DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mermaid Magic

Hekluð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er heklað ofan frá og niður með A-formi, sólfjaðramynstri og vængjaermum. Stærð XS/S - XXXL.

DROPS 210-7
DROPS Design: Mynstur sk-070
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS/S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-350-400-450-500 g litur 15, ljós mynta.

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 8 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
1 mynstureining A.1b á að mælast 3 cm á breidd.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR (þegar heklað er í hring):
Til að áferðin verði eins þegar heklað er fram og til baka, snúið stykkinu í hverri umferð sem er hekluð. Þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu og röngu þannig:
Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu á stykkinu. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju/4. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju/4. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykki.
Haldið svona áfram fram og til baka, til skiptis með umferð frá réttu og umferð frá röngu.

HEKLLEIÐBEININAR UM LOFTLYKKJU:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli/tvöföldum stuðli.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul.
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, heklið 4 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Bakstykkið og framstykkin eru fram og til baka niður að handveg, síðan eru stykkin hekluð saman og fram- og bakstykki er síðan heklað í hring, jafnframt því sem stykkinu er snúið í hverri umferð – sjá LEIÐBEININGAR.
Ermar eru heklaðar ofan frá og niður, fyrst fram og til baka þar til ermakúpan hefur verið gerð til loka, síðan er heklað áfram hringinn, jafnframt þar sem stykkinu er snúið við í hverri umferð eins og á fram- og bakstykki.

BAKSTYKKI:
Vinstri öxl:
Heklið 19-25-25-25-25-31 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.1a yfir fyrstu 6 loftlykkjur, A.1b yfir næstu 6-12-12-12-12-18 loftlykkjur (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar), A.1c yfir síðustu 7 loftlykkjur. Klippið þráðinn frá og geymið stykkið.
Hægri öxl:
Heklið 19-25-25-25-25-31 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.1a yfir fyrstu 6 loftlykkjur, A.1b yfir næstu 6-12-12-12-12-18 loftlykkjur (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar), A.1c yfir síðustu 7 loftlykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): Heklið næstu umferð í mynsturteikningu yfir hægri öxl. Í lok umferðar eru heklaðar 29-29-35-35-35-35 lausar loftlykkjur (= hálsmál), haldið síðan áfram yfir vinstri öxl frá röngu í mynstri eins og áður. Hægri og vinstri öxl hafa nú verið heklaðar saman og það eru 29-29-35-35-35-35 loftlykkjur fyrir hálsmáli mitt á stykki.
Snúið og heklið næstu umferð frá réttu þannig:
Heklið mynstur eins og áður fram að loftlykkjum fyrir hálsmáli, síðan er heklað frá umferð með ör í A.1b alls 5-5-6-6-6-6 sinnum yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli, haldið síðan áfram með mynstur eins og áður út umferðina. Nú eru 11-13-14-14-14-16 mynstureiningar með sólfjöðrum í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram fram og til baka með mynstur þar til heklaðar hafa verið alls 10-10-12-12-10-10 umferðir með sólfjöðrum. Stykkið mælist ca 13-13-15-15-13-13 cm. Nú er heklað mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð XS/S, M, L og XL:
Nú er aukið út fyrir handveg í hvorri hlið á stykki með því að hekla A.2a yfir A.1a og A.2c yfir A.1c. Þegar heklað hefur verið til og með næst síðustu umferð í A.2a og A.2c (umferðin endar með síðustu 2 loftlykkjum í næst síðustu umferð í A.2a) hafa verið auknar út nægilega margar lykkjur fyrir 1 nýrri sólfjöður í hvorri hlið á stykki. Klippið frá. Geymið stykkið. Stykkið mælist ca 18-18-20-20 cm frá öxl (nú er eftir 1 cm þar til handvegur hefur verð gerður til loka á hæðina).

