FRANCINE SCHULTZ skrifaði:
Merci beaucoup pour votre réponse très rapide MERCI
22.12.2020 - 16:56
SCHULTZ skrifaði:
J'aimerai réaliser cette jupe mais je ne comprend pas les augmentations quand vous mettez de chaque coté des sections en mailles endroit du devant et du dos ce qui fait donc pour moi 56 mailles (L)? . Quand je regarde le modèle c'est bien au milieu que c'est augmenté -2 de chaque coté ce qui agrandit bien la largeur et on ne touche pas au 44 mailles des côtes anglaises ? Merci pour votre réponse S V PL ? Belles fêtes de fin d'année aussi à vous Salutations Francine
22.12.2020 - 16:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Schultz, les sections en mailles endroit du devant et du dos de la jupe sont celles qui sont au début (= 14+3 = 17 m en taille L) et la fin du tour (15+4 = 19 m) = dos et celles du milieu du tour (= 29 + 7= 36m), autrement dit, celles tricotées à l'endroit entre les A.1. Bon tricot!
22.12.2020 - 16:40
Astrid skrifaði:
Hvordan lager jeg patentmaske? Hvordan slipper jeg maskene fra venstre pinne?
30.11.2020 - 11:59
Karin skrifaði:
Superfin! Hade gärna gjort den ca 5-10 cm längre, funkar det?
22.11.2020 - 13:58DROPS Design svaraði:
Hej Karin, absolut, du strikker den ovenfra og ned, så det er bare at fortsætte inden de sidste økninger og A.1. God fornøjelse!
23.11.2020 - 15:37
Eija Pitkänen skrifaði:
Voinko korvata ohjeen patenttineuleosuuden jollakin helpommalla neuloksella taikka jättää kokonaan pois? Kuinka mall käyttäytyy silloin (isonee? pienenee?)
24.10.2020 - 16:40DROPS Design svaraði:
Hei, vaihtoehtoisesti voisit neuloa patenttineuleosuuden kohdalla joustinneuletta.
30.11.2020 - 14:19
Birgitte Graven skrifaði:
Det er en sød nederdel, men det kunne være rart med en opskrift, der henvender sig mere til et lidt ældre publikum. Det er også en skam, at I ikke længere bruger en model, der nok afspejler jeres kunders udseende mere. Når jeg ser på kunderne i strikkebutikker er der i hvert fald her en overvægt i 50+-alderen. Det var så dejligt, da I også havde sådan en model.
07.06.2020 - 16:50
Swing Time#swingtimeskirt |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónað pils úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 218-24 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 12 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á pilsi): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 lykkju slétt hvoru megin við einingu með sléttprjóni framan og aftan á pilsi (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. PILS: Fitjið upp 128-132-148-160-184-196 lykkjur á hringprjón 3,5 með Nepal. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 12-12-14-18-22-24 lykkjur og aukið jafnframt út um 3-3-3-4-4-5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið A.1 yfir næstu 40-40-44-44-48-48 lykkjur (= 10-10-11-11-12-12 mynstureiningar), prjónið fyrstu lykkju í A.1, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 23-25-29-35-43-49 lykkjur og aukið jafnframt út 5-6-7-8-8-10 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.1 yfir næstu 40-40-44-44-48-48 lykkjur (= 10-10-11-11-12-12 mynstureiningar), prjónið fyrstu lykkju í A.1, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 11-13-15-17-21-25 lykkjur og aukið út 2-3-4-4-4-5 lykkjur jafnt yfir = 138-144-162-176-200-216 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram hringinn með mynstri. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir með mynstri, byrjar útaukning hvoru megin við einingar með sléttprjóni framan og aftan á pilsi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 3. hverri umferð 6-7-8-8-9-10 sinnum og í 6. hverri umferð 2-2-2-2-2-2 sinnum = 170-180-202-216-244-264 lykkjur (= 44-49-56-63-73-83 lykkjur slétt í hverri og einni af 2 einingum með sléttprjóni í umferð). Haldið áfram með mynstur og sléttprjóni þar til pilsið mælist 38-40-42-44-46-48 cm frá uppfitjunarkanti og niður mitt að aftan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 7-6-7-8-6-8 lykkjur jafnt yfir 44-49-56-63-73-83 lykkjur í sléttprjóni framan og aftan á pilsi (= 51-55-63-71-79-91 lykkjur) = 184-192-216-232-256-280 lykkjur. Prjónið fram að fyrstu klukkuprjónslykkju í annarri hlið. Núna er þetta byrjun á umferð. Prjónið kant þannig: Prjónið A.1 hringinn alla umferðina (= 46-48-54-58-64-70 mynstureiningar í umferð) þar til kanturinn mælist ca 5 cm – stillið af að endað sé eftir næst síðustu umferð í mynsturteikningu (þ.e.a.s. fellið af í umferð með klukkuprjónslykkjum). Fellið af þannig – sjá AFFELLING: * Stingið hægri prjón í gegnum lykkju undir lykkjur frá fyrri umferð, prjónið 1 lykkju slétt og fellið hana af, fellið af næstu 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Pilsið mælist ca 43-45-47-49-51-53 cm. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #swingtimeskirt eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.