DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cupcake

Prjónuð húfa og hálsskjól úr 1 þræði DROPS Polaris eða 2 þráðum DROPS Andes/Snow með spíralmynstri.

DROPS 151-43
DROPS Design: Mynstur nr po-066
Garnflokkur F
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: S/M – L/XL
Höfuðmál: 54/56 cm - 56/58 cm

Efni:
DROPS POLARIS frá Garnstudio
300-300 gr litur nr 06, ljós beige

Eða notið:
DROPS SNOW frá Garnstudio
250-250 gr litur nr 47, beige

Eða notið:
DROPS Andes frá Garnstudio
300-300 gr litur nr 0619, ljós beige

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M – L/XL
Ummál: ca 54-60 cm
Hæð: ca 18-22 cm

Efni:
DROPS POLARIS frá Garnstudio
200-300 gr litur nr 06, ljós beige

Eða notið:
DROPS SNOW frá Garnstudio
150-250 gr litur nr 47, ljós beige

Eða notið:
DROPS Andes frá Garnstudio
200-300 gr litur nr 0619, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 10 l og 13,5 umf af sléttprjóni með 1 þræði Polaris eða 2 þráðum Andes/Snow með spíralmynstri verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI:
Þegar skipt er um dokku af Polaris er endanum skipt í tvo hluta á þræðinum sem er að ljúka ca 15 cm. Klippið af annan endann og það sama er gert við nýja þráðinn. Leggið endana saman yfir hvorn annan þannig að þykktin verði sú saman og áður og prjónið áfram – með þessu er komið í veg fyrir að samskeytin sjáist.

SPÍRALMYNSTUR:
Prjónið * 4 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Mynstrið fer yfir 6 l og lykkjufjöldinn í stykkinu er deilanlegur með 6 + 1. Þegar prjónað er í hring færist mynstrið til um 1 lykkju til hægri í hverri umf og myndar spíralmynstur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring.

HÚFA:
Fitjið upp 49-55 l á sokkaprjóna nr 8 með Polaris eða 2 þráðum Andes/Snow og prjónið hringinn. Prjónið 1 umf sl yfir allar l. Prjónið áfram SPÍRALMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan þar til stykkið mælist ca 17-18 cm – LESIÐ BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI! Prjónið 1 umf slétt, setjið 6 prjónamerki í byrjun stykkis. Það eru 8-9 l á milli 5 fyrstu prjónamerkja og 9-10 l á undan síðasta prjónamerki. Haldið áfram í sléttprjón JAFNFRAMT í næstu umf er fækkað um 1 l hægra megin við hvert prjónamerki með því að prjóna 2 l slétt saman, endurtakið í annarri hverri umf 4-5 sinnum til viðbótar (= alls 5-6 sinnum) = 19-19 l. Í næstu umf eru prjónaðar 2 og 2 l slétt saman = 10-10 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar og festið vel.

DÚSKUR:
Gerið einn stóran, aðeins lausan dúsk ca 15 cm að þvermáli og saumið efst uppi á húfuna.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 55-61 l með Polaris eða 2 þráðum með Andes/Snow á hringprjóna nr 8 og prjónið í hring. Prjónið 1 umf slétt yfir allar l. Pjónið áfram eftir SPÍRALMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan þar til stykkið mælist ca 17-21 cm – LESIÐ BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI! Prjónið 1 umf slétt og fellið af. Stykkið mælist ca 18-22 cm.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.08.2013
Nýtt efnismagn í húfu: DROPS POLARIS frá Garnstudio 300-300 gr litur nr 06, ljós beige...
SPÍRALMYNSTUR: Prjónið * 4 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Mynstrið fer yfir 6 l og lykkjufjöldinn í stykkinu er deilanlegur með 6 + 1...HÚFA: Fitjið upp 49-55 l á sokkaprjóna nr 8 með Polaris...Það eru 8-9 l á milli 5 fyrstu prjónamerkja og 9-10 l á undan síðasta prjónamerki. Haldið áfram með sléttprjón JAFNFRAMT í næstu umf er fækkað um 1 l hægra megin við hvert prjónamerki með því að prjóna 2 l slétt saman, endurtakið í annarri hverri umf 4-5 sinnum til viðbótar (= alls 5-6 sinnum) = 19-19 l. Í næstu umf eru prjónaðar 2 og 2 l slétt saman = 10-10 l....KRAGI: Fitjið upp 55-61 l með Polaris...
Yfirfarið á vefsvæði: 05.11.2014
DROPS PRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 8 – eða sú stærð sem þarf til að 10 l og 13,5 umf af sléttprjóni með 1 þræði Polaris eða 2 þráðum Andes/Snow með snúningsmynstri verði 10 x 10 cm.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

151-43 Cupcake

Yevgenia, United States

Cupcake

Elisabeth, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (119)

country flag Carol Maitland wrote:

Hi I would like to make the above pattern in Andes or Snow do I use a double strand on both or single strand.I made this in Polaris,the cowl was perfect but the hat was way too big. Thks Carol Maitland.

