DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5676.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Charming Catch

Hekluð peysa með laskalínu úr DROPS Cotton Merrino. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 211-7
DROPS Design: Mynstur cm-126
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL – XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-350-400-450-450 g litur 01, natur

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 8 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5676.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------<br />
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul í umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til að reikna út hvernig fækka á lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið lykkjunum með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 11) = 8.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að hekla 7. og 8. hverja lykkju í 1 lykkju þannig:
* Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er kantur í hálsmáli heklaður og berustykki. Síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, sem heklað er til loka hvert fyrir sig. Að lokum er heklaður kantur í kringum hálsmál þar sem lykkjum er fækkað þannig að hálsmálið verði stífara.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið 88-88-88-96-96-104 loftlykkjur með Cotton Mereino með heklunál 4,5 – sjá LOFTLYKKJA og tengið lykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR.
Nú er mynstrið heklað þannig: Heklið A.1 alls 22-22-22-24-24-26 sinnum í umferð. Setjið eitt prjónamerki í 4-4-4-5-5-5 loftlykkjuboga í umferð (= á bakstykki), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Heklið mynstur hringinn þannig: Heklið A.2a um fyrsta loftlykkjuboga (= útaukning laskalína), A.3 yfir næstu 6-6-6-7-7-8 loftlykkjuboga (= bakstykki), A.4 um næsta loftlykkjuboga (= útaukning fyrir laskalínu), A.3 yfir næstu 3 loftlykkjuboga (= hægri ermi), A.4 um næsta loftlykkjuboga (= útaukning laskalína), A.3 yfir næstu 6-6-6-7-7-8 loftlykkjuboga (= framstykki), A.4 um næsta loftlykkjuboga (= útaukning laskalína), A.3 yfir næstu 3 loftlykkjuboga (= vinstri ermi), endið með A.2b.
Haldið svona áfram hringinn þar til 6 umferðirnar í mynsturteikningu hafa verið heklaðar til loka á hæðina.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Síðan er útaukningin endurtekin og 2 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu alveg eins 0-1-2-2-3-4 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. þar til heklaðar hafa verið alls 6-8-10-10-12-14 umferðir, talið frá umferð með ör í mynsturteikningu) – ATH: Í stærð S er útaukningu lokið þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka 1 sinni á hæðina. Nú eru 42-50-58-60-68-78 loftlykkjubogar í umferð + 1 loftlykkjubogi í hverri laskalínu (= 4 loftlykkjubogar) = alls 46-54-62-64-72-82 loftlykkjubogar.
Nú er mynstrið heklað og aukið er út þannig:
Heklið A.5a (= útaukning laskalína), A.3 þar til 1 loftlykkjubogi er eftir á undan næstu útaukningu fyrir laskalínu, A.6 (= útaukning laskalína), A.3 þar til 1 loftlykkjubogi er eftir á undan næstu útaukningu fyrir laskalínu, A.6 (= útaukning laskalína), A.3 þar til 1 loftlykkjubogi er eftir á undan næstu útaukningu fyrir laskalínu, A.6 (= útaukning laskalína), A.3 þar til 1 loftlykkjubogi er eftir í umferð og endið með A.5b. Haldið svona áfram hringinn þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka. Nú eru 50-58-66-68-76-86 loftlykkjubogar í umferð. Nú er mynstrið heklað eins og áður án þess að auka út fyrir laskalínu.
Þ.e.a.s. endurtakið 2 síðustu umferðirnar í A.3 þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki – stillið af að endað sé eftir síðustu umferð í mynsturteikningu. Nú er eftir 1 cm á berustykki til loka.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 3 loftlykkjur (= byrjun á umferð), heklið umferð með ör í A.3 yfir næstu 15-17-19-20-22-25 loftlykkjuboga (= bakstykki), hoppið yfir næstu 9-11-13-13-15-17 loftlykkjuboga (= ermi), heklið 8-8-8-8-8-8 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið A.3 yfir næstu 16-18-20-21-23-26 loftlykkjuboga (= framstykki), hoppið yfir næstu 9-11-13-13-15-17 loftlykkjuboga (= ermi), heklið 8-8-8-8-8-8 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið A.3 um síðustu loftlykkju í umferð, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú er mynstrið heklað í hring þannig:
Heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, haldið áfram með mynstur eins og áður (þ.e.a.s. A.3) hringinn í umferð, en yfir 8 lausar loftlykkjur í hlið undir ermi, heklið 2 mynstureiningar A.3 = 36-40-44-46-50-56 mynstureiningar A.3 í umferð.
Haldið svona áfram í hring og endurtakið 2 síðustu umferðirnar í A.3 þar til stykkið mælist ca 30 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með 3 stuðlum + 1 loftlykkju (næst síðasta umferð í A.3). Öll peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Byrjið frá réttu og festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu af 8 loftlykkjum í hlið undir ermi. Byrjið umferð með ör í A.3 og heklið 2 mynstureiningar um 8 loftlykkjurnar undir ermi, haldið síðan áfram hringinn með A.3 – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR = 11-13-15-15-17-19 loftlykkjubogar. Haldið svona áfram hringinn og endurtakið síðustu 2 umferðir í A.3 þar til ermin mælist 15-13-12-10-9-7 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með 3 stuðlum + 1 loftlykkju (næst síðasta umferð í A.3). Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Festið þráðinn með 1 keðjulykkju, heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju hringinn í umferð jafnframt er fækkað um 11-8-5-10-6-11 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 77-80-83-86-90-93 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = Í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, heklið síðan 1 keðjulykkju í hvern stuðul fram að loftlykkjuboga
symbols = Í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = Byrjið í þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð
symbols = Í þessari umferð hefur ekki verið aukið nægilega út margar lykkjur til að hekla A.2b, farðu beint áfram og endaðu umferðina eins og útskýrt er í byrjun á A.2a. Í næstu umferð er heklað A.2b eins og útskýrt er í mynsturteikningu (= 4 loftlykkjur).
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Lorna wrote:

