Karin skrifaði:
Hej! Är nybörjare på att läsa mönster på virkning. I virkinformationen står det att i början av varje varv ersätts första st med 3 luftmaskor. I mönstret, framstycke, står det att man ska avsluta med A3., men i diagrammet står det att symbolen betyder virka 3 luftmaskor i början av varvet. Jag förstår tyvärr inte. Hoppas få en förklaring så att jag förstår.
03.08.2024 - 08:22DROPS Design svaraði:
Hej Karin, första varvet är redan virkat och visar endast hur nästa ska virkas. Du starter i højre side med 3 lm osv... når du virkar tilbage starter du i venstre side med 3 lm osv :)
06.08.2024 - 14:08
Anna skrifaði:
Hej, Kan man droppe knapperne og bare lave 2x forstykket for så at sætte dem sammen?
20.06.2024 - 15:33DROPS Design svaraði:
Hej Anna, ja hvis du ikke hækler en for lille størrelse :)
25.06.2024 - 12:31
Evelyne skrifaði:
Pour le modèle R-753, je ne comprends pas les diagrammes A4-A5 et A6. On ne sait pas exactement dans quelle maille faire les deux bridés dans la même maille. Doit-on passer des mailles ? Ex A4: dans la 1e maille, on fait les 3 ml puis faut-il passer une maille avant de faire les 2 brides dans une maille ? Où faut-il faire les 2 ml ? Au dessus des brides ? Si oui, comment ? Serait-il possible de dire quoi faire dans chaque maille svp? Car là ce n’est pas clair du tout. Merci.
15.06.2024 - 02:00DROPS Design svaraði:
Bon jour Evelyne, tout à, vous allez sauter des mailles pour crocheter le groupe de brides dans une maille, soit: A.4 = 3 ml, *sautez 2 ms, 2 brides dans la m suivante, 2 ml, 2 brides dans la même maille que les 2 brides précédentes, sautez 2 ms, 1 b dans la m suivante*, puis répétez de *à* pour A.5 et terminez par A.6 comme A.5 (sur l'endroit). Bon crochet!
17.06.2024 - 08:07
Diana skrifaði:
Er der ikke et billede af ryggen nogen steder?
24.02.2024 - 23:47DROPS Design svaraði:
Hej Diana, vi skal se efter, hvis vi har så skal vi nok lægge det ud :)
01.03.2024 - 14:29
Angèle skrifaði:
Bonjour, Pour le modèle 211-8 qu'entendez -vous par 'ajuster après un rang sur l'endroit ' Merci pour votre réponse.
20.06.2023 - 14:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Angèle, ajustez la hauteur indiquée pour votre taille de sorte que le dernier rang tricoté soit un rang sur l'endroit, autrement dit, tricotez les côtes sur un peu moins ou un peu plus de 9 cm en fonction de votre propre tension, tant que le dernier rang est un rang sur l'endroit. Bon crochet!
20.06.2023 - 15:34
Bianca Vink skrifaði:
Ik snap niet veel van dit patroon ik heb de eerste toer gedaan maar hoe dan.
09.06.2023 - 13:52DROPS Design svaraði:
Dag Bianca,
Na de eerste toer begin je met de telpatronen. Je haakt eerst A.1 over de eerste steek, dat is dus 3 lossen omdat het op het begin van de toer is. Vervolgens haak je A.2, waarbij je het telpatroon dus steeds in de breedte herhaalt totdat je nog 1 steek over hebt op de toer. Deze haak je in A.3. De telpatronen lees je van onder naar boven en van rechts naar links. De toer met een ster ernaast haak je niet.
Voor meer informatie kun je ook de video's bekijken en de stap voor stap instructies lezen over de verschillende technieken die in dit patroon gebruikt worden.
10.06.2023 - 18:26
Claudia skrifaði:
Buongiorno, è possibile avere lo stesso modello lavorato ai ferri? Grazie
16.05.2022 - 14:43DROPS Design svaraði:
Buonasera Claudia, questo modello è stato progettato per essere lavorato all'uncinetto, non può essere trasformato in un modello ai ferri. Provi a navigare tra i modelli del nostro sito per trovarne tanti altri lavorati ai ferri. Buon lavoro!