06.01.2023 - 16:54

DROPS Design answered:

Hello Carol Maitland! This pattern is written for 2 threads in Andes/Snow. If you want to make it lighter, you could always choose stitch count from other tutorials and use this diagonal pattern for lines. Mix and match! Happy knitting!

06.01.2023 - 22:43

country flag Carol Maitland wrote:

Hi just finished this pattern for my daughter,Idid do one less pattern repeat and it turned out better than the last time,smaller.Now my question is I have noticed that the bottom of the cowl and the hat the ends curl,why would this be and do you have a solution.\r\n\r\nThks,Carol

09.07.2022 - 17:53

DROPS Design answered:

Dear Carol, it seems to be a problem with the gauge. This may sometimes happen, especially if you use different needles. You could try to fix it by ironing it with steam to try to flatten it. Happy knitting!

15.07.2022 - 12:39

country flag Carol Maitland wrote:

Hi,I recently made this hat for my daughter,the cowl was fine but the hat was too big.i am new to knitting so what size needle should I use .thks carol.

22.04.2022 - 19:38

DROPS Design answered:

Dear Carol, if the hat is too big due to your knitting gauge, you should use a smaller needle, for example 7mm. However, it may be difficult to work with Polaris with such a small needle. You could instead work 1 less repeat of the 6-stitch pattern, so that the end result is slightly smaller. Happy knitting!

23.04.2022 - 16:37

country flag Ricarda wrote:

Vor einiger Zeit fragte jemand, ob man die Mütze auch "im Muster", statt glatt rechts bis oben stricken kann. Ja, das geht und natürlich auch das Stricken mit einer Rundstricknadel. In der Anleitung DROPS Extra / 0-1045 wird erklärt, wie man im Spiralmuster abnimmt, man muss es nur anpassen und darauf achten, dass die Spirale andersherum läuft!

08.12.2021 - 01:22

country flag Sharon wrote:

Hi! Will be using anders to make the hat. Do I use / threads or one? Thanks for responding. S

21.11.2021 - 09:45

DROPS Design answered:

Dear Sharon, if you are using the Andes yarn, you will need to use two strands at once. Happy Stitching!

21.11.2021 - 14:54

country flag Carol Maitland wrote:

Hi I have made the above pattern.The rep told me to check my tension as I feel the hat is to big.I used 49 stitches for small/medium.Would it be ok to use 7mm instead of the 8mm. Thks carol.

23.10.2021 - 17:51

DROPS Design answered:

Dear Carol, you should always make a sawtch, check your gauge, and recalculate stitch numbers accordingly if necessary. Generally, using smaller needles will result a smaller, but denser piece. Happy Stitching!

24.10.2021 - 03:09

country flag Carol Maitland wrote:

Hi I sent in a question above and the rep told me to check my tension,that being said how about if I use 7 mm dpn for the hat instead of the 8 mm,would this make the hat smaller.thks again.Carol.

23.10.2021 - 01:52

DROPS Design answered:

Dear Carol, using a smaller needle would result a smaller, but at the same time denser, lest soft piece. Happy Stitching!

24.10.2021 - 02:57

country flag Carol Maitland wrote:

Hi I have just finshed this pattern the cowl and hat.My problem is the hat,I used 49 stitches for small/medium and the finished product still looks big.I have yet to get my daughter to try it it may fit.Is it possible to use smaller needles for this pattern.thsk carol.

22.10.2021 - 16:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Maitland, always make sure to check and keep correct tension - read more about tension here. You will find other hat with a spiral pattern here. Happy knitting!

22.10.2021 - 16:55

country flag Elke K wrote:

Frage zum Pompom, der Durchmesser soll 15 cm sein, welchen Durchmesser hat der innere Kreis von der Schablone? Was bedeutet lockerer Pompom? Vielen Dank für Ihre Antwort

10.12.2020 - 17:21

DROPS Design answered:

Liebe Elke, dieses Video zeigt, wie man ein Pompon macht - der innere Kreis kan ca 1/3 kleiner, dh hier 3 cm - aber am besten versuchen Sie, wie Sie es am besten möchten. Viel Spaß beim stricken!

11.12.2020 - 13:04

country flag Nina Writz wrote:

Cupcake spiral hat pattern 151 - 43 The Spiral pattern SPIRAL PATTERN: Work * K 4, P 2*, repeat *-* around. The pattern repeat goes over 6 sts and the stitch number can be divided by 6 + 1. When working in the round the pattern will automatically shift 1 st to the right for each round and creates a spiral pattern. I do know understand how it can spiral and not be a rib stitch. I must be misunderstanding the pattern. Thank you for your time. Nina

03.09.2020 - 21:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Writz, the pattern is worked in the round, without changing the way to work the stitches at the end/beg of the round, this means you will work (K4, P2) all the way, since the pattern is worked over 6 sts and since the number of sts is divisible by 6+1, the (K4, P2) will automaitcally be shifted. See also the video below. Happy knitting!

04.09.2020 - 08:02