DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 151-32
DROPS Design: Mynstur nr ee-473
Garnflokkur E
-----------------------------------------------------------

HATTUR:
Stærð: S/M – M/L
Höfuðmál: ca 54/56 – 56/58 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
50 gr litur nr 23, móbrúnn
50 gr litur nr 48, beige
50 gr litur nr 47, ljós beige

DROPS HEKLUNÁL NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 14 fl verði 10 cm á breiddina.

VETTLINGAR
Stærð: S/M – M/L

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
100 gr litur nr 47, ljós beige
50 gr litur nr 23, móbrúnn
50 gr litur nr 48, beige

DROPS HEKLUNÁL NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 14 fl verði 10 cm á breiddina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLAÐ Í HRING:
Eftir síðustu l í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 l í næstu l (= fyrsta l í næstu umf). ATH: Merkið byrjun á umf með prjónamerki á milli síðustu l í umf og fyrstu l í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með stykkinu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður.

HATTUR:
Heklið 4 ll með heklunál nr 7 með litnum ljós beige og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið framan í lykkjubogann ef ekki stendur annað í umf.
UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLAÐ Í HRING! Heklið 9-9 fl um hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 1 kl í hverja fl umf hringinn.
UMFERÐ 3: Heklið 1 kl og 1 ll í hverja kl umf hringinn = 18-18 l.
UMFERÐ 4: Heklið 1 kl í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 18-18 kl.
UMFERÐ 5: * Heklið 1 kl í fyrstu kl, í næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 27-27 l.
UMFERÐ 6: Heklið 1 kl í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 27-27 kl.
UMFERÐ 7: * Heklið 1 kl í hvora af fyrstu 2 kl, í næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36-36 l.
UMFERÐ 8: Heklið 1 kl í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 36-36 kl.
UMFERÐ 9: * Heklið 1 kl í hverja af fyrstu 3 kl, í næstu kl er heklað 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 45-45 l.
UMFERÐ 10: Heklið 1 kl í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 45-45 kl.
UMFERÐ 11: * Heklið 1 kl í hverja af fyrstu 4 kl, í næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 54-54 l.
UMFERÐ 12: Heklið 1 kl í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 54-54 kl.
UMFERÐ 13: * Heklið 1 kl í hverja af fyrstu 5 kl, í næstu kl er heklað 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 63-63 l.
UMFERÐ 14: Heklið 1 kl í hverja og kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 63-63 kl.
AUKA UMF, HEKLIÐ BARA Í STÆRÐ L/XL: * Heklið 1 kl í hverja af fyrstu 6 kl, í næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 l.
UMFERÐ 15: Skiptið yfir í litinn beige og heklið 1 kl aftan í lykkjubogann í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 63-72 kl.
UMFERÐ 16-17: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann í hverja kl umf hringinn.
UMFERÐ 18: * Heklið 1 kl í hverja af fyrstu 6-7 kl, í næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72-81 l.
UMFERÐ 19: Heklið 1 kl í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 72-81 kl.
UMFERÐ 20: * Heklið 1 kl í hverja af fyrstu 7-8 kl, í næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 81-90 l.
UMFERÐ 21: Heklið 1 kl í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 81-90 kl.
UMFERÐ 22: Skiptið yfir í litinn móbrúnn og heklið 1 kl aftan í lykkjubogann á hverri kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn.
UMFERÐ 23-24: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann á hverri kl umf hringinn.
UMFERÐ 25-28: Heklið 1 kl framan í lykkjubogann á hverri kl umf hringinn.
UMFERÐ 29-31: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann á hverri kl umf hringinn.
UMFERÐ 32: Heklið * 1 kl aftan í lykkjubogann á hverja af fyrstu 8-9 kl, aftan í lykkjubogann á næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 90-99 l.
UMFERÐ 33: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 90-99 kl.
UMFERÐ 34: Heklið * 1 kl aftan í lykkjubogann í hverja af fyrstu 9-10 kl, aftan í lykkjubogann á næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 99-108 l.
UMFERÐ 35-40: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann á hverri kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 99-108 kl.
Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá stroffi og að fingrum.

