Nicole skrifaði:
Hallo\r\nDie Decke ist wunderschön und mein Erstling. Ich habe einen breiten Schal mit insgesamt 18 Quadraten gemacht. Dummerweise habe ich mich beim Garenkauf vertan. Daher meine Frage: Wieviel Wolle brauche ich jeweils, um die Quadrate zusammenzuhäkeln und wieviel für die Umrandung? \r\nDanke und liebe Grüsse,\r\nNico.e
07.08.2024 - 17:18
Katrin skrifaði:
Wie muß ich das Diagramm in der 4. und 5. Runde lesen? Ich würde erst eine Runde Luftmaschenbögen mit den Halbstäbchen machen, danach die festen Maschen um die Luftmaschenbögen und zuletzt die festen Maschen rundherum. Dann wären es aber 3 Runden! Wo liegt der Fehler? Vielen Dank!
06.06.2022 - 00:34DROPS Design svaraði:
Liebe Katrin, 4. Runde beginnt mit 1 Luftmasche, 6 feste Maschen um den Luftmaschenbogen und endet mit 1 Halbstäbchen in die Doppelstäbchengruppe der 3. Runde, 1 Kettmasche in die 1. Luftmasche der Runde. 5. Runde beginnt mit 1 Lufmasche, 1 feste Masche in jede Masche und endet mit 1 Kettmasche in die Luftmasche. Viel Spaß beim häkeln!
07.06.2022 - 09:45
Susan Kaspersen skrifaði:
I starten af arbejdet efter omgang 2 med de ialt 36 stangmasker, begynder det at bølge, som om der er for mange masker. Har prøvet med 5 luftmasker i starten i stedet for de 4, har også prøvet i starten at starte med en magisk ring. Det virker heller ikke rigtigt. Hækler med garn og pindstørrelse som vist i opskriften. Har hæklet en prøve med bomuldsgarn med en pind 3, også samme resultat. Hvad gør jeg galt?
18.01.2021 - 10:33DROPS Design svaraði:
Hei Susan. Husk å overholde heklefastheten. Hekler du for løst kan det fort bølge seg. Om du overholder heklefastheten og fortsetter å hekle vil du se at sirkelen retter seg opp. Dersom du har heklet en rute ferdig og fremdeles syns at den bølger seg, kan du prøve å dampe den lett for å se om det blir bedre. mvh DROPS design
27.01.2021 - 12:09
Gaylyn skrifaði:
Hi. Tried again if you try and print no diagram. Please could you assist?
15.08.2020 - 14:09DROPS Design svaraði:
Dear Gaylyn, usually there is no problem when printing the diagram, so I believe it's not a webpage error. You should try to print it with another browser.
16.08.2020 - 13:30
Gaylyn skrifaði:
The diagram is not included in the download pattern
11.08.2020 - 15:44DROPS Design svaraði:
Dear Gaylyn, diagram for the squares are there in UK- as well as in US-English - are you looking for another language?
11.08.2020 - 16:26
Susana Martorell skrifaði:
Preciosa, 😍😍😍😍😍
16.06.2020 - 18:47
Berit Ericsson skrifaði:
En större variant av mormorsrutor som är fantastiskt fin Kan göras större och bli ett sängöverkast eller bara användas som en mysig sjal
05.06.2020 - 13:05
Chocolate Box#chocolateboxblanket |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað teppi með blómum úr DROPS Karisma. Stykkið er heklað í ferningum sem eru heklaðir saman.