So I’ve worked until dividing for the sleeves but my stitches are all slanted so the sleeves are in totally the wrong place. It doesn’t look straight like the picture. I haven’t changed my hook or tension and have had the correct number of stitches/spaces throughout. What am I doing wrong? Any help would be appreciated.

10.10.2022 - 15:26

DROPS Design answered:

Dear Lorna, after division you should now work pattern as before following now only A.3 over all stitches - adjust the beginning of the round and the first round so that pattern will not be displaced. Happy crocheting!

10.10.2022 - 16:07

country flag Marianne Spruijt wrote:

Ik begrijp niet helemaal wat jullie bedoelen bij A2b: bij de eerste keer zijn er niet genoeg steken gemeerderd om A6b te haken (klopt)maar dan snap ik het niet wat bedoeld word met : verplaats op het einde de toer zoals uitgelegd op het begin van A2a?????

12.07.2022 - 12:54

DROPS Design answered:

Dag Marianne,

Het staat inderdaad niet goed uitgelegd bij dit symbool. De bedoeling is dat je gewoon verder haakt met A.2a en pas op de volgende toer (wanneer er genoeg steken zijn) begint met A.2b. De omschrijving van het symbool heb ik inmiddels aangepast. Hopelijk is het zo duidelijk.

17.07.2022 - 12:31

country flag François wrote:

Bonjour, dans l'explication, au chapitre empiècement après les augmentations pour diviser le devant et derrière des manches, vous dites de faire 8 arceaux sous la manche et pour la deuxième manche vous dites 8 mailles en l'air. Je pense qu'il y a une erreur sur l'une des deux. Laquelle faut-il retenir 8 mailles ou 8 arceaux ? Merci de me renseigner. Christel

28.09.2020 - 11:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme François, il faut faire 8 mailles en l'air sous les 2 manches, merci pour votre retour, les explications vont être corrigées de suite. Bon crochet!

28.09.2020 - 12:28

country flag Lucia wrote:

Buongiorno, esiste una versione cardigan di questo modello? Grazie❣

24.05.2020 - 15:05

DROPS Design answered:

Buongiorno Lucia. Purtroppo per questo modello non è prevista la versione cardigan. A questo link trova altri nostri cardigan all'uncinetto, che potrebbero piacerle. Buon lavoro!

24.05.2020 - 17:33

country flag Sonia wrote:

Bonjour. Avez-vous des patrons au crochet pour gauchères, en français? Les croquis pour droitières sont trop difficiles à suivre... J'en cherche depuis des années et je n'ai jamais trouvé... :-( Merci!

18.05.2020 - 16:08

DROPS Design answered:

Bonjour Sonia, nous sommes toutes droitières, je suis désolée, en revanche, cette leçon explique comment lire un diagramme et vous permettre peut-être de les adapter à votre façon de faire? Bonne chance!

19.05.2020 - 07:37

country flag Salky wrote:

Can anyone help with pattern? I'm ok until yoke! ( I think)

09.05.2020 - 17:58

DROPS Design answered:

Dear Salky, you are welcome to ask your question here - and/or request individual assistance from the store where you bought the yarn. Happy crocheting!

11.05.2020 - 09:33

country flag Susanne Glans wrote:

Super modern und luftig. Anleitung gerne diesen Sommer

10.04.2020 - 16:24

country flag Stefanie Spira wrote:

Sieht wirklich klassisch schön aus, aber damit ich das Teil im Sommer noch tragen kann, bräuchte ich langsam eine Anleitung. Im Voraus lieben Dank.

07.04.2020 - 08:56

country flag Angelica Neef wrote:

Why tooks the pattern so long

30.03.2020 - 10:40

country flag Anne Helen Jacobsen wrote:

Nydelig. Flott sommerplagg. Kommer til å hekle denne.

26.02.2020 - 08:13