VETTLINGUR:
LESIÐ HEKLAÐ Í HRING! Heklað er framan í lykkjubogann ef ekki stendur annað í umf. Heklið 28-32 lausar ll með heklunál nr 7 með litnum móbrúnn (ll-umf á að mælast ca 26-30 cm eða heklið að óskaðri lengd, sjálfur vettlingurinn verður ca 5/6 cm minni en ll-umferðin) og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið 1 umf með kl í bogana sem eru á bakhlið ll-umf. Heklið nú 1 kl aftan í lykkjubogann í hverja kl umf hringinn þar til stykkið mælist 4-4 cm = 28-32 kl. Skiptið yfir í litinn beige og heklið 2 umf með kl aftan í lykkjubogann í hverja kl. Heklið nú 1 kl framan í lykkjubogann á hverri kl umf hringinn þar til stykkið mælist 8-8 cm. Heklið 2 umf með kl aftan í lykkjubogann í hverja kl. Skiptið yfir í litinn ljós beige og heklið 2 umf til viðbótar alveg eins. Heklið nú 1 kl í fremri lykkjubogann á hverri kl. Þegar stykkið mælist 15-15 cm er gert op fyrir þumal með því að hekla 5-7 lausar ll í byrjun umf, hoppið yfir næstu 5-7 kl og haldið áfram með kl hringinn eins og áður (opið fyrir þumal kemur til með að vera ca 4-6 cm, þetta mál er hægt að breyta með því að hekla fleiri eða færri ll, hoppið þá yfir jafnmargar kl sem heklaðar eru ll). Í næstu umf er hekluð 1 kl í hverja og eina af 5-7 ll sem heklaðar voru fyrir þumal = 28-32 kl. Haldið áfram hringinn alveg eins þar til stykkið mælist 26-27 cm, eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 2-2 cm til loka). Fellið nú af með því að hoppa yfir aðra hverja kl umf hringinn = 14-16 kl. Heklið 1 umf án þess að fella af, heklið nú 1 umf JAFNFRAMT er lykkjum fækkað með því að hoppa yfir aðra hverja kl umf hringinn = 7-8 kl. Heklið 1 umf til viðbótar með úrtöku alveg eins. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru. Herðið að og festið vel.

ÞUMALL:
Heklið 10-14 kl í kringum opið á þumli með litnum ljós beige (1 kl í hverja og eina af þeim 5-7 sem hoppað var yfir og 1 kl í hverja af þeim 5-7 l sem heklaðar voru). Heklið kl hringinn eins og áður. Þegar þumallinn mælist ca 5-6 cm (eða að óskaðri lengd) heklið 1 umf með kl JAFNFRAMT er lykkjum fækkað með því að hoppa yfir aðra hverja kl = 5-7 kl eftir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru. Herðið að og festið vel.

Heklið annan vettling á sama hátt.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (78)

country flag Anne wrote:

Je ne comprends pas. Il faut crocheter tout le modèle en mailles coulées ?

09.11.2023 - 10:01

DROPS Design answered:

Bonjour Anne, tout à fait, on crochète en mailles coulées, soit dans un seul brin, soit dans le brin arrière seulement pour créer des nervures - cf cette vidéo. Bon crochet!

09.11.2023 - 15:50

country flag Barbara wrote:

Beste lezer, \r\nIn het begin van het patroon staat: STEKENVERHOUDING! Haak alleen in voorste lus van st tenzij anders aangegeven staat. \r\nIs het zo dat je bij dit patroon telkens, vanaf toer 2 al, in de voorste lus haakt?\r\nAlvast dank voor een reactie en groet,\r\nBarbara

15.04.2023 - 20:02

DROPS Design answered:

Dag Barbara,

Voor een groot deel brei je alleen in de voorste lus van de steken en als het anders is dan staat dit duidelijk aangegeven. Bijvoorbeeld in Toer 15 waarbij je halve vasten in de achterste lussen haakt.