DROPS 214-5 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 sem sýnir ferning, mynsturteikning A.2 sýnir röð á ferningum þegar þeir eru lagðir niður þegar frágangur er gerður á teppinu. LITIR Á FERNINGUM: Hver ferningur er heklaður með 6 mismunandi litum. Við litaskipti er heklað í síðustu keðjulykkjuna í umferð með lit sem á að vera í næstu umferð. Festið þráðinn með því að leggja gamla litinn meðfram efri hliðinni á lykkjunum og heklið um þennan þráð nokkrum sinnum í næstu umferð áður en þráðurinn er klipptur frá og festur. Ferningarnir eru heklaðir í þessum litasamsetningum: FERNINGUR 1: Uppfitjun + UMFERÐ 1-2 : eyðimerkurrós UMFERÐ 3: dökk bleikur UMFERÐ 4-6: rauðbrúnn UMFERÐ 7-8: svartur UMFERÐ 9: ljós brúnn UMFERÐ 10-11: súkkulaðibrúnn FERNINGUR 2: Uppfitjun + UMFERÐ 1-2: rauðbrúnn UMFERÐ 3: dökk bleikur UMFERÐ 4-6: eyðimerkurrós UMFERÐ 7-8: ljós brúnn UMFERÐ 9: súkkulaðibrúnn UMFERÐ 10-11: svartur FERNINGUR 3: Uppfitjun + UMFERÐ 1-2: dökk bleikur UMFERÐ 3: svartur UMFERÐ 4-6: súkkulaðibrúnn UMFERÐ 7-8: eyðimerkurrós UMFERÐ 9: rauðbrúnn UMFERÐ 10-11: ljós brúnn FERNINGUR 4: Uppfitjun + UMFERÐ 1-2: ljós brúnn UMFERÐ 3: rauðbrúnn UMFERÐ 4-6: dökk bleikur UMFERÐ 7-8: svartur UMFERÐ 9: eyðimerkurrós UMFERÐ 10-11: súkkulaðibrúnn ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið samanstendur af 24 ferningum. Heklið 6 ferninga í hverri og einni af 4 mismunandi litasamsetningum. Þegar allir ferningarnir hafa verið heklaðir eru ferningarnir heklaðir saman og að lokum er heklaður kantur í kringum allt teppið. FERNINGUR: Notið Karisma og heklunál 4,5, sjá LITIR Á FERNINGUM – í útskýringu að ofan og heklið eftir mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Hver ferningur mælist ca 24 x 24 cm. FRÁGANGUR: Leggið ferningana út eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2. Passið uppá að allir ferningarnir liggi með réttuna upp. Nú á að hekla ferningana saman með litnum súkkulaðibrúnn. Fyrst eru ferningarnir heklaðir saman í lengjur með 4 og 4 ferninga. Heklið ferningana saman þannig: Leggið fyrstu 2 ferningana sem á að hekla saman með röngu að röngu, heklið 1 fastalykkju um hornið á báðum ferningunum, * heklið 1 fastalykkju í gegnum ysta liðinn á hverri fastalykkju (þeir 2 liðir sem liggja að hvorum öðrum) frá hvorum ferningi þar til allar fastalykkjurnar meðfram ferningunum hafa verið heklaðar saman. Heklið 1 fastalykkju um hornið, 2 loftlykkjur á milli næstu 2 ferninga og 1 fastalykkju um næsta horn *. Heklið frá *-* þar til allir ferningarnir hafa verið heklaðir saman – endið með 1 fastalykkju um hornið á síðasta ferningnum. Þegar ferningarnir hafa verið heklaðir saman í lengjur, heklið lengjurnar saman á breiddina alveg eins. KANTUR: Notið litinn súkkulaðibrúnn og heklunál 4,5. Byrjið á að festa endann með 1 keðjulykkju í 1. hornið, síðan er heklað þannig: Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðull um hornið, 3 loftlykkjur og 2 stuðlar um þetta horn. * Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju fram að horni á milli ferninga, heklið 1 stuðul um hvort horn *, heklið frá *-* að næsta horni meðfram þessari hlið á teppinu. Um 2. hornið eru heklaðir 2 stuðlar, 3 loftlykkjur og 2 stuðlar. Heklið frá *-* fram að næsta horni meðfram þessari hlið á teppinu. Um 3. hornið eru heklaðir 2 stuðlar, 3 loftlykkjur og 2 stuðlar. Heklið frá *-* fram að næsta horni meðfram þessari hlið á teppinu. Um 4. hornið eru heklaðir 2 stuðlar, 3 loftlykkjur og 2 stuðlar. Heklið frá *-* fram að síðasta horni og endið með 1 keðjulykkju í 3. Loftlykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chocolateboxblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.