DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1650.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cocoa Beans Set

Prjónuð húfa, hálsskjól með axlarsæti og vettlingar úr DROPS Snow. Allt settið er prjónað með áferðamynstri.

DROPS 214-23
DROPS Design: Mynstur ee-709
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S/M – M/L

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
350-400 g litur 47, ljós beige

HÚFA:

STÆRÐ:
S/M – M/L
Höfuðmál: Ca 54/56 – 56/58 cm

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
150-150 g litur 47, ljós beige

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: Lengd 40 cm fyrir sléttprjón og áferðamynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: Lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:

STÆRÐ:
S/M – M/L

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
150-200 g litur 47, ljós beige

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: Lengd 40 cm og 60 cm fyrir sléttprjón og áferðamynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: Lengd 40 cm og 60 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

VETTLINGAR:

STÆRÐ:
S/M – M/L
Lengd: Ca 25-26 cm. Ummál: Ca 20-22 cm.

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
100-100 g litur 47, ljós beige

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7: Fyrir sléttprjón og áferðamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6: Fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1650.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1.
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.2.
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.3.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um efst á húfu):
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir axlarsætir á hálsskjóli):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Brotið er uppá neðstu 9 cm á húfunni.

HÚFA:
Fitjið upp 54-56 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með Snow. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 12 cm.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 8 og prjónið sléttprjón hringinn.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 18-19 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið afgang af húfu í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 29-30 cm, byrjar úrtaka efst á húfu og fækkið lykkjum eins og útskýrt er að neðan.
Setjið 6-7 prjónamerki með 9-8 lykkjur á milli prjónamerkja (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar).
Í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 6-7 prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 12-14 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona í 3.-4. hverri umferð alls 3 sinnum á hæðina = 18-14 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð án úrtöku.
Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 9-7 lykkjur eftir.
Klippið frá. Þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 35-37 cm ofan frá og niður. Brjótið uppá neðstu 9 cm á húfunni.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti í hvorri hlið. Síðan skiptist stykkið – bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig til loka.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 50-58 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með Snow. Prjónið stroff hringinn þannig (frá vinstri öxl að aftan, séð þegar hálsskjólið er mátað): * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt * , prjónið frá *-* yfir fyrstu 18-20 lykkjur, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, prjónið frá *-* yfir næstu 22-26 lykkjur, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, prjónið frá *-* yfir þær 4-6 lykkjur sem eftir eru.
Haldið svona áfram með stroff í 10 cm, eða að óskaðri lengd.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru sett á milli lykkja og prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti.
Fyrsta prjónamerkið er sett í byrjun á umferð, teljið 13-13 lykkjur (= bakstykki), 2. prjónamerki er sett á undan næstu lykkju, teljið 12-16 lykkjur (= öxl – 2 lykkjur brugðið sitja mitt í þessum 12-16 lykkjum), 3. prjónamerki er sett á undan næstu lykkju, teljið 13-13 lykkjur (= framstykki), 4. prjónamerki er sett á undan næstu lykkju. Það eru 12-16 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= öxl – 2 lykkjur brugðið sitja mitt á milli þessa 12-16 lykkja). Skiptið yfir á hringprjón 8 og aukið út fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Prjónið sléttprjón yfir 13-13 lykkjur á bakstykki og framstykki og stroff eins og áður yfir 12-16 lykkjur á hvorri öxl. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur í hverri umferð fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki og á EFTIR 1. og 3. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri – útauknar lykkjur eru taldar með í framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. þær 12 axlalykkjur verða áfram þær sömu).
Aukið svona út í hverri umferð alls 8-10 sinnum = 82-98 lykkjur.
Prjónið síðan 4 umferðir eins og áður (með útaukningu eins og áður í hverri af þessum 4 umferðum), en yfir 12-16 lykkjur á hvorri öxl eru prjónaðar 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan = 98-114 lykkjur í umferð á eftir síðustu umferð með útaukningu.
Í næstu umferð eru axlalykkjurnar felldar af, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir á undan 2. prjónamerki, prjónið 3 lykkjur brugðið, fellið laust af 12-16 axlalykkjur, prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir á undan 4. prjónamerki, prjónið 3 lykkjur brugðið og fellið laust af þær 12-16 axlalykkjur sem eftir eru.
Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 37-41 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.2 þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.2 (þannig að mynstrið byrji og endið alveg eins í hvorri hlið) og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni.
Haldið áfram með A.2 fram og til baka með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 32-33 cm frá uppfitjunarkanti (mælt frá miðju að aftan).
Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff frá réttu þannig: 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir stroff, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 34-35 cm frá uppfitjunarkanti mitt að aftan.

