Tiina Telen-Päivärinta skrifaði:
Tähän kohtaan selvennystä. Missä se kantapään merkki on? Teen pienintä kokoa, enkä osaa muuten arvioida pituutta. Ohje: Neulo kunnes työn pituus kantapään merkistä mitattuna on n. 8-9-9½ (11½-12½) cm (työhön neulotaan vielä n. 2-2-2½ (2½-3½) cm).
24.10.2024 - 10:12DROPS Design svaraði:
Hei, merkki on kantapään ulkoreunan kohdalla. Eli jalan pituus alkaa tästä.
24.10.2024 - 19:06
Kris skrifaði:
Teenkö jotain väärin kun näyttää siltä, että ohjeen mukaan 13 silmukan molemmin puolin olevat kavennukset menisivät väärään suuntaan? Normaalisti ennen jalkapöytää kavennetaan 2o yhteen, nyt päinvastoin sen jälkeen. Vai pitääkö työssä neuloa nurjaa silmukoiden poimimisen jälkeen?
10.08.2022 - 01:52DROPS Design svaraði:
Hei, tässä mallissa neulotaan 2 silmukkaa kiertäen oikein yhteen ennen jalkapöytää ja jalkapöydän jälkeen neulotaan 2 silmukkaa oikein yhteen.
04.10.2022 - 16:57
Mafalda Silva skrifaði:
Gosto muito desta manta, obrigada
19.01.2022 - 00:03
Alexandra skrifaði:
Tusen takk for nok en flott oppskrift!!! ♥️ men jeg lot fletten gå helt ned til tuppen, ble fint det også..😊♥️
10.10.2021 - 16:18
Marit skrifaði:
Jag tycker inte att mitt mönster stämmer
21.10.2020 - 03:45DROPS Design svaraði:
Hej Marit. Vad är det som inte stämmer och vilken storlek stickar du? Mvh DROPS Design
21.10.2020 - 09:46
Tip Toe Cable#tiptoecablebooties |
||||||||||
|
||||||||||
Prjónaðir sokkar fyrir börn með köðlum úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð 1 mánaða – 4 ára.
DROPS Baby 33-34 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-6 (6-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-6 (6-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-4-5 (5-5) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-4-5 (5-5) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 10-10-12 (12-12) lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Staðsetning á mynstri A.1 er ekki sú sama á þessum tveimur sokkum. HÆGRI SOKKUR: Fitjið upp 31-31-35 (35-35) lykkjur á sokkaprjóna 3 með Merino Extra Fine. Prjónið þannig: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* yfir fyrstu 18-18-22 (22-22) lykkjur, A.1 (= 8 lykkjur), 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt. Haldið áfram með þetta mynstur í 2 cm, prjónið síðan þannig: 18-18-22 (22-22) lykkjur sléttprjón, A.1, 5 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram þar til stykkið mælist 7-8-9 (10-11) cm. Haldið eftir fyrstu 18-18-22 (22-22) lykkjum á prjóni (= fyrir hæl) og setjið síðustu 13 lykkjur á þráð (= mitt á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjurnar í 3-3½-4 (4-4½) cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Takið síðan upp 7-8-9 (9-10) lykkjur hvoru megin við hæl og lykkjur frá þræði á fæti eru settar til baka á prjóninn = 37-39-43 (43-45) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 13 lykkjur á fæti þannig: Þær 2 síðustu lykkjur á undan 13 lykkjum eru prjónaðar snúnar slétt saman og 2 fyrstu lykkjur á eftir 13 lykkjum eru prjónaðar slétt saman. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 5-6-7 (6-6) sinnum = 27-27-29 (31-33) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 8-9-9½ (11½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 2-2-2½ (2½-3½) cm). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, þannig að það verða 14-14-15 (16-17) lykkjur á fæti og 13-13-14 (15-16) lykkjur undir fæti. Fækkið síðan lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð: 2-2-3 (3-5) sinnum og síðan í hverri umferð: 3-3-3 (3-2) sinnum = 7-7-5 (7-5) lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru á prjóni, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. VINSTRI SOKKUR: Fitjið upp 31-31-35 (35-35) lykkjur á sokkaprjóna 3 með Merino Extra Fine. Prjónið þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið yfir fyrstu 23-23-27 (27-27) lykkjur (endið með 1 lykkju slétt), A.1 (= 8 lykkjur). Haldið áfram með þetta mynstur í 2 cm, síðan er prjónað þannig: 23-23-27 (27-27) lykkjur sléttprjón, A.1. Prjónið síðan áfram á sama hátt og á hægri sokk. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tiptoecablebooties eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.