17.04.2023 - 21:01

country flag Bernard wrote:

Bonjour et merci pour vos très jolis modèles. Je ne comprends pas quand il y a écrit à la fin d'un rang 9-9 ça signifie 18 mailles ou pas?. Merci pour votre réponse. Bernadette

14.12.2022 - 19:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bernard et merci; ce modèle est décliné en 2 tailles, le 1er nombre s'applique à la 1ère taille et le 2ème à la 2ème taille; jusqu'au tour 14 inclus, vous aurez le même nombre de mailles, à partir du tour 15, le nombre de mailles sera différent pour chaque taille. Bon crochet!

15.12.2022 - 08:39

country flag Karen Roco wrote:

Ik heb het hoedje gemaakt. Leuk om te doen met schattig resultaat. In het begin wel n paar keer geoefend, uithalen opnieuw beginnen. Uiteindelijk ben ik begonnen met een strak gehaakte cirkel van 9 lossen ipv de cirkel van 4lossen met 9 vasten erin. Minder gepriegel en het kleine gaatje later gewoon netjes dicht genaaid.

19.02.2021 - 12:18

country flag Christa Hoffmann wrote:

Hallo, dieser Hut ist sehr schön und ich versuche ihn zu häkeln. Leider scheitere ich in der 22. Reihe....was heißt ZU MAUFWURF WECHSELN????

11.02.2021 - 17:04

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hoffmann, dieser Hut wird mie 3 Farben gehäkelt: zuerst mit hellbeige, Farbe Nr 47 bis zu 14. Runde, dann mit beige, Farbe Nr 48 bis zum 21. Runde und endlich mit Maulfwurf, Farbe Nr23 bis Ende. Viel Spaß beim häkeln!

12.02.2021 - 06:45

country flag Harriet Andersson wrote:

Hej.\r\nKöpte Drops eskimå och virknål nr 7 och tog hem den fina hatten Dublin. Har nu provat 5 gånger men det ser ut som en syrut och jag fattar inte vad jsg gör för fel.

27.09.2020 - 13:00

DROPS Design answered:

Hei Harriet. Vanskelig å si hva som blir feil hos deg. Men husk å marker begynnelsen av omgangen med en merketråd mellom siste maske på omgangen og første maske på neste omgang. Det skal også hekles i fremre maskebue om ikke annet er oppgitt på omgangen. Se gjerne hjelpevideoene til denne oppskriften, kanskje det kan hjelpe. God Fornøyelse!

28.09.2020 - 17:07

country flag Gloria wrote:

What size yarn( in US terms) is the Eskimo yarn ?

25.12.2019 - 17:07

DROPS Design answered:

Dear Gloria, the eskimo yarn is feltable, and has 50 meters in a 50 grams ball. I hope that helps. Happy Crafting!

26.12.2019 - 08:50

country flag Martine wrote:

Wat bedoelt u juist met "haak alleen in voorste lus?" Dank u.

19.12.2019 - 15:38

country flag Martine wrote:

Wat bedoelt u juist met "haak alleen in voorste lus?" Dank u.

19.12.2019 - 15:37

DROPS Design answered:

Dag Martine,

De steken van de vorige toer zien er uit als de letter "V". Normaal haak je in beide lussen (dus beide steeltjes van de letter V) van de steek op de vorige toer, maar nu dus alleen de voorste; degene die naar je toe ligt.

26.12.2019 - 16:45

country flag Christina wrote:

I think the very second round of the hat is wrong! I mean... after I make 9 dc in the next round I am asked to do 1 sl-st in each dc and this is not an increase as we ought to do in a circle for a hat. In this case it increasing like a tower if you know what I mean...???

30.01.2019 - 10:40

DROPS Design answered:

Dear Christina, on the first round you crochet dc, but then you will only crochet slip stitches in the round, so on 2nd round you work 9 sl sts (= 1 sl st in each dc), then start to inc on next round (= round 3). Make sure your tension is right. Happy crocheting!

30.01.2019 - 11:35