DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11352.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Heading Back Home

Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-18
DROPS Design: Mynstur cm-128
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-750 g litur 20, ljós grár
100-100-150-150-150-200 g litur 28, púður

Eða notið:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-750 g litur 04, ljós grár
100-100-150-150-150-200 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11352.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði stífari þegar mynsturprjón er prjóna, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, þá kemur flíkin til með að verða of stutt og handvegur of lítill – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna auka umferð með jöfnu millibili í einlitu einingunum.
Ef prjónað er of laust, þá verður flíkin of löng og handvegur of stór, þá er hægt að prjóna færri umferðir með jöfnu millibili í einlitu einingunum.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn með réttum lit miðað við mynsturteikningu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón í grunnlit í mynsturborða, sláið 1 sinni uppá prjóninn með réttum lit miðað við mynsturteikningu (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í útauknings umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður.
Þegar berustykkið er lokið, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-100-104-108-112-116 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum ljós grár Cotton Merino eða Daisy.
Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í ca 2 til 2½ cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 24-28-32-32-36-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 120-128-136-140-148-152 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt).

BERUSTYKKI:
Setjið 4 merkiþræði í stykkið eins og útskýrt er að neðan – merkiþræðirnir eru settir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar og þeir eru notaðir þegar auka á út fyrir laskalínu.
Teljið 25-27-29-30-32-33 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 11 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 49-53-57-59-63-65 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 11 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju). Nú eru 24-26-28-29-31-32 lykkjur eftir á bakstykki eftir síðasta merkiþræði.
Að auki er sett 4 prjónamerki í stykkið – þessi 4 prjónamerki eru sett í miðjulykkju á framstykki og bakstykki og í miðjulykkju á hvorri ermi.
Þessi prjónamerki eru notuð þegar telja á út hvar mynstrið á að byrja.
Prjónið síðan MYNSTUR hringinn, JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkiþræðina eins og útskýrt er að neðan. Lesið allan kaflann um berustykki áður en prjónað er áfram! ATH: Berustykkið er nú mælt frá merki mitt að framan.

MYNSTUR:
Klippið þráðinn frá. Byrjið umferð á undan fyrsta merkiþræði (= hægri öxl að aftan, séð þegar flíkin er mátuð).
Prjónið 0-2-4-6-8-10 umferðir sléttprjón með litnum ljós grár.
Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 á ermum, framstykki og bakstykki – teljið frá miðjulykkju í A.1 hvar mynstrið á að byrja, þ.e.a.s. miðjulykkja í A.1 á að passa við lykkju með prjónamerki í á ermum og framstykki/bakstykki. Mynstrið kemur til með að vera samhverft í hvorri hlið á ermum og í hvorri hlið á framstykki/bakstykki, en ekki hvoru megin við 4 laskalínur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár til loka.

LASKALÍNA:
JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir kanti í hálsmáli, aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 24-26-28-33-35-37 sinnum á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 312-336-360-404-428-448 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram, en án útaukninga þar til berustykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki á eftir kanti í hálsmáli mitt að framan.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 1-1-2-2-1-0 lykkjum á undan prjónamerki í byrjun á umferð, setjið næstu 61-65-71-81-83-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 95-103-109-121-131-139 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 61-65-71-81-83-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið sléttprjón yfir þær 95-103-109-121-131-139 lykkjur sem eftir eru á bakstykki. Takið frá alla gamla merkiþræði og prjónamerki. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 202-218-234-258-282-302 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – það á að nota þá síðar þegar auka á út í hvorri hlið á fram- og bakstykki.
Prjónið sléttprjón yfir lykkjur undir ermi fram að fyrri merkiþræði.
Umferðin byrjar nú hér. Prjónið síðan sléttprjón hringinn með litnum ljós grár.
Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – sjá ÚTAUKNING-2.
Aukið svona út með 7 cm millibili alls 4 sinnum á hæðina = 218-234-250-274-298-318 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 33 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm til loka. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 54-58-62-70-74-78 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 272-292-312-344-372-396 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

ERMI.
Setjið 61-65-71-81-83-85 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 - prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-79-89-93-97 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-1 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferðina við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós grár.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá AFFELLING. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 11-12-15-19-20-21 sinnum = 45-47-49-51-53-55 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-40-38-37-35-34 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (peysan á myndinni er með aðeins lengri ermum sem brotið er uppá – ef þú vilt hafa uppábrot, prjónið ermina 4 cm lengri áður en stroffið byrjar). ATH: Það er styttra má á ermi í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykki.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-9-7-9-7-9 lykkjur jafnt yfir = 52-56-56-60-60-64 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 45-44-42-41-39-38 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = ljós grár
symbols = púður
symbols = miðjulykkja
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Inez wrote:

