Inger Alderblad skrifaði:
Har väntat 4 månader på detta mönster. Vore trevligt att få det snart i dessa coronatider då man har tid att virka.
28.04.2020 - 21:14
Rey skrifaði:
A quand les explications merci
23.04.2020 - 13:47
FRAUDAIN skrifaði:
J'adore ce modèle, j'aurai aimé le tricoter pendant le "Confinement".
17.03.2020 - 10:18
Kim skrifaði:
This is GORGEOUS! I do hope that you'll add most of the crochet patterns.
24.02.2020 - 19:50
Val Lightfoot skrifaði:
Love this cardigan, I do hope there will be a pattern for it soon so I can make it for my holiday
25.01.2020 - 20:00
Ourd59 skrifaði:
Un gilet stylé
22.01.2020 - 21:08
Maria Cecchinato skrifaði:
Beautiful and comfortable!
18.01.2020 - 08:09
Ana skrifaði:
Very pretty cardigan. Please include pattern.
14.01.2020 - 13:08
Mermaid Magic Jacket#mermaidmagicjacket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er heklað ofan frá og niður með A-formi, sólfjaðramynstri og vængjaermum. Stærð XS/S - XXXL.
DROPS 210-8 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININAR UM LOFTLYKKJU: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli/tvöföldum stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklað er fram og til baka: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul í umferð. Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, heklið 4 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul í umferð. Þegar heklað er í hring (með snúningi): Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, heklið 4 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð. LEIÐBEININGAR (á við um þegar heklað er í kringum ermar): Til að áferðin verði alveg eins og þegar heklað er fram og til baka, snúið stykkinu í hvert skipti sem heklað er. Þ.e.a.s. önnur hver umferð er hekluð frá réttu og frá röngu þannig: Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju/4. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju/4. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykki. Haldið svona áfram fram og til baka, til skipist ein umferð frá réttu og ein umferð frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 stuðlar eru eftir í umferð þannig: Heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 stuðul, heklið 1 stuðul í hvern og einn af þeim 2 stuðlum sem eftir eru. Í næstu umferð er heklaður 1 stuðull um lofltykkjuna. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í næstu umferð frá réttu þar öll útaukning fyrir V-hálsmáli hefur verið gerð. Fellið síðan af fyrir næstu 4 hnappagötum með ca 7-7-7-8-8-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Bakstykkið og framstykkin eru hekluð hvert fyrir sig, fram og til baka niður að handveg. Síðan eru stykkin hekluð saman og fram- og bakstykki er síðan heklað fram og til baka. Ermar eru heklaðar ofan frá og niður, fyrst fram og til baka þar til ermakúpan hefur verið gerð til loka, síðan er heklað áfram hringinn, jafnframt þar sem stykkinu er snúið við í hverri umferð til að áferðin verði eins yfir allt stykkið. BAKSTYKKI: Vinstri öxl: Heklið 19-25-25-25-25-31 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur þannig – sjá HEKLLEIÐBEININGAR: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.1a yfir fyrstu 12-18-18-18-18-24 loftlykkjur (= 2-3-3-3-3-4 mynstureiningar), A.1b yfir síðustu 7 loftlykkjurnar. Þegar fyrsta umferðin hefur verið hekluð, klippið þráðinn frá. Geymið stykkið. Hægri öxl: Heklið 19-25-25-25-25-31 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.1a yfir fyrstu 12-18-18-18-18-24 loftlykkjurnar (= 2-3-3-3-3-4 mynstureiningar), A.1b yfir síðustu 7 loftlykkjurnar. UMFERÐ 2 (ranga): Heklið næstu umferð í mynsturteikningu yfir hægri öxl. Í lok umferðar eru heklaðar 29-29-35-35-35-35 lausar loftlykkjur (= háls), haldið síðan áfram yfir vinstri öxl frá röngu í mynstri eins og áður. Hægri og vinstri öxl hafa nú verið heklaðar saman og það eru 29-29-35-35-35-35 loftlykkjur fyrir hálsmáli mitt á stykki. Snúið og heklið næstu umferð frá réttu þannig: Heklið mynstur eins og áður fram að loftlykkjum fyrir hálsmáli, síðan er heklað frá umferð með ör í A.1a yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli (= 5-5-6-6-6-6 fjaðrir), haldið áfram með mynstur eins og áður út umferðina. Nú eru 11-13-14-14-14-16 mynstureiningar með sólfjöðrum í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram fram og til baka þar til heklaðar hafa verið alls 10-10-12-12-10-10 umferðir með sólfjöðrum. Stykkið mælist ca 13-13-15-15-13-13 cm frá öxl. Nú er heklað mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð XS/S, M, L og XL: Nú er aukið út fyrir handveg í hvorri hlið á stykki með því að hekla A.2a yfir A.1a og A.2b yfir A.1b. Þegar heklað hefur verið til og með næst síðustu umferð í A.2a og A.2b (umferðin endar með síðustu 2 loftlykkjum í næst síðustu umferð í A.2a) hafa verið auknar út nægilega margar lykkjur fyrir 1 nýrri sólfjöður í hvorri hlið á stykki. Klippið frá. Geymið stykkið. Stykkið mælist ca 18-18-20-20 cm frá öxl (nú er eftir 1 umferð þar til handvegur hefur verð gerður til loka á hæðina). Stærð XXL og XXXL: Nú er aukið út fyrir handveg í hvorri hlið á stykki með því að hekla A.2a yfir A.1a og A.2b yfir A.1b. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð eftir ör þar sem heklað er upp að næst síðustu umferð í mynsturteikningu (umferðin endar með síðustu 2 loftlykkjur í næst síðustu umferð í A.2a). Nú hafa verið auknar út nægilega margar lykkjur fyrir 2 nýjum sólfjöðrum í hvorri hlið á stykki. Klippið frá. Geymið stykkið. Stykkið mælist ca 23-23 frá öxl (nú er eftir 1 umferð þar til handvegur hefur verið heklaður til loka á hæðina). HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 7 loftlykkjur, með heklunál 4,5 með Sky. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá hekunálinni (= 2 stuðlar) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 3 loftlykkjum (= 5 stuðlar). Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist ca 9-9-10-10-10-10 cm. Heklið 19-25-25-25-25-31 lausar loftlykkjur í lok umferðar. Heklið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.1a yfir fyrstu 12-18-18-18-18-24 loftlykkjur (= 2-3-3-3-3-4 mynstureiningar), A.1b yfir næstu 7 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern af 5 stuðlum fyrir kant að framan. Haldið áfram fram og til baka með sólfjaðramynstri og 5 stuðlum fyrir kant að framan, jafnframt er aukið út fyrir V-hálsmáli og handveg þannig: V-hálsmál: Þegar heklaðar hafa verið 4-4-6-6-6-8 umferðir með sólfjöðrum er aukið út í næstu umferð frá réttu þannig: Heklið frá umferð með ör í A.2b yfir sólfjöðrum á undan kanti að framan. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð eftir ör þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að hekla 3 nýjar sólfjaðrir innan við kant að framan. Ef kanturinn að framan verður aðeins of stífur á hæðina þegar aukið er út fyrir V-hálsmáli, er hægt að hekla tvíbrugðna stuðla í stað stuðla í ca annarri hverri umferð. Ef útaukningin fyrir V-hálsmáli er ekki lokið þegar útaukning fyrir handveg er lokið, heldur útaukningin áfram þegar fram- og bakstykki er heklað. Handvegur: Þegar heklaðar hafa verið 10-10-12-12-10-10 umferðir með sólfjöðrum (stykkið mælist ca 13-13-15-15-13-13 cm frá öxl), aukið út fyrir handveg alveg eins og á bakstykki (þ.e.a.s. þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að hekla 1-1-1-1-2-2 nýjar sólfjaðrir í hlið). Síðasta umferðin sem er hekluð, heklið frá röngu og endið með 2 loftlykkjum eins og útskýrt er í næst síðustu umferð í A.2a. Klippið frá. Geymið stykkið. Stykkið mælist ca 18-18-20-20-23-23 cm frá öxl og niður (nú er eftir 1 umferð þar til handvegur hefur verið gerður til loka á hæðina). VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið 7 loftlykkjur, með heklunál 4,5 með Sky. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá hekunálinni (= 2 stuðlar) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3 loftlykkjum (= 5 stuðlar). Haldið svona áfram fram og til baka þar til kanturinn að framan mælist ca 9-9-10-10-10-10 cm. Heklið 19-25-25-25-25-31 lausar loftlykkjur í lok umferðar. Klippið þráðinn frá. Heklið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 1 stuðul í hvern af 5 stuðlum fyrir kant að framan, A.1a yfir fyrstu 12-18-18-18-18-24 loftlykkjur (= 2-3-3-3-3-4 mynstureiningar), A.1b yfir næstu 7 loftlykkjur. Haldið áfram fram og til baka með sólfjaðramynstri og 5 stuðlum fyrir kant að framan, jafnframt er aukið út fyrir V-hálsmáli og handveg þannig: V-hálsmál: Nú hafa verið heklaðar 4-4-6-6-6-8 umferðir með sólfjöðrum, heklið næstu umferð frá réttu þannig: Heklið frá umferð með ör í A.2a yfir sólfjaðrir á eftir kanti að framan. Þegar mynstureining hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð á eftir með ör þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að hekla 3 nýjar sólfjaðrir innan við kant að framan. Ef kantur að framan verður aðeins stífur á hæðina þegar aukið er út fyrir V-hálsmáli, er hægt að hekla tvíbrugðna stuðla í stað stuðla í ca annarri hverri umferð. Ef útaukning fyrir V- hálsmáli er ekki lokið þegar útaukning fyrir handveg er lokið, heldur útaukning áfram þegar fram- og bakstykki er heklað. Handvegur: Þegar heklaðar hafa verið 10-10-12-12-10-10 umferðir með sólfjöðrum (stykkið mælist ca 13-13-15-15-13-13 cm frá öxl), aukið út fyrir handveg alveg eins og á bakstykki (þ.e.a.s. þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að hekla 1-1-1-1-2-2 nýjar sólfjaðrir í hlið). Síðasta umferðin sem er hekluð, heklið frá röngu. Stykkið mælist ca 18-18-20-20-23-23 cm frá öxl og niður (nú er eftir 1 umferð þar til handvegur hefur verið gerður til loka á hæðina). Klippið ekki frá, en heklið stykkin saman þannig: FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI HEKLUÐ SAMAN: Nú eru hekluð saman framstykki og bakstykki þannig: Heklið eins og áður yfir lykkjur á vinstra framstykki (útaukning fyrir v-hálsmáli heldur áfram þar til auknar hafa verið út 3 sólfjaðrir innan við kant að framan), heklið 5-5-5-17-17-17 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermum), heklið eins og útskýrt er í síðustu umferð í A.2a (= fyrstu 2 sólfjaðrirnar á bakstykki), haldið áfram með sólfjaðrir yfir bakstykki þar til 2 sólfjaðrir eru eftir, heklið eins og útskýrt er í síðustu umferð í A.2b (= síðustu 2 sólfjaðrirnar á bakstykki), heklið 5-5-5-17-17-17 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermum), heklið eins og útskýrt er í síðustu umferð í A.2a (= þær 2 fyrstu sólfjaðrirnar á hægra framstykki), haldið áfram eins og áður yfir lykkjur á hægra framstykki (útaukning fyrir v-hálsmáli heldur áfram þar til auknar hafa verið út 3 sólfjaðrir innan við kant að framan). Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið svona áfram fram og til baka með mynstri og heklið 1-1-1-3-3-3 sólfjaðrir eins og útskýrt er í fyrstu umferð í A.1a yfir loftlykkjur í hlið undir ermi. Þegar allar útaukningar fyrir V-hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 29-33-34-38-42-46 mynstureiningar með sólfjöðrum í umferð. