Ag Urquhart skrifaði:
Are the wrong side rows shown on the diagram...or is the diagram all right side rows with doing purl in every other row...hope this makes sense
10.02.2021 - 20:23DROPS Design svaraði:
Dear Ag Urquhart , the diagrams show every row of the pattern. Every second row is knitted "as it seen" or "covered", that means from teh wrong side the stitches of the cables are purled, the other stitches are knitted. Happy Knitting!
11.02.2021 - 00:37
Christine Pedersen skrifaði:
Hej Når der i bagstykket skal skal lukkes af til halsudskæring og skrå skulder, skal arbejdet så deles med halsudskæring en i midten? Kan kun finde videoer hos jer, hvor maskerne sættes på tråd uden at blive lukket af. Har I en video, der passer denne opskrift?
05.02.2021 - 23:23DROPS Design svaraði:
Hei Christine. Vi har ingen video til akkurat denne halsfellingen. Men du skal på 1. pinne fra retten felle 10 masker jevnt fordelt over de midterste 42-42-44-44-46-46 maskene. Så strikkes det 1 pinne fra vrangen, neste pinne fra retten skal de de midterste 24-24-26-26-28-28 maskene felles av til hals og nå strikker du hver skulder for seg selv, SAMTIDIG som det felles til skrå skulder. mvh DROPS design
12.02.2021 - 10:42
Christine Pedersen skrifaði:
Hej Efter de fire pinde Rib i den nederste kant, skal der strikkes en pind vrang, hvor der tages 61 masker ud ved omslag. Når jeg så på retsiden skal strikke de 61 masker drejet for at undgå huller, men stamtidig strikke mønster a.2, hvordan gør jeg det i de masker, der i mønsteret skal være vrang? Har I evt. en video, der viser dette?
18.01.2021 - 01:04DROPS Design svaraði:
Hei Christine. Du strikker kastet vrang i den bakre maskebuen for å unngå å få hull/blir et lite hull. Ta en titt på denne video og ved ca tid: 01:13. mvh DROPS design
27.01.2021 - 11:46
Denise Loup skrifaði:
Muss ich die Schulter zuerst abnehmen und dann den Halsauschnitt am Rücken? Die 10 Maschen muss ich diese abmaschen oder 2 zusammenstellen ? Schulter abmaschen, paar Maschen stricken 10 abmaschen, wieder paar Maschen stricken, Schulter abmaschen? Ist das so gemeint?
22.12.2020 - 22:24DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Loup, Beim Stricken von Zöpfen ziehen sich die Maschen mehr zusammen, als wenn Sie glatt rechts stricken, deshalb wird hier zuerst 10 Maschen über die Zöpfe abgenommen (= 10 Mal 2 Maschen zusammenstricken regelmäßig verteilt. ), und gleichzeitig sollen Sie bei dieser Reihe die ersten 8-9-10 M (siehe Größe) stillegen. und wenn die mittleren Maschen für den Hals abgekettet werden, wird jede Schulter separat gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
23.12.2020 - 07:04
Beate skrifaði:
Nice pattern. At first it looked huge but the cables draw in so much that the measurements came out exactly right. However, I m not used to the buttonholes on the left band, switched them to the right one.
15.12.2020 - 20:39
Marita skrifaði:
Har strikket ferdig vesten, men laget knapphullene paa höyre siden og ikke venstre som i oppskriften. Ser at knapphull vanligvis er paa höyre side i deres oppskrifter for jakker.
04.12.2020 - 00:28DROPS Design svaraði:
Hei Marita, Knapper og knapphull kan strikkes enten på venstre eller høre stolpe. Det er helt opp til deg og blir like fint. God fornøyelse!
04.12.2020 - 07:23
Achint Sandhu skrifaði:
Finished the vest but the buttons are on the wrong side
20.11.2020 - 05:46
Vachez skrifaði:
Bonjour, Je désire faire ce modele en Taille S mais avec des aiguilles droite et surtout faire le dos tout seul et les deux devants en même temps Pouvez vous me dire le nombre de mailles que je dois mettre pour chaque pièce ainsi que les augmentations Merci pour vos réponses
12.11.2020 - 11:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Vachez, vous retrouverez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites, rappelez-vous que pour toute assistance individuelle, votre magasin DROPS saura vous aider, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
12.11.2020 - 14:11
Ag Urquhart skrifaði:
How do I do wrong side rows....sorry never followed a pattern like this before...I understand where to put the knit and purl stitches but at the back of the cables do I purl on the way back.
18.10.2020 - 15:41DROPS Design svaraði:
Hi Ag, Yes the stitches at the back of the cables (on the wrong side) are purled. Happy knitting!
19.10.2020 - 07:03
Brenda Ablitt skrifaði:
How can I translate comments/questions into English?
30.09.2020 - 08:37DROPS Design svaraði:
Dear Brenda, I'm sorry but there is no option to translate others comments into another language, at least in our webpage. You could use an external translator for that. Happy knitting!
30.09.2020 - 21:02
Poetry Reading#poetryreadingvest |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónað vesti með köðlum og áferðamynstri úr DROPS Lima. Stærð S - XXXL.