FRAMSTYKKI:
= 37-41 lykkjur. Prjónið á sama hátt og bakstykki.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 24-26 lykkjur á sokkaprjóna 6 með Snow. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið A.3 hringinn yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur – A.3 er prjónað alls 2 sinnum á hæðina, prjónið síðan afgang af vettlingi í sléttprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-13 cm, prjónið op fyrir þumal í næstu umferð þannig: Prjónið 6-6 lykkjur eins og áður, setjið næstu 5-6 lykkjur á þráð fyrir þumal, fitjið upp 5-6 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði og prjónið þær 13-14 lykkjur sem eftir eru eins og áður = 24-26 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 22-23 cm. Það eru ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd.
Í næstu umferð er fækkað um 6-6 lykkjur jafnt yfir (prjónið ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman) = 18-20 lykkjur eftir.
Prjónið 2 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 9-10 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 5-5 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 25-26 cm ofan frá og niður.

ÞUMALL:
Setjið til baka 5-6 lykkjur af þræði á sokkaprjóna 7 og prjónið að auki upp 7-8 nýjar lykkjur í kringum op fyrir þumal = 12-14 lykkjur jafnt yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir = 10-12 lykkjur eftir. Prjónið þar til þumallinn mælist ca 6-7 cm (mælt frá þar sem lykkjurnar voru settar til baka á prjóninn). Nú er eftir ca 1 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 3-3 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Þumallinn mælist ca 7-8 cm.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp jafn margar lykkjur og á vinstri vettlingi og prjónið stroff hringinn á sama hátt og á vinstri vettlingi í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið A.3 hringinn á sama hátt og á vinstri vettlingi.
Þegar stykkið mælist 12-13 cm, er prjónað op fyrir þumal í næstu umferð þannig:
Prjónið 13-14 lykkjur eins og áður, setjið næstu 5-6 lykkjur á þráð fyrir þumal, fitjið upp 5-6 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur af þræði og prjónið þær 6-6 lykkjur eins og áður = 24-26 lykkjur í umferð.
Afgangur af vettlingi er prjónaður á sama hátt og vinstri vettlingur.

ÞUMALL:
Prjónið á sama hátt og vinstri þumall.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Lisbet Peirup wrote:

Hej Vedr. strikkeprøve: Hvilket nummer pind er prøven beregnet fra (6 eller 7)? Og er det altid sådan, den største henholdsvis den mindste?

03.03.2023 - 16:53

DROPS Design answered:

Hei Lisbeth. Som regel er det den største pinne str, ja. Den minste brukes som oftes til vrangbord. Strikkefastheten regnes ut fra det plagget strikkes i (ikke vrangbord eller halskant eller lign). mvh DROPS Design

06.03.2023 - 14:26

country flag Patti Latimer wrote:

This English version does not show the A1-A3 Diagrams for some reason- though I found it by referring back to the original (German?) pattern. I am a newish knitter so thank you for all the great free patterns!

04.11.2022 - 19:39

country flag Laura Bartling wrote:

I am working the first mitten and I am confused regarding the thumb hole. The instructions say to cast on 5-6 new stitches on needle over the stitches on the stitch holder. I think that means to cast on to the working needle but would like confirmation.

