Thérèse Bordessoules skrifaði:
Un trendy chale qui a l'air bien sympa à tricoter, et qui change des chales à trous-trous, très joli modèle
15.06.2020 - 23:24
Rosy skrifaði:
Ce modèle de châle est très original, il me tarde de pouvoir le tricoter !
05.06.2020 - 09:12
Deb skrifaði:
I LOVE this pattern and I certainly hope that I can purchase. Your patterns are amazing and I appreciate all of your designs and special tips!
04.06.2020 - 19:23
Scotch Mist#scotchmistwrap |
|
![]() |
![]() |
Prjónað sjal úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað í garðaprjóni og klukkuprjóni.
DROPS 214-14 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 2 lykkjur í ystu sléttu lykkjuna í hvorri hlið þannig: Prjónið 3 lykkjur í eina lykkju þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en ekki sleppa uppslættinum af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn og lykkjuna aftur slétt saman, sleppið lykkjunni af vinstri prjóni (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar án uppsláttar, þar sem ekki er neinn uppsláttur þar. Aukið út um 4 lykkjur í miðju lykkju þannig: Prjónið 5 lykkjur í eina lykkju þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en ekki sleppa uppslættinum af vinstri prjóni. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn og lykkjuna aftur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og sleppið síðan lykkjunni og uppslættinum af vinstri prjóni (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar án uppsláttar, þar sem ekki er neinn uppsláttur þar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Prjónaðar eru rendur í garðaprjóni og klukkuprjóni. SJAL: Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 4,5 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur og prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 7 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. Prjónið 1 lykkju slétt, 1 uppsláttur, 2 lykkjur slétt, 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 uppsláttur og 1 lykkja slétt = 11 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu (= miðjulykkja). Haldið áfram að auka út 4 lykkjur í annarri hverri umferð þannig (innan við 1 kantlykkju hvoru megin við miðjulykkju) þar til það eru alls 35 lykkjur í umferð – uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú þannig: RÖND Í KLUKKUPRJÓNI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju garðparjón. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 1: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju garðaprjón. Endurtakið umferð 2 og 3 þar til prjónaðar hafa verið alls 16 umferðir í klukkuprjóni, JAFNFRAMT í 5. og 11. umferð er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið á sjali og 4 lykkjur mitt í sjali – sjá ÚTAUKNING (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð með útaukningu = 51 lykkjur. Þegar 16. umferð hefur verið prjónuð til loka, prjónið næstu umferð frá réttu eins og útskýrt er að neðan. RÖND Í GARÐAPRJÓNI: Prjónið frá réttu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkju slétt í uppslátt sem tilheyrir sléttri lykkju, prjónið 1 lykkju slétt í slétta lykkju, prjónið 1 lykkju slétt í brugðna lykkju *, prjónið frá *-* alls 10 sinnum (nú hafa verið auknar út 10 lykkjur yfir ystu 21 lykkjur). Prjónið sléttar lykkjur þar til 21 lykkja eru eftir í lok umferðar, ** prjónið 1 lykkju slétt í brugðna lykkju, prjónið 1 lykkjur slétt í uppslátt sem tilheyrir sléttri lykkju og prjónið 1 lykkju slétt í slétta lykkju **, prjónið frá **-** alls 10 sinnum og prjónið 1 kantlykkju slétt (nú hafa verið auknar út 10 lykkjur í ystu 21 lykkjur) = 71 lykkja. UMFERÐ 2 (= ranga): 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, 1 uppsláttur og 1 lykkja slétt = 2 lykkjur fleiri. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, 1 uppsláttur, prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt (= miðjulykkja), 1 uppsláttur, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, 1 uppsláttur og 1 lykkja slétt = 4 lykkjur fleiri. Endurtakið umferð 2 og 3 alls 12 sinnum = 143 lykkjur. Snúið og prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur (án þess að auka út). Mynstureining með garðaprjóni á nú að mælast ca 6 cm. Endurtakið síðan til skiptis rönd í garðaprjóni og rönd í klukkuprjóni 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 sinnum) þannig: Prjónið 2. rönd í klukkuprjóni alveg eins og áður. Þegar 16. umferð í klukkuprjóni hefur verið prjónuð til loka eru 159 lykkjur í umferð. Prjónið 2. rönd í garðaprjóni alveg eins og áður. Þegar 2. og 3. umferð hefur verið endurtekin 12 sinnum eru 251 lykkjur í umferð. Prjónið 3. rönd í klukkuprjóni alveg eins og áður. Þegar 16. umferð í klukkuprjóni hefur verið prjónuð til loka eru 267 lykkjur í umferð. Prjónið 3. rönd í garðaprjóni alveg eins og áður. Þegar 2. og 3. umferð hefur verið endurtekin 12 sinnum eru 359 lykkjur í umferð. Prjónið 4. rönd í klukkuprjóni alveg eins og áður. Haldið svona áfram með útaukningu í 6. hverri umferð alls 5 sinnum = 399 lykkjur. Prjónið áfram í klukkuprjóni þar til þessi rönd mælist 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja. Klippið frá og festið enda. Sjalið mælist ca 43 cm mælt meðfram útaukningu mitt að framan. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #scotchmistwrap eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.