Josette skrifaði:
Désolée, mais j’avais mal lu. Oubliez ma question, tout est très clair.
16.12.2021 - 11:36
Josette skrifaði:
Dans les explications de départ, on indique d’utiliser des aiguilles 4 et 4.5 et dans le tricot, on indique plutôt des 3.5 pour les côtes et ensuite des 4.5. Est-ce préférable de commencer les côtes avec des 3.5 ou des 4 nonobstant la tension. Merci
16.12.2021 - 11:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Josette, la tension est toujours importante, mais les aiguilles ne sont pas les mêmes pour le bandeau (= 4,5 pour les côtes anglaises et 3,5 pour le point mousse) et pour le plastron (4,5 pour les côtes anglaises mais cette fois 4 pour les côtes), tout va dépendre donc quel modèle vous réalisez. l'échantillon est mesuré en côtes anglaises / jersey , avec les aiguilles 4,5. Bon tricot!
16.12.2021 - 14:21
Eve skrifaði:
Does the headband have visible garter stitch in the back or does that get covered by the join? Is there a way to join it so that it is ribbing all the way around?
14.12.2021 - 02:15DROPS Design svaraði:
Dear Eve, correct, there is a total of 4 ridges on mid back of the headband (= 2 ridges after cast on and 2 ridges before casting off). Happy knitting!
14.12.2021 - 07:51
Johanna skrifaði:
Wie breit wird das Stirnband.
25.01.2021 - 19:12DROPS Design svaraði:
Liebe Johanna, es ist ca 10-11 cm breit. Viel Spaß beim stricken!
26.01.2021 - 08:41
Trine Brodsgaard skrifaði:
Beautiful set
17.01.2021 - 10:55
Arianna skrifaði:
Se ce un video o qualcosa che spieghi come lavorare i scaldacollo con pettorina si parte dall'alto ma poi vome si lavorano i due pezzi il davanti e il dietro.Questo chiedevo
22.11.2020 - 18:07DROPS Design svaraði:
Buonasera Arianna, non ci sono video specifici per questo modello, ma se segue le istruzioni indicate riuscirà a realizzarlo. Buon lavoro!
22.11.2020 - 18:18
Arianna skrifaði:
Buongiorno ce un video che fa vedere come lavorare con i ferri circolari in maniera divisa.Grazie attendo risposta.
22.11.2020 - 15:58DROPS Design svaraði:
Buongiorno Arianna, può spiegarci meglio cosa intende "in maniera divisa?". Buon lavoro!
22.11.2020 - 17:40
Gosia skrifaði:
Witam, proszę o potwierdzenie mojego rozumowania, w pozycji materiał, potrzeba jest zakupienia kolor 9020 - 100 g. i kolor 01 -50 g. Czy ta ilość oznacza, że starczy na wykonanie całego kompletu określonego rozmiaru? Dziękuję i pozdrawiam
29.10.2020 - 11:19DROPS Design svaraði:
Witaj Gosiu! Dokładnie tak jest :) Pozdrawiamy!
29.10.2020 - 18:47
Winter Companions#wintercompanionsset |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónað hálsskjól og eyrnaband úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-silk. Allt settið er prjónað í klukkuprjóni.
DROPS 214-44 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR (á við um eyrnaband): Eyrnabandið er í 2 stærðum, en lengdina er hægt að jafna til að óskuðu máli. Til að eyrnabandið sitji fallega á höfði, verður að prjóna ca 7-8 cm styttra mál en ummál á höfði. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1: Prjónið kantlykkju (lykkjur) eins og útskýrt er í uppskrift – þetta á við um í hverri umferð, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju (lykkjum), prjónið 1 lykkju slétt og endið með kantlykkju (lykkjum) eins og útskýrt er í uppskrift. UMFERÐ 2: Prjónið kantlykkju (lykkjur), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju (lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið og prjónið kantlykkju (lykkjur). UMFERÐ 3: Prjónið kantlykkju (lykkjur), * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju (lykkjum), prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og endið með kantlykkju (lykkjum). Endurtakið umferð 2 og 3. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 3: Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Endurtakið umferð 2 og 3. MYNSTUR (á við um hálsskjól): Sjá mynsturteikningu A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. EYRNABAND: Fitjið upp 15-17 lykkjur aðeins laust á prjóna 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 2 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið (kantlykkjunni er lyft af prjóni í byrjun á umferð og prjónið slétt í lok umferðar – þetta á við um hverja umferð). Skiptið yfir á prjón 4,5. Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka) – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í hvorri hlið eins og útskýrt er að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar eyrnabandið mælist ca 46-49 cm frá uppfitjunarkanti – sjá LEIÐBEININGAR, skiptið yfir á prjón 3,5. Prjónið 2 umferðir sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið eins og áður (1. umferð er prjónuð frá réttu). Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjurnar. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið eyrnabandið saman mitt að aftan – saumið með 1 spori í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið og hvort stykki er prjónað til loka fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp aðeins laust 86-98 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca og 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir). Takið frá annan þráðinn af Kid-Silk. Afgangur af stykki er prjónaður með 1 þræði í hvorri tegund (það er fitjað upp svona til að koma í veg fyrir að uppfitunarkanturinn dragi stykkið saman). Prjóni 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Prjónið síðan þannig: * Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 8-9 cm með KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað í hring) – sjá útskýringu að ofan, skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.1 *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú skiptist stykkið í hvorri hlið þannig að bæði stykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan: Færið byrjun á umferðinni um 1 lykkju til hægri eða vinstri, setjið næstu 43-49 lykkjur á hringprjón 4,5 og setjið 43-49 lykkjur sem eftir eru á þráð. Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka) með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið (með því að færa byrjun á umferð þá kemur klukkuprjóni til með að byrja og enda á 1 lykkju slétt í klukkuprjóni innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið – séð frá réttu). Þegar stykkið mælist 29-32 cm frá uppfitjunarkanti, skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan stroff fram og til baka í 2 cm með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið laust af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 4,5 og prjónið alveg eins og fyrri hluti. Hálsskjólið mælist ca 31-34 cm frá uppfitjunarkanti og niður. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintercompanionsset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-44
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.