Witam. Ja przychodzę z pytaniem czy ten wzór na swetr lub jakikolwiek inny można zrobić w wydaniu męskim, damskim i dla dzieci? To byłby mój pierwszy swetr i chce wiedzieć czy swetry się da dostosowac. Z góry dziekuje

01.10.2023 - 11:16

DROPS Design answered:

Witaj Inez, często nasze wzory są w podobnych wydaniach w wersji damskiej, męskiej lub dziecięcej. W wyszukiwarce możesz wybrać swetry dla mężczyzn, z żakardem, z tej samej grupy włóczek i zobaczysz co mamy w ofercie. Generalnie sweter męski różni się od damskiego tym, że ma szersze ramiona, dłuższy tułów i rękawy. W razie pytań pisz. Pozdrawiamy!

02.10.2023 - 09:20

country flag Matilde wrote:

Buongiorno, mi sto cimentando in questo modello per me un po' complesso. Non ho capito bene se nel raglan gli aumenti vanno fatti a tutti i giri: dal testo mi sembrerebbe di sì, ma non sono certa. Grazie della disponibilità e complimenti per questo bellissimo sito!

05.05.2023 - 22:50

DROPS Design answered:

Buonasera Matilde, gli aumenti per il raglan sono ogni 2 giri. Buon lavoro!

06.05.2023 - 22:32

country flag Ragnhild wrote:

Hvordan øker jeg og hekler mønster samtidig uten at mønsteret forskyver seg? Må jeg telle ut ifra midten både på bryst og erme for å få det riktig? Og «improvisere» i raglan kantene for å få det riktig? Eller kan jeg bare telle ut ifra erme også blir det riktig på brystet om jeg legger økningen med i mønsteret?

12.04.2022 - 20:22

DROPS Design answered:

Hej Ragnhild, du udgår fra mønsteret. Tager ud til raglan på samme sted hver gang og strikker de nye masker løbende ind i det mønster du allerede strikker :)

22.04.2022 - 12:01

country flag Margaret Holmwood wrote:

How do I work the pattern when increasing stitches for the raglan? I have never worked a jumper from the neck down before!

25.01.2022 - 16:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Holmwood, the new stitches increased should be worked into A.1 so that there will be always more stitches worked with the colour pattern. Happy knitting!

26.01.2022 - 08:38

country flag Amélie Aupeix wrote:

Je précise ma question : je vais débuter le jacquard et on me dit de calculer où je dois commencer pour avoir partout la maille centrale au milieu de chaque partie mais ça ne tombe pas bon... merci de votre aide

26.10.2021 - 14:12

DROPS Design answered:

Bonjour Amelie, vous placez les marqueurs pour les raglans entre les mailles selon les explications du modele. 4 autres marqueurs - au milieu des manches, dos et devant sont places dans une maille (pas entre les mailles). P ex. dans la taille S - dans 6-eme maille des manches et dans 25-eme mailles du dos et devant (en comptant du marqueur). Le marqueur du debut du tour (place au debut de l'ouvrage) sera deplace: il n'est plus entre 2 mailles, mais dans la premiere maille du tour. Bon tricot!

26.10.2021 - 16:42

country flag Mandy Pittman wrote:

Very pretty. Looking forward to getting the yarn

23.05.2021 - 11:06

country flag Laila Jensen wrote:

Passer garn mængden? Jeg strikker XXXL og er 2/3 i mønstret. Jeg har ikke brugt det første nøgle i mønsterfarven færdigt endnu og der er anført at der skal bruges 4! Så stor forskel kan ikke skyldes strikkefasthed? Jeg har desværre før oplevet med flere af jeres opskrifter, at jeg sidder tilbage med adskillige nøgler "rester".

11.02.2021 - 10:43

DROPS Design answered:

Hej Laila, jo men hvis du strikker den største størrelse og hvis du strikker i DROPS Cotton Merino, så kommer du til at bruge mere end 1 nøgle... husk at mønsterfarven følger med hele vejen rundt i hele mønsterpartiet på hele bærestykket. God fornøjelse!

16.02.2021 - 14:07

country flag Myriam Gosset wrote:

Magnifique

06.10.2020 - 14:26

country flag Ingela Andersson wrote:

Mönstret syns inte i text.

25.09.2020 - 22:18

DROPS Design answered:

Hej Ingela. Tack för info, nu finns mönstret även på svenska. Mvh DROPS Design

29.09.2020 - 07:10

country flag Olena Kostrytsia wrote:

Have a desire to knit it! lovely color!

04.06.2020 - 15:39