Gracia skrifaði:
Na het breien van A6 moet ik in de volgende toer A5 breien. Maar hoe doe brei ik een patentsteek in de gedraaid averechte gebreide steken? Want nu krijg ik een gat op die plek als ik het doe zoals bij de andere patentsteken.
22.11.2020 - 19:50
Giulia skrifaði:
Buonasera, Sto facendo la taglia a con baby merino ma alla fine del collo non risultano 136 maglie ma 153 (un gettato dopo un dritto e un rovescio su 102 maglie iniziali significa che aumento 51 maglie). Sbaglio qualcosa o c’è un errore nel modello?
09.09.2020 - 18:43DROPS Design svaraði:
Buonasera Giulia, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto il testo. La sequenza che deve lavorare per gli aumenti sul collo è: * 1 maglia diritto, 1 maglia rovescio, 1 gettato, 1 maglia rovescio *, per cui deve aumentare ogni 3 maglie per un totale di 34 aumenti. Buon lavoro!
09.09.2020 - 21:58
Scent of Rain#scentofrainsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og áferðamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-15 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 360 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 30. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 30. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerkið). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 102-108-114-120-126-132 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 136-144-152-160-168-176 lykkjur. Prjónið 1 umferð með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat). Setjið 1 prjónamerkið mitt í umferð (= mitt að framan). Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið fyrstu umferð þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 2-2-2-3-3-3 cm. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 34-36-38-40-42-44 mynstureiningar með 4 lykkjum). Eftir fyrstu umferð í A.1 eru 170-180-190-200-210-220 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram með mynstur, þ.e.a.s. þegar A.1 hefur verið prjónað til lokað á hæðina, endurtakið 2 umferðir merktar með stjörnu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9-9-10-10-11-11 cm frá prjónamerkið við hálsmál, prjónið A.2 hringinn (= 34-36-38-40-42-44 mynstureiningar með 5 lykkjur). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 306-324-342-360-378-396 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 34-36-38-40-42-44 mynstureiningar með 9 lykkjur). Þegar stykkið mælist 11-12-13-14-15-16 cm frá prjónamerki við hálsmál, prjónið A.4 hringinn (= 34-36-38-40-42-44 mynstureiningar með 9 lykkjur). Eftir fyrsta umferð í A.4 eru 340-360-380-400-420-440 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur, þ.e.a.s. þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 2 umferðir endurteknar með stjörnu. Þegar stykkið mælist 14-15-17-17-19-20 cm frá prjónamerki við hálsmál, prjónið næstu umferð þannig: S, M og L: Prjónið A.5 hringinn – mynstrið á nú að passa fallega yfir hinar lykkjurnar. Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 18-19-21 cm frá prjónamerkið við hálsmál (A.5 mælist ca 4 cm á hæðina). Farið áfram yfir í ALLAR STÆRÐIR! XL, XXL og XXXL: Prjónið 2 umferðir eins og áður – JAFNFRAMT er aukið út um 40-42-44 lykkjur jafnt yfir með því að auka út um 2 lykkjur í annarri hverri einingu með 1 klukkuprjónslykkju + 3 lykkjur brugðið + 1 klukkuprjónslykkja (= sjá A.6 yfir staðsetningu á útaukningu) = 440-462-484 lykkjur. Prjónið síðan A.5 hringinn – mynstrið á nú að passa fallega yfir hinar lykkjurnar. Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 22-24-25 cm frá prjónamerki við háls (A.5 mælist ca 4 cm á hæðina). Farið áfram yfir í ALLAR STÆRÐIR! ALLAR STÆRÐIR: Prjónið 1 umferð slétt, EN klukkuprjónslykkjurnar eru prjónaðar eins og áður (þ.e.a.s. 1 lykkja slétt í lykkju undir næstu lykkju – klukkuprjónslykkjurnar verða aðeins sýnilegar í þessari umferð, en koma til með að falla betur inn í skiptingunni á milli áferðar og sléttprjóns). Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjurnar – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 0-12-20-0-14-28 lykkjur jafnt yfir = 340-372-400-440-476-512 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 50-55-58-64-71-78 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 70-76-84-92-96-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 100-110-116-128-142-156 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 70-76-84-92-96-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 50-55-58-64-71-78 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað síðan hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-232-248-272-304-332 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvorra hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón yfir bakstykki fram að fyrra prjónamerki. Umferðin byrjar nú hér. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 5 sinnum = 232-252-268-292-324-352 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 56-63-65-71-81-86 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 288-315-333-363-405-438 lykkjur. Það er aukið út um lykkjur til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 70-76-84-92-96-100 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-2-2-2-1-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-1½-1½-1 cm millibili alls 13-15-18-21-22-24 sinnum = 50-52-56-58-62-62 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-39-38-36-34-33 cm frá skiptingu. Nú eru eftir cm 4 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-11-10-11-13-13 lykkjur jafnt yfir = 60-63-66-69-75-75 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 45-43-42-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #scentofrainsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.