Solveig wrote:
Hej. Jag behöver hjälp med att tyda mönster ,KS-157. Är klar med halsresårdelen, men kommer inte vidare med ok:et. Förstår inte hur jag ska tyda diagrammet A 1. Hoppas på hjälp att komma vidare. Hälsningar Solveig
28.11.2019 - 14:33DROPS Design answered:
Hei Solveig! I diagram A.1 skal det strikkes glattstrikk frem til den sorte prikken, den sorte prikken betyr at det skal lages et kast mellom to masker, på neste omgang skal dette kastet strikkes vridd for å unngå hull. Husk å velge det diagrammet som er ment for den størrelsen du strikker. Her kan du se hvordan man øker med kast og kan man se hvordan man leser diagrammer. Lykke til!
28.11.2019 - 14:47Martina wrote:
Hallo, wenn ich diesen Pullover einfärbig machen möchte, wieviel Garn brauche ich da? Vielen Dank!
16.11.2019 - 12:11DROPS Design answered:
Liebe Martina,leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an dem Laden wo Sie die Wolle gekauft haben, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Viel Spaß beim stricken!
18.11.2019 - 09:02Nita Sands wrote:
A perfect beautiful name you chose. beautiful yarn and beautiful sweater and jacket I enjoy your new collections so much. you have such classy and beautiful things. all the girls who come up with these fabulous items are certainly very talented! thank you so much
23.07.2019 - 05:30Asta Egede Jakobsen wrote:
Er lige gået i gang med story of autumn. Efter halskanten skal man i gang med bære stykket. Mønster A1 kan jeg ikke finde. Som jeg kan læse mig frem til er A1 kun til ærmerne. Jeg kan ikke gennemskue hvordan jeg får de 248 masker til str S i bæredtykket Mvh Og på forhånd tak Asta Egede Jakobsen
22.07.2019 - 20:20DROPS Design answered:
Hej Asta, Jo men du tager ud ifølge diagram A.1 som du finder nederst i opskriften. Sæt gerne et mærke imellem hver diagramovergang, så bliver det tydeligere for dig hvornår du starter forfra i diagrammet igen og da får du alle udtagninger med. God fornøjelse!
09.08.2019 - 10:25Soussou wrote:
Joli pull. Tout tient dans le dégradé de couleurs. La laine Kid-silk est agréable à porter.
21.06.2019 - 15:11Grete Andersen wrote:
Fantastiske farver… Nok strikket i dobbelt garn-.... Hvornår frigives opskriften ??? Mvh Grete
18.06.2019 - 14:37Irena wrote:
Cudowna kombinacja kolorów! Czekam na opis!
13.06.2019 - 15:41Marita wrote:
Fin og enkel model, med den fargekombinasjon blir den helt spesiell.
12.06.2019 - 23:56Véronique wrote:
Très joli dégradé de couleurs, de quoi se réjouir de l'automne !
10.06.2019 - 12:23
Story of Autumn |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-7 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. RENDUR: RÖND 1: 13-13-14-14-15-15 cm (+ 3 cm með stroffi) með 1 þræði grár + 1 þræði ryð (= 2 þræðir). RÖND 2: 13-13-14-14-15-15 cm með 1 þræði öskugrár + 1 þræði ryð (= 2 þræðir). RÖND 3: 13-13-14-14-15-15 cm með 1 þræði öskugrár + 1 þræði malva (= 2 þræðir). RÖND 4: Prjónið síðan með1 þræði grár + 1 þræði dökk fjólublár (= 2 þræðir) til loka. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 2) = 38. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 38. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið á hinni hliðinni (= 4 lykkjur útauknar í umferð). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju lykkjurnar í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚRTAKA-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 51 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 11) = 4,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 3. og 4. hverja lykkju og 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-84-88-92-96-100 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði grár + 1 þræði ryð (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-0-2-4-6-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 78-84-90-96-102-108 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og prjónið mynstur A.1 alls 13-14-15-16-17-18 sinnum í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 247-266-285-304-323-342 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og rendur. Þegar stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm, aukið út um 7-10-9-14-15-24 lykkjur jafnt yfir = 254-276-294-318-338-366 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki og niður. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 36-39-42-46-50-55 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 55-59-63-67-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 72-79-84-92-101-111 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 55-59-63-67-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 36-40-42-46-51-56 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Prjónið síðan ermar og fram- og bakstykki hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 156-170-184-200-222-242 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið (= 3-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 14 cm = 164-178-192-208-230-250 lykkjur. Þegar stykkið mælist 26 cm, aukið út um 36-38-44-44-46-50 lykkjur jafnt yfir = 200-216-236-252-276-300 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er prjónuð í sléttprjóni og haldið er áfram með RENDUR, þ.e.a.s. hver rönd er 13-13-14-14-15-15 cm og síðasta röndin er prjónuð til loka. Setjið til baka 55-59-63-67-68-72 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 61-65-71-75-78-82 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýju lykkjurnar (= 3-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með ca 3-2-2-1½-1½-1 cm millibili alls 6-7-9-10-11-12 sinnum = 49-51-53-55-56-58 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 39-38-36-35-33-32 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 9-11-9-11-8-10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-2 = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-42-40-39-37-36 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Fijona wrote:
Piękne kolory, prosty wzór, wypróbuję na pewno.
14.09.2019 - 11:47