Jannicke skrifaði:
Hei, hvordan skal man strikke opp flere masker i halsåpningen enn det som er felt?
08.03.2021 - 12:16DROPS Design svaraði:
Hej Jannicke, der skal også strikkes masker op på siderne af halsen, du kan regne ud hvor mange du mangler og så strikke halvdelen op på hver side. God fornøjelse!
08.03.2021 - 16:00
Camilla Bjerring Kroggaard skrifaði:
Hej, forstår ikke mønster diagrammet. Er der en video som instruerer én i at følge det? Man skal vel ikke fortsætte dobbeltrib gennem hele arbejdet?
26.12.2020 - 00:15DROPS Design svaraði:
Hej Camilla, du strikker 2 masker glatstrik, 2 masker retstrik, 2 masker glatstrik, 2 masker retstrik osv. God fornøjelse!
07.01.2021 - 11:24
Monica Fernlund skrifaði:
Ingår de på en tråd satta maskorna i de 72 maskor som sksll plockas upp för halskragen. Dvs 60 + 12 =72
10.11.2020 - 08:28DROPS Design svaraði:
Hej Monica, ja maskerne fra tråden indgår :)
17.11.2020 - 15:24
Monica Fernlund skrifaði:
Varför väljer man rundstickor?
03.11.2020 - 10:29DROPS Design svaraði:
Hej Monica. Du kan sticka den på vanliga parstickor också om du hellre vill det (förutom halsen då såklart som stickas runt). Mvh DROPS Design
03.11.2020 - 10:33
Vicki Mikulak skrifaði:
The written instructions for the stitch pattern used are incorrect. The chart is correct. It is k2, p2 rib worked on one side and knit all sts on the other side. Please correct this.
27.10.2020 - 16:46DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Mikulak, you first work rib K2 P2 then work diagram, ie A.1 is worked with alternately 2 stitches in stocking stitch (= the first 2 stitches in A.1)/2 stitches in garter stitch (the last 2 stitches in A.1). Hope this will help. Happy knitting!
28.10.2020 - 08:11
Helen Medin skrifaði:
Frågar igen för det kom inget svar sist ...... när släpps detta mönster? Hur många nystan går det år? Med vänlig hälsning, Helen Medin
10.10.2020 - 10:05
Helen Medin skrifaði:
När kommer mönstret på denna? Vill så gärna ha den klar att använda under yllekappan i höst! Hur många nystan går det åt? Tacksam för svar Med vänlig hälsning, Helen Medin
28.09.2020 - 07:57
Snow Sealer#snowsealerneckwarmer |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónað hálsskjól úr DROPS Air og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með áferðamynstri.
DROPS 214-31 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum frá hálsi þannig: Prjónið 2 fyrstu lykkjurnar eins og áður, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum við háls þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman á öxlum. Að lokum er stykkið prjónað í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 44-52 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði Air og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið nú mynstur A.1 með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þær lykkjur í A.1 eiga að passa yfir 2 lykkjur slétt í stroffi. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32-34 cm, fellið af miðju 18-18 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 12-16 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist alls 34-36 cm, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið stroff og mynstur á sama hátt og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 29-31 cm, setjið miðju 12-12 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með áferðamynstur eins og áður og prjónið 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 12-16 lykkjur. Þegar stykkið mælist 5 cm frá þar sem lykkjur voru settar á þráð fyrir hálsmáli (stykkið á nú að mælast 34-36 cm), fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. HÁR KRAGI: Prjónið upp 64 til 72 lykkjur í kringum kanti í hálsmáli á stuttan hringprjón 5,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn – stillið af að sléttar lykkjur séu prjónaðar yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir 12 lykkjur af þræði á framstykki. Þegar kraginn mælist 18 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowsealerneckwarmer eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.