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist ca 12 cm, heklið eins og útskýrt er í umferð með A.3. Endurtakið þessa umferð þar til stykkið mælist 32-35-35-37-36-36 cm. Heklið síðan eins og útskýrt er í síðustu umferð með A.3 og heklið tvíbrugðna stuðla í kanti að framan í hvorri hlið við miðju að framan í stað stuðla. Þegar stykkið mælist 36-39-39-41-40-42 cm er peysan tilbúin. Stykkið mælist alls 55-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda. ERMI: Heklið 55-43-49-37-37-37 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur frá umferð með ör í mynsturteikningu þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 48-36-42-30-30-30 loftlykkjur (= 8-6-7-5-5-5 mynstureiningar á breidd), A.1b yfir síðustu 7 loftlykkjur, heklið 2 loftlykkjur í lok umferðar (= útaukning í hlið eins og útskýrt er í lok umferðar með ör A.2b). Snúið og heklið sólfjaðrir fram og til baka, jafnframt er aukið út með sólfjöðrum í hvorri hlið á stykki eins og útskýrt er í A.2a og A.2b. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið jafnvel mynstur frá umferð eftir umferð með ör. Þegar aukið hefur verið út um 1-2-2-2-3-3 sólfjaðrir í hvorri hlið eru 11-11-12-10-12-12 sólfjaðrir í umferð og stykkið mælist ca 6-11-11-11-16-16 cm – stillið af að endað sé eftir umferð sem er eins og síðasta umferð í A.2a og A.2b. Í stærð XS/S er heklað áfram með sólfjöðrum án útaukningar í hliðum þar til stykkið mælist 9 cm (= ca 2 umferðir án útaukningar). Heklið síðan í öllum stærðum þannig: Í lok síðustu umferðar eru heklaðar 5-5-5-17-17-17 loftlykkjur (= mitt undir ermi), heklið síðan 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð (= fyrsta tákn í A.2a). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið síðan hringinn – sjá LEIÐBEININGAR og HEKLLEIÐBEININGAR og sólfjaðramynstur er heklað eins og áður. Yfir nýjar loftlykkjur undir ermi eru heklaðar 1-1-1-3-3-3 nýjar sólfjaðrir alveg eins og í hlið undir ermi á fram- og bakstykki = 12-12-13-13-15-15 sólfjaðrir í umferð. Þegar stykkið mælist ca 3 cm, fækkið lykkjum hvoru megin við miðju sólfjöður undir ermi þannig (miðju sólfjöður er ekki teiknuð í mynsturteikningu): Heklið eins og útskýrt er í A.4a á eftir miðju sólfjöður (séð frá réttu) og eins og útskýrt er í A.4b á undan miðju sólfjöður (séð frá réttu). Endurtakið A.4a og A.4b þar til fækkað hefur verið um 2 sólfjaðrir hvoru megin við miðju sólfjöður undir ermi = 8-8-9-9-11-11 sólfjaðrir í umferð. Heklið áfram þar til ermin mælist 28-24-24-25-21-19 cm frá nýjum loftlykkjum undir ermi (nú eru eftir ca 17 cm að loka máli) – styttri ermar í stærri stærðum vegna breiðari axla. Nú er hekluð umferð með ör í A.5 í 4 cm, heklið síðan næstu umferð í mynsturteikningu í 5 cm, heklið síðan síðustu umferð í mynsturteikningu þar til ermin mælist 45-41-41-42-38-36 cm frá nýjum loftlykkjum undir ermi. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Heklið axlasauma saman í gegnum bæði lögin frá röngu þannig: Leggið axlirnar saman þannig að réttan liggi að réttu og festið enda með 1 fastalykkju í gegnum bæði lögin yst við öxl. Heklið * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ½ -1 cm, 1 fastalykkja í gegnum bæði lögin *, heklið frá *-* meðfram öxl. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina á sama hátt. Heklið ermar fyrir fram- og bakstykki í gegnum bæði lögin frá röngu þannig: Leggið stykkin saman þannig að réttan liggi að réttu og festið þráðinn með 1 fastalykkju ca mitt undir ermi, heklið * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ½ -1 cm, 1 fastalykkja um bæði lögin *, heklið frá *-* í kringum alla ermina. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina við fram- og bakstykki á sama hátt. Saumið kanta að framan við miðju að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mermaidmagicjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.