DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mint Tulip

Prjónað pils úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-38
DROPS Design: Mynstur sk-009
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-200-200-200-250 g litur 07, ljós sægrænn

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 60 cm fyrir kant fyrir saum og kant.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

FYLGIHLUTIR: Ca 70-120 cm teygja.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 144 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 12.
Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Fyrst er prjónaður kantur fyrir saum sem síðar er þrædd teygja í gegn. Síðan er prjónað áfram með gatamynstri og garðaprjóni.

KANTUR FYRIR SAUM:
Fitjið upp 144-156-168-180-204-228 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 4 umferðir sléttprjón. Prjónið 1 umferð brugðið (= uppábrot). Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

PILS:
Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan A.1 (= 12 lykkjur) alls 12-13-14-15-17-19 sinnum hringinn. Í 11. umferð og 41. umferð færist umferðin til um 1 lykkju þannig að gatamynstrið gangi jafnt upp.
Í umferð merktri með ör er aukið út þannig.
ÚTAUKNING 1: Aukið út um 12-12-12-24-24-24 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 156-168-180-204-228-252 lykkjur. A.1 er þá endurtekið 13-14-15-17-19-21 sinnum á breidd.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
ÚTAUKNING 2: Aukið út um 12-24-24-24-24-24 lykkjur jafnt yfir = 168-192-204-228-252-276 lykkjur. A.1 er þá endurtekið 14-16-17-19-21-23 sinnum á breidd.
ÚTAUKNING 3: Aukið út um 12-12-24-24-24-24 lykkjur jafnt yfir = 180-204-228-252-276-300 lykkjur. A.1 er þá endurtekið 15-17-19-21-23-25 sinnum á breidd
ÚTAUKNING 4: Aukið út um 12-12-12-12-12-24 lykkjur jafnt yfir = 192-216-240-264-288-324 lykkjur. A.1 er þá endurtekið 16-18-20-22-24-27 sinnum á breidd.
Endurtakið A.1 á hæðina og aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir í hverri umferð með útauknings ör alls 2-1-2-1-1-1 sinnum til viðbótar = 216-228-264-276-300-336 lykkjur. A.1 er þá endurtekið 18-19-22-23-25-28 sinnum á breidd. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 39-41-43-45-47-49 cm frá prjónamerki, passið uppá að endað sé fallega miðað við mynstur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið síðan af með sléttum lykkjum. Pilsið mælist ca 40-42-44-46-48-50 cm frá prjónamerki.

FRÁGANGUR:
Brjótið kant fyrir saum að röngu og saumið fallega niður, látið vera eftir smá op svo hægt sé að þræða teygju í gegn.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi þær slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = útaukningsumferð - sjá útskýringu í uppskrift
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = í þessari umferð er síðasta lykkja prjónuð frá fyrri umferð eins og fyrsta lykkjan í þessari umferð (= umferðin færist til um 1 lykkju), færið umferðina til baka með því að prjóna fyrstu lykkju í umferð 1 sinni til viðbótar í lok umferðar
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (55)

country flag Florence wrote:

Je suis désolée, je ne suis pas sûre d'avoir vraiment compris... J'arrive à la fin du tour 11 en tricotant ensemble les deux dernières mailles du motif du tour 10 (1 maille et 1 jeté). Cela me donne ma 11eme maille du dernier motif du tour 11. Dois-je simplement tricoter deux fois la prochaine maille qui est la première maille du tour en cours (soit le tour 11) pour revenir sur mes pattes? Faut-il bien décaler une seconde fois? Merci d'avance

01.03.2023 - 18:24

DROPS Design answered:

Bonjour Florence, le 11ème tour commence par la dernière maille du tour 10: faites 1 jeté (= dernière maille du tour désormais), tricotez la dernière m et la 1ème m du tour ensemble (diminution), puis continuez le diagramme jusqu'à ce qu'il reste 1 m, faites 1 jeté (dernière m du motif), et tricotez cette dernière maille avec la 1ère m du A.1 suivant et continuez ainsi tout le tour. À la fin du tour, tricotez le jeté à l'endroit (c'est la dernière m du tour), et le tour commence après ce jeté = comme avant. Bon tricot!

02.03.2023 - 10:38

country flag Florence wrote:

Bonjour, Il y a un mot manquant au niveau de la légende du diagramme sur l'explication de l'étoile : "décaler le tour de nouveau en tricotant a l'endroit la ...........(?) Encore une fois a la fin du tour." Je suis désolée je ne sais pas remplir ce blanc... Merci d'avance pour l'éclaircissement.

01.03.2023 - 15:42

DROPS Design answered:

Bonjour Florence, oups, il s'agit de la maille que l'on doit tricoter à la fin du tour (on commence le tour 1 m avant la fin du tour, puis la dernière maille de chaque motif se tricote avec les 2 premières mailles du motif suivant; après ce tour, les tours commencent de nouveau comme avant (après le jeté). Bon tricot!

01.03.2023 - 17:18

country flag Heidi wrote:

Hej, når jeg skal gentage diagrammet a1 og skal tage ud fra 192 masker til 216 masker - skal jeg så lave en ny udregning? For kan ikke få det til at passe med at slå om efter hver 12. Maske (fra 192 til 204)??