02.11.2022 - 17:05

DROPS Design answered:

Hi Laura, Yes, you cast onto the working needle. Happy knitting!

03.11.2022 - 07:01

country flag Sharon wrote:

Hi! Having problems with the increase at the shoulders. Did the increases, but I don’t know if am doing this correctly. One eks is where it says to increase after marked nr 1. Would this be at the end of the round. Thanks for your help.

04.01.2022 - 23:27

DROPS Design answered:

Dear Sharon, the first marker is at the beginning of the round and you will increase at the beginning of the round, ie right after first marker. Happy knitting!

05.01.2022 - 08:16

country flag Sharon wrote:

Hi, started the neckwarmer just now. After knitting P2 k1 over 20 stitches and then knitting P2 K1 over 26 stitches I have 12 stitches left. How do I work these 12 stitches stitches? The instructs says to p2 k1 over remaining 6 sts, but there is 12 remaining. Double checked and I do have 58 stitches. Thanks for your quick response.

03.01.2022 - 21:44

DROPS Design answered:

Dear Sharon, work the 58 sts as follows: the first 20 sts in rib (P1, K1), then purl 2, knit 1, work the next 26 sts in rib (P1, K1), purl 2, knit 1 and work the last 6 sts in rib (P1, K1) = 20+2+1+26+2+1+6=58 sts. Happy knitting!

04.01.2022 - 07:24

country flag Kjersti Kristiansen wrote:

Hei Jeg forsto plutselig hva jeg tenkte feil! Jeg strikker rundt og da er jo alt på retten! Beklager. Kjersti

07.12.2021 - 22:06

country flag Kjersti Kristiansen wrote:

Hei Jeg skjønner ikke mønsteret A1. På bildet av luen ser det ut som det er 2 omg rett, vrang over hverandre, men om man skal følge mønsteret helt vil det bli en omgang v, r, så en omgang rett igjen... det blir motsatt på de vrange og likt på de rette. Leser jeg mønsteret feil? Kjersti

07.12.2021 - 22:02

DROPS Design answered:

Hej Kjersti, godt at høre at du fandt ud af det - god fornøjelse :)

08.12.2021 - 08:21

country flag Sabine wrote:

Hallo, es gibt zwei Größen , aber die Skizze mit den Abmessungen scheint zu fehlen. Wie breit sind denn die beiden Größen jeweils?

10.10.2021 - 22:07

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, es gibt beim Kragenschal keine Maßskizze; Vorder- und Rückenteil sind mit 37-41 Maschen ca 34-45 cm breit. Viel Spaß beim stricken!

11.10.2021 - 07:59

country flag Katia wrote:

Hello! I am knitting the beginning of neck warmer, size L. It says here:Cast on 58 stitches. and then it says, work rib 20 stitches + 26 stitches + 6 stitches = 52 stitches! How many should it be, please help!?

13.02.2021 - 21:11

DROPS Design answered:

Hi Katia, There are 20 stitches in rib, then purl 2, knit 1, 26 stitches in rib , purl 2, knit 1 and rib over the final 6 stitches. This adds up to 58 stitches, Happy knitting!

15.02.2021 - 08:00

country flag Diane Villeneuve wrote:

Pour le modèle Cocoa Beans no : ee-709 , J'ai fait le bonnet il est parfait. Je suis rendue au plastron mais je ne saisie pas le départ ? au dessus? et les 6 dernières mailles.

13.01.2021 - 01:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Villeneuve, tricoter *1 maille envers, 1 maille endroit* au-dessus des 18 premières mailles signifie tricoter les 18 premières mailles en côtes 1 maille envers/1 maille endroit. De même pour les 6 dernières mailles que vous allez tricoter en répétant de *-* autrement dit en côtes (1 maille envers, 1 maille endroit) x 3. Bon tricot!

13.01.2021 - 07:29