2 mailles). RANG 2 (= sur l'envers): Faire 1 jeté, 1 maille endroit, 1 jeté, tricoter à l'endroit les mailles restantes (= on augmente 2 mailles). Bon tricot!

30.12.2019 - 10:33

country flag Lise Naud wrote:

Comment faire le point de vagues SVP avez-vous une vidéo qui démontre comment faire. le modele est 203-17.

22.11.2019 - 14:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Naud, vous trouverez ici comment lire un diagramme, le 1er rang se tricote sur l'endroit (lisez de droite à gauche sur l'endroit et de gauche à droite sur l'envers). N'hésitez pas à ajouter des marqueurs entre chaque diagramme pour bien vérifier votre nombre de mailles à chaque fois. Bon tricot!

22.11.2019 - 14:41

country flag Eva wrote:

Guten Tag, habe das Tuch aus Drops Alpaca gestrickt, obwohl ich etwa 8 cm ( ein Rapport ) breiter gestrickt habe, habe nicht ganz 200 gr Wolle bei Nadel Nr 3 gebraucht.Stricke normal,-weder fest noch zu locker.

21.11.2019 - 15:58

DROPS Design answered:

Liebe Eva, stimmt Ihre Maschenprobe? Sie sollen 23 M x 45 Reihe krausrechts = 10 x 10 cm haben. hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

22.11.2019 - 09:13

country flag Brigitte Lahm wrote:

Danke für die schnelle Antwort. Auf dem Bild ist zwischen dem jeweiligen Rapport von A1 eine Lochreihe, die sich nach oben fortsetzt. Wenn ich bei Reihe 5 19 Maschen habe und bei Reihe 6 nur 17 Maschen, dann verschiebt sich doch das ganze Muster. Muss ich zwischen den einzelnen Rapporten A1 rechte Maschen stricken und wie muss ich die senkrechte Lochreihe beginnen. Ich bin eine sehr geübte Strickerin, aber hier passt etwas nicht oder kapiere ich nichts mehr?

25.10.2019 - 16:33

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lahm, die kleine Löcher, die man zwischen den Diagrammen im Foto sieht, kommen sicher aus der Abnahmen am Anfang/Ende von den Diagrammen. Bei der 1. Reihe nehmen Sie 2 M zu = 17 M. Bei der 3. Reihe nehmen Sie 2 M zu = 19 M. Das heißt die Maschenanzahl im Diagram ändert je nach der Reihe (deshalb wird es daneben beschrieben), aber die Diagramme werden immer 23 Mal in der Breite wiederholt (= die Maschenanzahl wird dann je nach der Reihe unterschiedlich sein). Viel Spaß beim stricken!

25.10.2019 - 16:39

country flag Brigitte Lahm wrote:

Was muss ich zwischen den einzelnen Diagrammen stricken? Auf der Abbildung ist da eine Lochreihe nach oben zu sehen. Und wenn die Maschenzahl nach oben weniger wird, verschiebt sich doch da das Muster.Ich habe nun schon x mal aufgetrennt, weil es einfach nicht stimmt.

25.10.2019 - 11:26

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lahm, A.1 stricken Sie hintereinander, dh: 2 M kraus rechts, dann 23 x die 15 Maschen in A.1 stricken und mit 2 M kraus rechts enden = 2 + 23x15 - 2 = 349 M. Oder vielleicht mißverstehen ich Ihre Frage?

25.10.2019 - 13:42

country flag Anke wrote:

Stimmen die Mengenangaben, 100g Alpaca = 100g Lace? Müssten es nicht eher 250g Alpaca sein?

25.10.2019 - 10:26

DROPS Design answered:

Liebe Anke, ja genau, es sollte 250 g DROPS Alpaca sein, Garnmenge wurde korrigiert, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!

04.11.2019 - 11:18