24.12.2022 - 09:03

DROPS Design answered:

Hei Heidi. Det skal ikke økes etter hver 12. maske, men jevnt fordelt. I str. S har du 192 masker etter 4. økning, deretter skal du repetere A.1 i høyden og øke 12 masker jevnt fordelt på hver omgang med økepil 2 ganger. Da blir det 192 + 12 = 204 ved 1.økepil og 204 + 12= 216 masker ved 2. økepil. mvh DROPS Design

02.01.2023 - 10:31

country flag Liesbeth wrote:

Het rokje krult onderaan om. Waar kan dat door komen en wat zou ik eraan kunnen doen? Ik heb het gebreid met Drops Sky, naald nr 4, heb het telpatroon 1x herhaald + 3 toeren recht en twee ribbels en toen recht afgekant, precies zoals in de beschrijving.

30.09.2022 - 18:28

DROPS Design answered:

Dag Liesbeth,

Dat komt omdat er geen boord aan de onderkant zit. Je zou het heel voorzichtig kunnen opperssen met het strijkijzer. Je legt dan een natte theedoek over de rand en dept heel voorzichtig met het strijkijzer op de theedoek (waar de rok dus weer onder zit). Let er op dat je dit echt heel erg voorzichtig doet, anders kun je de structuur van het breiwerk vernielen.

01.10.2022 - 17:48

country flag Karine Moyne wrote:

Bonjour Combien de pelotes il faut pour faire la jupe en taille S Merci de votre réponse Cordialment

01.04.2022 - 12:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Moyne, vous trouverez les quantités indiquées, au poids, sous l'en-tête, autrement dit, il faudra ici en taille S 150 g DROPS Sky/50 g la pelote = 3 pelotes. Pensez à vérifier votre échantillon. Bon tricot!

01.04.2022 - 13:14

country flag Stina Krumpholz wrote:

Hallo liebes garnstudio Team, ich habe den Rock nun fertig gestrickt und er ist toll geworden. Ich habe nun jedoch ein Problem mit dem Tunnel für das gummi. Mit welchem Stich soll man die Blende annähen? Ich habe Angst, dass ein normaler Rückstich nicht elastisch genug ist und dann der Rock nicht mehr passt? Generell wäre ein Video dazu auch total hilfreich. Vielen Dank für die tollen Anleitungen Mfg stina krumpholz

10.02.2022 - 13:55

DROPS Design answered:

Liebe Frau Krumpholz, dieses Video zeigt, wie man so einen Tunnel annäht, beachten Sie nur, daß der Faden die Arbeit nicht zusammen zieht, so daß der Rand immer noch elastisch bleibt. Viel Spaß beim fertigstellen!

10.02.2022 - 16:12

country flag Captain Bumblebee wrote:

Hello! When sewing down the lining, where should the cast on edge line up with the front? The lining has 6 rounds (1 ridge and 4 rounds stockinette) on 3.5 mm needles before the turning round, then the front has 4 rounds (2 ridges) on 3.5 mm needles after the turning round, followed by starting A.1 on 4.0 mm needles (1st 3 rounds are all knit). Thanks so much!

06.01.2022 - 22:03

DROPS Design answered:

Dear Captain Bumblebee, the lining is the folding edge to later introduce a thread of elastic. This is folded on the purl row after 4 rounds in stocking stitch. There is no side seam. Happy knitting!

10.01.2022 - 20:39

country flag Daria wrote:

Hallo, wie wird denn die allererste Masche in der 11. und 41. Runde gestrickt? Beginnt man mit dem Umschlag? Mir ist das Verschieben des Musters noch nicht klar. Da ist ja noch keine Zunahme erfolgt, wie muss das Muster dann aufgehen? Und beim 2. Durchgang des Musters fehlt bei den Größen, wo 2x steht, eine weitere Maschenanzahl, richtig? Also bei S wird mit 18 und dann noch mit 20 M gearbeitet, oder?

07.12.2021 - 20:19

DROPS Design answered:

Liebe Daria, bei der 11. und 41. Runde beginnt der Runde 1 Masche davor, dh die 10. /40. Runde stricken bis 1 Masche übrig ist, hier beginnt der 11./41. Runde: der Umschlag ist jetzt die letzte Masche der Runde und die Abnahmen (= letze Masche + die erste Masche der Runde) die 1. Masche, stricken Sie über 12 M wie zuvor, die letzte Masche A.1 wird mit der 1. Masche von dem nächsten Rapport gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

08.12.2021 - 07:53

country flag Liv wrote:

Veldig uklart svar på mitt spørsmål. Jeg spurte om hva som er første maske i omgang 12, første kastet eller de to maskene som ble slått sammen til en maske i begynnelsen av omg 11. Et ganske enkelt spørsmål som ga meg et forvirrende svar.

12.07.2021 - 19:11

DROPS Design answered:

Hej Liv, de to som blev til en! Prøvede bare at forklare det, så du selv kan se det ;)

13.07.2021 - 15:05

country flag Liv wrote:

I omgangen hvor det forskyes 1 maske starter man med et kast og så felling av en maske, ved neste omgang skal da kastet være første maske eller er det den felte masken som er er første maske

05.07.2021 - 14:13

DROPS Design answered:

Hej Liv, på næste mønster omgang sørger du for at de 3 masker mellem omslagene strikkes sammen til en (og så med et omslag på hver side af denne maske). God fornøjelse!

12.07.2021 - 15:14