DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8844.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sunday Vibes

Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri og útaukning á öxlum fyrir axlarsæti. Stærð S - XXXL.

DROPS 218-7
DROPS Design: Mynstur sk-106
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-300-300-350 g litur 03, ljus beige
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-125-125-150 g litur 20, ljós beige

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með áferðamynstri (= A.1) og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8844.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir öxl):
Aukið út hvoru megin við axlalykkjur þannig:
Prjónið fram að prjónamerki á undan axlarlykkjum, notið hægri prjón til að lyfta þræðinum á milli lykkju sem þú hefur prjónað og næstu lykkju upp á vinstri prjón þannig að vinstri hliðin við hlekkinn komi á réttu á stykki, prjónið hlekkinn slétt (hlekkurinn verður nú snúinn þannig að ekki myndist gat og lykkjan hallar til hægri), færið prjónamerkið yfir á hægri prjón. Prjónið axlalykkjurnar fram að næsta prjónamerki, færið prjónamerkið yfir á hægri prjón (þ.e.a.s. axlalykkjurnar verða eins), notið hægri prjón til að lyfta upp þræðinum á milli lykkju sem þú hefur prjónað og næstu lykkju á vinstri prjóni þannig að hægra hlið á hlekknum komi frá réttu á stykki, prjónið hlekkinn slétt í aftari lykkjubogann (hlekkurinn er nú snúinn svo ekki myndist gat og lykkjan hallar til vinstri).

ÚRTAKA (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 kantlykkja garðaprjón.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður þar til útaukning fyrir axlarlykkjur er lokið. Setjið síðan lykkjur fyrir öxl á þráð og framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig þar til berustykkið og fram- og bakstykki er lokið. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 64-72-72-80-80-88 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan mynstur A.1 hringinn í 12 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= ca mitt að aftan og á undan 2 lykkjum slétt) og setjið eitt prjónamerki eftir 32-36-36-40-40-44 lykkjur (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá prjónamerki á bakstykki!
Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið fyrsta prjónamerkið eftir 8-12-12-12-12-16 lykkjur (= ca hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur (= öxl), setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 18-22-22-22-22-26 lykkjur (= framstykki), setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur (= öxl), setjið eitt prjónamerki hér, nú eru 10-10-10-10-10-10 lykkjur eftir í umferð (= ca hálft bakstykki).
Haldið áfram hringinn með mynstri eins og áður, jafnframt í næstu umferð byrjar útaukning í hverri hlið fyrir axlarlykkjur (= 4 lykkjur fleiri í hverri umferð með útaukningu) – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverri umferð 18-18-22-26-30-30 sinnum og í annarri hverri umferð 2-2-2-2-2-2 sinnum = 144-152-168-192-208-216 lykkjur.
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka mælist stykkið ca 9-9-11-13-14-14 cm frá prjónamerki og niður að miðju að aftan. Nú skiptist stykkið fyrir öxl, framstykki og bakstykki (þær 2 lykkjur slétt í hvorri hlið á öxlum eru nú prjónaðar inn á bakstykki og framstykki þannig):
Prjónið fyrstu 30-34-38-42-46-50 lykkjur í umferð (= ca hálft bakstykki), prjónið næstu 10-10-10-14-14-14 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= öxl), prjónið næstu 62-66-74-82-90-94 lykkjur (= framstykki), prjónið næstu 10-10-10-14-14-14 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= öxl), prjónið síðustu 32-32-36-40-44-44 lykkjur (= ca hálft bakstykki). Klippið frá og setjið lykkjurnar fyrir bakstykki á þráð. Prjónið nú framstykki og bakstykki hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 62-66-74-82-90-94 lykkjur. Prjónið fram og til baka í mynstri eins og áður og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju í lok fyrstu 2 umferða (= 1 kantlykkja í hvorri hlið) = 64-68-76-84-92-96 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 19-21-22-23-25-27 cm frá prjónamerki (stykkið mælist ca 24-26-27-29-31-33 cm frá miðju á öxl og niður), fitjið upp 4-5-5-5-5-6 nýjar lykkjur í lok næstu 2 umferða fyrir handveg = 72-78-86-94-102-108 lykkjur. Héðan mælist nú stykkið. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni (alls 5-6-6-6-6-7 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið á stykki). Haldið áfram þar til stykkið mælist 31-31-32-32-32-32 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir lykkjur í garðaprjóni – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 55-57-59-61-63-65 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður frá axlalykkjum.
Setjið eitt prjónamerki mitt í axlalykkjur. Ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki. Byrjið með 1 þræði í hvorri tegund og hringprjón 6 og prjónið upp lykkjur í handvegi frá réttu innan við 1 kantlykkju garðaprjón þannig: Byrjið neðst og innst í horni við handveg og prjónið upp 23-23-27-27-27-31 lykkjur upp að axlalykkjum, prjónið 10-10-10-14-14-14 axlalykkjur í mynstri eins og áður, prjónið upp 23-23-27-27-27-31 lykkjur niður meðfram annarri hlið og niður að horni innst við handveg = 56-56-64-68-68-76 lykkjur.
Prjónið nú áferðamynstur (A.1) og stuttar umferðir fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): 1 kantlykkja garðaprjón , * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (garðaprjón) *, prjónið frá *-* upp að axlalykkjum, prjónið 10-10-10-14-14-14 axlalykkjur í mynstri eins og áður, prjónið 2 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði svo ekki myndist gat.
UMFERÐ 2: Prjónið A.1 eins og áður yfir fyrstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur, snúið, herðið á þræði svo ekki myndist of stórt gat.
UMFERÐ 3: Prjónið A.1 eins og áður yfir fyrstu 16-16-16-20-20-20 lykkjur, snúið, herðið á þræði svo ekki myndist of stórt gat.
UMFERÐ 4: Prjónið A.1 eins og áður yfir fyrstu 18-18-18-22-22-22 lykkjur, snúið, herðið á þræði svo ekki myndist of stórt gat.
Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið 2 lykkjur fleiri í hverri umferð sem er prjónuð. Þegar 1 lykkja er eftir í hvorri hlið, er stuttum umferðum lokið. Ermakúpan mælist ca 9-9-11-11-11-13 cm. Takið prjónamerkið úr og setjið mitt á ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT.
Prjónið fram og til baka með áferðamynstri og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 7-7-7-7-7-8 cm frá þar sem stuttum umferðum lauk, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-1½-1½-1 cm millibili alls 8-8-10-12-12-14 sinnum = 40-40-44-44-44-48 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-44-41-40-40-38 cm – eða að óskaðri lengd. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saum undir ermi innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og saumið ermi við 4-5-5-5-5-6 lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir handveg í hlið. Saumið hliðarsauma frá handvegi og niður þar til eftir eru ca 17 cm fyrir klauf. Endurtakið í hinni hliðinni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.09.2020
Engin leiðrétting, en texti og mynsturteikning hefur verið uppfært til að auðveldara sé að skilja uppbyggingu á axlarsæti