DROPS 218-4 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 197 lykkjur) mínus kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 195 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 61) = 3,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, neðan frá og upp. Fellt er af fyrir handveg, síðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig til loka. Stykkið er saumað saman á öxlum. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kanta að framan, kant í hálsi og kant í kringum handveg. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 197-213-229-245-277-293 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 3 með Lima. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið alls 4 umferðir stroff fram og til baka svona. Prjónið síðan 1 umferð brugðið (kantlykkjur eru prjónaðar slétt) JAFNFRAMT er aukið út um 61 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚTAUKNING = 258-274-290-306-338-354 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki 66-70-74-78-86-90 lykkjur inn frá hvorri hlið = 126-134-142-150-166-174 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – það á að nota þau síðar þegar fella á af fyrir handveg. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 11 lykkjur), prjónið A.2 (= 24 lykkjur), prjónið A.3 (= 18 lykkjur), prjónið A.4 yfir næstu 24-32-40-48-64-72 lykkjur (prjónamerki situr mitt í þessa 24-32-40-48-64-72 lykkjur), prjónið A.3 (= 18 lykkjur), prjónið A.2 (= 24 lykkjur), prjónið A.3 (= 18 lykkjur), prjónið A.2 (= 24 lykkjur), prjónið A.3 (= 18 lykkjur), prjónið A.4 yfir næstu 24-32-40-48-64-72 lykkjur (prjónamerki situr mitt í þessum 24-32-40-48-64-72 lykkjum), prjónið A.3 (= 18 lykkjur), prjónið A.2 (= 24 lykkjur), prjónið A.5 (= 11 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fellið af fyrir handvegi, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 63-67-71-75-83-87 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki) – setjið þessar lykkjur á þráð, fellið af 6 lykkjur fyrir handvegi (þ.e.a.s. fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið 120-128-136-144-160-168 lykkjur eins og áður (= bakstykki) – setjið þessar lykkjur á nýjan þráð, fellið af 6 lykkjur fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og prjónið eins og áður yfir þær 63-67-71-75-83-87 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki). Klippið ekki frá. Framstykkin og bakstykkið er síðan prjónað hvert fyrir sig. Byrjið með vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 63-67-71-75-83-87 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur eins og áður. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum og síðan 1 lykkja 2-4-4-3-7-7 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 5 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4 sinnum og síðan 1 lykkju 10-10-11-11-10-10 sinnum. Eftir allar affellingar fyrir handveg og hálsmáli eru 33-35-36-38-39-41 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Felið nú af fyrir aflíðandi öxl með því að fella lykkjur af í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 8-9-9-10-10-10 lykkjur 3 sinnum og síðan 9-8-9-8-9-11 lykkjur 1 sinni. Nú hafa allar lykkjur verið felldar af og stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka 63-67-71-75-83-87 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur eins og áður. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinnum 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum og síðan 1 lykkju 2-4-4-3-7-7 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 5 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4 sinnum og síðan 1 lykkju 10-10-11-11-10-10 sinnum. Eftir allar affellingar fyrir handveg og hálsmál eru 33-35-36-38-39-41 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Fellið nú af fyrir aflíðandi öxl með því að fella af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 8-9-9-10-10-10 lykkjur 3 sinnum og síðan 9-8-9-8-9-11 lykkjur 1 sinni. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af og stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. BAKSTYKKI: Setjið til baka 120-128-136-144-160-168 lykkjur frá þræði á hringprjón 4,5. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur eins og áður. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 2-4-4-3-7-7 sinnum í hvorri hlið = 108-112-116-120-124-128 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Fellið nú af fyrir aflíðandi öxl í hvorri hlið JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli mitt að aftan eins og útskýrt er að neðan: AFLÍÐANDI ÖXL: Fellið af fyrir aflíðandi öxl í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 8-9-9-10-10-10 lykkjur 3 sinnum í hvorri hlið og 9-8-9-8-9-11 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. HÁLSMÁL AFTAN Í HNAKKA: JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 10 lykkjur jafnt yfir miðju 42-42-44-44-46-46 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum í hvorri hlið. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af og stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjóni upp ca 97 til 111 lykkjur á hringprjón 3 meðfram kanti mitt fram og upp þar sem hálsmál byrjar (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í ca 2½ til 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu í botni á hálsmáli á vinstra framstykki og prjónið upp ca 97 til 111 lykkjur á hringprjón 3 meðfram kanti mitt fram (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka, en eftir 1 cm er fellt af fyrir 3-3-4-4-4-4 hnappagötum jafnt yfir. Efsta hnappagatið er staðsett ca 10-10-8-8-8-8 cm frá botni á hálsmáli og neðsta hnappagatið ca 3 cm frá neðri kanti. 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar kantur að framan mælist ca 2½ til 3 cm – sjá AFFELLING! KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu og prjónið upp ca 139 til 175 lykkjur á hringprjón 3 meðfram hálsmáli innan við 1 kantlykkju (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu – JAFNFRAMT er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í vinstri kanti að framan (fellt er af fyrir hnappagati alveg eins og í kanti að framan, en stillið bilið á milli frá kanti þannig að það komi beint yfir hnappagöt í kanti að framan). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið alls 4 umferðir stroff fram og til baka svona. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! KANTUR Í HANDVEG: Byrjið frá réttu í botni á handvegi og prjónið upp ca 110 til 138 lykkjur á stuttan hringprjón 3 í kringum handveg innan við 1 kantlykkju (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið síðan 4 umferðir stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum – munið eftir AFFELLING! Prjónið annan kant í kringum hinn handveginn á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í hægri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #poetryreadingvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.