Stærð XXL og XXXL:
Nú er aukið út fyrir handveg í hvorri hlið á stykki með því að hekla A.2a yfir A.1a og A.2c yfir A.1c. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð eftir ör þar sem heklað er upp að næst síðustu umferð í mynsturteikningu (umferðin endar með síðustu 2 loftlykkjur í næst síðustu umferð í A.2a). Nú hafa verið auknar út nægilega margar lykkjur fyrir 2 nýjum sólfjöðrum í hvorri hlið á stykki. Klippið frá. Geymið stykkið. Stykkið mælist ca 23-23 cm (nú eru eftir ca 1 cm þar til handvegur hefur verið heklaður til loka á hæðina).

FRAMSTYKKI:
Hægri öxl:
Heklið 19-25-25-25-25-31 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.1a yfir fyrstu 6 loftlykkjur, A.1b yfir næstu 6-12-12-12-12-18 loftlykkjur (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar), A.1c yfir síðustu 7 loftlykkjurnar.
UMFERÐ 2-5: Heklið eins og síðustu 2 umferðir í A.1a til A.1c. Klippið frá og geymið stykkið.
Vinstri öxl:
Heklið 19-25-25-25-25-31 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.1a yfir fyrstu 6 loftlykkjur, A.1b yfir næstu 6-12-12-12-12-18 loftlykkjur (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar), A.1c yfir síðustu 7 loftlykkjurnar.
UMFERÐ 2-5: Heklið eins og síðustu 2 umferðir í A.1a til A.1c.
UMFERÐ 6 (ranga): Heklið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur á vinstri öxl. Í lok umferðar eru heklaðar 29-29-35-35-35-35 lausar loftlykkjur (= hálsmál), heklið síðan yfir hægri öxl frá röngu í mynstri eins og áður. Hægri og vinstri öxl hafa nú verið heklaðar saman og það eru 29-29-35-35-35-35 loftlykkjur fyrir hálsmáli mitt í stykki.
Heklið áfram með mynstur og útaukningu fyrir handveg í hvorri hlið alveg eins og á bakstykki, en klippið ekki frá þegar handvegur hefur verið heklaður til loka.

FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI HEKLUÐ SAMAN:
Nú eru hekluð saman framstykki og bakstykki þannig:
Heklið síðustu umferð í A.2a, haldið síðan áfram með sólfjaðramynstur eins og áður yfir framstykki þar til 2 sólfjaðrir eru eftir, heklið eins og útskýrt er í síðustu umferð í A.2c, heklið 5-5-5-17-17-17 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið 1 stuðul í ystu af 2 lausu loftlykkjum sem heklaðar voru í lok síðustu umferðar á bakstykki og haldið síðan áfram með síðustu umferð í A.2a (fyrsta tákn, þ.e.a.s. 3 loftlykkjur, er skipt út fyrir 1 stuðul), heklið sólfjaðramynstur eins og áður yfir framstykki þar til eftir eru 2 sólfjaðrir, heklið eins og útskýrt er í síðustu umferð í A.2c, heklið 5-5-5-17-17-17 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi) og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Heklið síðan stykkið hringinn, en stykkinu er snúið við í hverri umferð – sjá LEIÐBEININGAR og HEKLLEIÐBEININGAR. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið áfram hringinn með sólfjaðramynstri og heklið 1-1-1-3-3-3 sólfjaðrir eins og útskýrt er í fyrstu umferð í A.1b yfir loftlykkjur í hlið undir ermi = 28-32-34-38-42-46 mynstureiningar hringinn í umferð.
Þegar stykkið mælist ca 12 cm, heklið eins og útskýrt er í umferð með ör í A.3. Endurtakið þessa umferð þar til stykkið mælist 32-35-35-37-36-36 cm. Heklið síðan eins og útskýrt er í síðustu umferð þar til stykkið mælist 36-39-39-41-40-42 cm.
Stykkið mælist alls 55-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda.