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = axlarsætis útaukning
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Paulina wrote:

Hej! Går det att sticka runt kroppen på rundsticka, istället för separat fram och tillbaka efter man satt maskor för ärmar på tråd? Hur gör jag då?

17.01.2023 - 22:39

DROPS Design answered:

Hej Paulina, ja du kan sætte arbejdet sammen når du er kommet ned til ærmegabet :)

19.01.2023 - 08:17

country flag Païa wrote:

Bonjour, N’est -il plus possible d’avoir des explications en mode classique cad de bas en haut? Les coutures maintiennent le tricot en forme, l’encolure est mieux finie et le travail plus relaxant en tout point. J’adore ce modèle mais ne pourrai le réaliser qu’avec des explications down/up . Je suis tout à fait d’accord de les payer, bien entendu. Merci pour votre réponse Cordialement Païa

15.09.2022 - 11:02

DROPS Design answered:

Bonjour Païa, tout est question de préférence et de modèles, mais vous pouvez retrouver ici une sélection de nos modèles de pulls tricotés de bas en haut - vous pouvez filtrer de la même façon les pulls & gilets sans manches, tops, gilets & vestes etc... Bon tricot!

15.09.2022 - 13:15

country flag Fiorenza wrote:

Buongiorno. Vorrei realizzare questo modello con vostro filato PUNA che ho già, quindi con ferri del 4. Ovviamente provo a fare un campione ma é la prima volta che faccio una modifica così. Avete qualche suggerimento per aiutarmi. Ho già visto la sezione per la conversione dei filati ma questo è un caso diverso. Grazie molte!