17.05.2022 - 18:59
Raquel skrifaði:
Hola se podría hacer este top en dos piezas para no tener que ponerle botones. Habría que hacer dos piezas iguales siguiendo el patrón del delantero y coser??. Gracias
16.04.2022 - 08:32DROPS Design svaraði:
Hola Raquel, se pueden hacer 2 piezas (delantero y espalda) y coser. Se trabaja igual hasta el escote y la línea del escote se comienza 2 cm antes que la línea del escote en la espalda.
17.04.2022 - 11:56
Marian Van Iwaarden skrifaði:
Is de werkbeschrijving die hier staat wel de beschrijving van de top op de foto? Ik zie geen top in 3 kleuren op de foto en ook geen strikbanden.
05.06.2020 - 11:22DROPS Design svaraði:
Dag Marian,
Patroon en afbeelding waren inderdaad foutief aan elkaar gekoppeld. Het staat nu goed. Dankjewel voor het doorgeven. Veel haakplezier!
08.06.2020 - 12:51
Willy Van Bommel-Drissen skrifaði:
Hoi leuk topje. Maar de beschrijving klopt niet met het plaatje. Andere kleur garen, oké Maar driehoeken maken en een strikbandje?? Maar de patronen zijn erg leuk!
02.06.2020 - 21:29
Pink Pacific#pinkpacifictop |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað í stuðlum með kanti í sólfjaðramynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 211-8 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJU: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um A.1, A.3, A.4 og A.6): Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðul með 3 loftlykkjum. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á framstykki og bakstykki): Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. ÚRTAKA-1 (á við um handveg): Í byrjun á hverri umferð: Skiptið út fjölda stuðla sem á að fækka um með 1 keðjulykkju. Í lok á hverri umferð: Heklið ekki yfir lykkjurnar sem á að fækka um. ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál): Heklið 1 stuðul í hvora af næstu 2 lykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum í lokin um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum báða þessa stuðla, heklið 1 stuðul í næstu lykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 2 stuðlar færri). ÚRTAKA-3 (á við um hálsmál): * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum. Fyrst er framstykkið heklað og bæði bakstykkin, neðan frá og upp í stuðlum. Síðan er heklaður kantur í sólfjaðramynstri á framstykki og á báðum bakstykkjum, ofan frá og niður. Toppurinn er saumaður á öxlum og í hliðum og tölur eru saumaðar í á bakstykki. FRAMSTYKKI: Heklið 69-75-81-93-99-111 loftlykkjur með heklunál 4 með Muskat – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJUR. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 67-73-79-91-97-109 stuðlar í umferð. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið A.1 til A.3 þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu lykkju, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með A.3 yfir síðustu lykkjuna. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-3-3-3-3-3 cm, aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3-3-3-3-3 cm millibili alls 2-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið = 71-79-85-97-105-117 stuðlar. Þegar stykkið mælist 11-12-13-14-15-16 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1 og heklið eins og útskýrt er að neðan: Haldið áfram með stuðla og fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð þannig: Fækkið lykkjum um 3 stuðla 1-1-1-2-3-5 sinnum, 2 stuðlar 2-3-4-5-5-5 sinnum og 1 stuðul 2-3-3-3-3-2 sinnum = 53-55-57-59-61-63 stuðlar eftir. Þegar stykkið mælist 17-19-20-22-23-25 cm, fækkið lykkjum fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2 og ÚRTAKA-3 og heklið eins og útskýrt er að neðan: Heklið öxl yfir fyrstu 19-20-20-21-21-22 stuðlana í umferð (það eiga að vera 15-15-17-17-19-19 stuðlar mitt í hálsmáli). Síðan er fækkað um 2 stuðla í hverri umferð við hálsmál alls 3 sinnum og 1 stuðul í hverri umferð við hálsmál alls 3 sinnum = 10-11-11-12-12-13 stuðlar eftir á öxl. Heklið áfram þar til stykkið mælist 27-29-31-33-35-37 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA BAKSTYKKI (þegar stykkið er mátað): Heklið 40-45-46-52-57-63 loftlykkjur með heklunál 4 með Muskat. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 38-43-44-50-55-61 stuðlar í umferð. Heklið síðan A.1 til A.3 þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu lykkjuna, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með A.3 yfir síðustu lykkjuna. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-3-3-3-3-3 cm, aukið út um 1 stuðul í hlið – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3-3-3-3-3 cm millibili alls 2-3-3-3-4-4 sinnum í hlið = 40-46-47-53-59-65 stuðlar. Þegar stykkið mælist 11-12-13-14-15-16 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í hlið – sjá ÚRTAKA-1 og heklið eins og útskýrt er að neðan: Haldið áfram með stuðla og fækkið lykkjum fyrir handveg í hlið í hverri umferð þannig: Fækkið um 3 stuðla 1-1-1-2-3-5 sinnum, 2 stuðlar 2-3-4-5-5-5 sinnum og 1 stuðul 2-3-3-3-3-2 sinnum = 31-34-33-34-37-38 stuðlar. Þegar stykkið mælist 19-21-22-24-25-27 cm, fækkið lykkjum fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2 og ÚRTAKA-3 og fækkið lykkjum eins og útskýrt er að neðan: Heklið öxl yfir fyrstu 19-20-20-21-21-22 stuðlum frá hlið (nú eiga að vera 12-14-13-13-16-16 stuðlar við hálsmál mitt að framan). Fækkið síðan um 2 stuðla í hverri umferð við hálsmál alls 3 sinnum og 1 stuðul í hverri umferð við hálsmálalls 3 sinnum = 10-11-11-12-12-13 stuðlar eftir á öxl. Heklið áfram þar til stykkið mælist 27-29-31-33-35-37 cm. Klippið frá og festið enda. HÆGRA BAKSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Heklið á sama hátt og á vinstra bakstykki, en passið uppá að útaukning í hliðum, úrtaka fyrir handveg og úrtaka fyrir hálsmáli er gert í gagnstæðri hlið miðað við á vinstra bakstykki. KANTUR MEÐ SÓLFJAÐRAMYNSTRI Á FRAMSTYKKI: Kanturinn er heklaður ofan frá og niður. Byrjið frá röngu og heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju sem fitjuð var upp neðst niðri á framstykki = 67-73-79-91-97-109 fastalykkjur. Heklið síðan A.4 til A.6 þannig: Heklið A.4 yfir fyrstu 7 lykkjur, heklið A.5 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 9-10-11-13-14-16 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.6 yfir síðustu 6 lykkjur. Haldið áfram með mynstur svona fram og til baka í 9 cm, endið eftir umferð frá réttu. Klippið frá og festið enda. Framstykkið mælist ca 36-38-40-42-44-46 cm ofan frá og niður. KANTUR MEÐ SÓLFJÖÐRUM Á VINSTRA BAKSTYKKI: Kanturinn er heklaður ofan frá og niður. Byrjið frá röngu (þ.e.a.s. frá miðju að framan) og heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju sem fitjuð var upp neðst niðri á vinstra bakstykki = 38-43-44-50-55-61 fastalykkjur. Heklið síðan A.4 til A.6 frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): Heklið A.4 yfir fyrstu 7 lykkjurnar, heklið A.5 þar til eftir eru 13-12-13-13-12-12 lykkjur í umferð (= 3-4-4-5-6-7 mynstureiningar með 6 lykkjum), heklið A.6 yfir næstu 6 lykkjur og endið með 1 stuðul í hverja og eina af 7-6-7-7-6-6 síðustu lykkjum (= stuðull). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka í 9 cm, endið eftir umferð frá réttu. Klippið frá og festið enda. Bakstykki mælist ca 36-38-40-42-44-46 cm ofan frá og niður. KANTUR MEÐ SÓLFJAÐRAMYNSTRI Á HÆGRA BAKSTYKKI: Kanturinn er heklaður ofan frá og niður. Byrjið frá röngu (þ.e.a.s. frá hlið) og heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju sem fitjuð var upp neðst niðri á hægra bakstykki = 38-43-44-50-55-61 fastalykkjur. Heklið síðan A.4 til A.6 frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að aftan). Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 7-6-7-7-6-6 lykkjurnar (= stuðull), heklið A.4 yfir næstu 7 lykkjur, heklið A.5 þar til eftir eru 6 lykkjur í umferð (= 3-4-4-5-6-7 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.6 yfir síðustu 6 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka í 9 cm, endið eftir umferð frá réttu. Klippið frá og festið enda. Bakstykkið mælist ca 36-38-40-42-44-46 cm ofan frá og niður. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant með smáu fallegu spori. Saumið hliðarsauma alveg eins. Saumið 5-5-5-6-6-6 tölur jafnt yfir í kant í hægra bakstykki – efsta talan á að sitja ca 1 cm frá kanti í hálsmáli og neðsta talan ca 2 cm frá neðri kanti. Tölunum er hneppt á milli stuðla í vinstri kanti að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pinkpacifictop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.