30.12.2021 - 09:00

DROPS Design answered:

Buonasera Fiorenza, deve utilizzare la misura di ferri che le permette di ottenere il campione indicato. Buon lavoro!

30.12.2021 - 22:47

country flag Renée wrote:

Au début du col, il est inscrit « tricoter ensuite en A.1 ». C’est quoi exactement « A.1 ». De plus à l section POINT FANTAISIE il est inscrit voir diagramme A.1. Et il n’est pas dans les explications. Je vous remercie

21.10.2021 - 17:51

DROPS Design answered:

Bonjour Renée, A.1 correspond effectivement au diagramme du point fantaisie (= 2 m point mousse, 2 mailles jersey endroit) que vous trouverez à droite du schéma des mesures, juste sous la manche. Bon tricot!

22.10.2021 - 07:12

country flag Mia wrote:

Hei! Saisinko ohjeen, millainen on työssä käytettävä mallineule? Ohjeessa viitataan ruutupiirrokseen A.1 mutta ohjeessa ei näy mitään tällaista piirrosta (otsikon "Piirros" alla vain tyhjää).

28.09.2021 - 15:39

DROPS Design answered:

Hei, nyt piirros löytyy.

05.10.2021 - 17:14

country flag Paloma wrote:

Hola, no soy exactamente principiante pero siempre he tejido bufandas gorros y calcetines y los hombros y las sisas me están volviendo majara. Cuando empiezo a aumentar para los hombros unas veces coincide sobre un punto del derecho y otras sobre punto del revés ¿el aumento es siempre del derecho? y al aumentar luego me encuentro con que tengo 3 del derecho o 3 del revés. ¿Tengo que adaptarme a esa nueva cantidad de puntos? Muchísimas gracias

06.09.2021 - 17:04

DROPS Design answered:

Hola Paloma, los puntos se aumentan siempre de derecho, pero después se trabajan según el patrón, por lo que no deberías tener 3 derechos o reveses seguidos.

06.10.2021 - 22:43

country flag Marcela wrote:

Hola soy Marcela.\r\nCuando empecé a tejer la delantera de ida vuelta, los puntos se ven feos, desordenados, que puedo hacer?, cuando tejí en redondo se veían mucho mejor.

26.07.2021 - 04:59

DROPS Design answered:

Hola Marcela, esto pasa a menudo porque los puntos de revés se trabajan más flojos que los de derecho y, de ida y vuelta, se trabajan más puntos de revés, que en redondo. Esta puede ser la causa de que queden tan desordenados.

31.07.2021 - 17:54

country flag Sandra wrote:

Cual es el método que recomiendas para montar puntos en este patrón? Es la primera vez que comienzo desde el cuello, gracias!

21.03.2021 - 15:50

DROPS Design answered:

Hola Sandra, para montar los puntos usamos el método continental. Tienes un vídeo explicativo debajo del patrón: https://www.garnstudio.com/video.php?id=2&lang=es

21.03.2021 - 19:33

country flag Claudia wrote:

Hallo, wo fange ich mit der Ärmelaufnahme an? An den neu angeschlagenen Maschen des Rumpfteils, die für den Armauschnitt am Vorderteil aufgenommenen wurden oder kurz danach? Irgendwie ist mir das, aus der Anleitung nicht ganz klar. Danke, für die Antwort!

20.03.2021 - 07:52

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, starten Sie sofort nach den neuangeschlagenen Maschen bis die stillgelegten Maschen und nur bis die neu angeschlagenen Maschen, dh die Maschen sollen in den Reihen aufgenommen werden, nicht in die neu angeschlagenen Maschen. Die ersten Reihen von der Ärmel werden dann an den neu angeschlagenen Maschen für das Armoch zusammen genäht. Viel Spaß beim stricken!

22.03.2021 - 10:22

country flag Eva Andersson wrote:

Jag ska sticka modell218-7 sunday vibes i Drops sky färg hasselnöt. Vilken färg i Kid silk passar till denna färg?Liknar den mest? Mvh Eva

25.02.2021 - 17:02

DROPS Design answered:

Hej Eva, DROPS Kid Silk 35 chokolade passer perfekt til DROPS Sky hasselnöt men se også denne: Garnkombinationer :)

26.02.2021 - 08:21