ERMAR:
Heklið 55-43-49-37-37-37 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur frá umferð með ör í mynsturteikningu þannig:
Heklið A.1a yfir fyrstu 6 loftlykkjur, A.1b yfir næstu 42-30-36-24-24-24 loftlykkjur (= 7-5-6-4-4-4 mynstureiningar á breidd), A.1b yfir síðustu 7 loftlykkjur, heklið 2 loftlykkjur í lok umferðar (= útaukning í hlið eins og útskýrt er í lok A.2c). Snúið og heklið sólfjaðrir fram og til baka, jafnframt er aukið út með sólfjöðrum í hvorri hlið á stykki eins og útskýrt er í A.2c og A.2a.
Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið jafnvel mynstur frá umferð eftir þeirri með ör. Þegar aukið hefur verið út um 1-2-2-2-3-3 sólfjaðrir í hvorri hlið eru 11-11-12-10-12-12 sólfjaðrir í umferð og stykkið mælist ca 6-11-11-11-16-16 cm – stillið af að endað sé eftir umferð sem er eins og síðasta umferð í A.2a og A.2c.
Í stærð XS/S er heklað áfram með sólfjöðrum án útaukninga í hliðum þar til stykkið mælist 9 cm (= ca 2 umferðir án útaukninga).
Heklið síðan í öllum stærðum þannig:
Í lok síðustu umferðar eru heklaðar 5-5-5-17-17-17 loftlykkjur (= mitt undir ermi), heklið síðan 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð (= fyrsta tákn í A.2a). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Heklið síðan hringinn – sjá LEIÐBEININGAR og HEKLLEIÐBEININGAR og sólfjaðramynstur er heklað eins og áður. Yfir nýjar loftlykkjur undir ermi eru heklaðar 1-1-1-3-3-3 nýjar sólfjaðrir alveg eins og í hlið undir ermi á fram- og bakstykki = 12-12-13-13-15-15 sólfjaðrir í umferð.
Þegar stykkið mælist ca 3 cm, fækkið lykkjum hvoru megin við miðju sólfjöður undir ermi þannig:
Heklið eins og útskýrt er í A.4a á eftir miðju sólfjöður (séð frá réttu) og eins og útskýrt er í A.4b á undan miðju sólfjöður (séð frá réttu). Endurtakið A.4a og A.4b þar til fækkað hefur verið um 2 sólfjaðrir hvoru megin við miðju sólfjöður undir ermi = 8-8-9-9-11-11 sólfjaðrir í umferð. Heklið áfram þar til ermin mælist 28-24-24-25-21-19 cm frá nýjum loftlykkjum undir ermi – styttri ermar í stærri stærðum vegna breiðari axla. Nú eru eftir ca 17 cm að loka máli.
Nú er hekluð umferð með ör í A.5 í 4 cm, heklið síðan næstu umferð í mynsturteikningu í 5 cm, heklið síðan síðustu umferð í mynsturteikningu þar til ermin mælist 45-41-41-42-38-36 cm frá nýjum loftlykkjum undir ermi. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Heklið axlasauma saman í gegnum bæði lögin frá röngu þannig: Leggið axlirnar saman þannig að réttan liggi að réttu og festið enda með 1 fastalykkju í gegnum bæði lögin yst við öxl. Heklið * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ½ -1 cm, 1 fastalykkja í gegnum bæði lögin *, heklið frá *-* meðfram öxl. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina öxlina alveg eins.
Heklið ermar fyrir fram- og bakstykki í gegnum bæði lögin frá röngu þannig:
Leggið stykkin saman þannig að réttan liggi að réttu og festið þráðinn með 1 fastalykkju ca mitt undir ermi, heklið * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ½ -1 cm, 1 fastalykkja um bæði lögin *, heklið frá *-* í kringum alla ermina. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina við fram- og bakstykki á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið með Sky og heklunál 4,5 þannig: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju mitt ofan á öxl og heklið frá réttu þannig: * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ½ -1 cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* í kringum hálsinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
Leiðrétting í mynsturteikningu A.3.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðull / tvíbrugðinn stuðull
symbols = 2 loftlykkjur - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðull / tvíbrugðinn stuðull
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = byrjið í þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð. Umferðin með ör er talin sem 1. umferð í mynsturteikningu
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = heklið 3 loftlykkjur í byrjun á umferð
symbols = heklið 4 loftlykkjur í lok umferðar
symbols = heklið 3 loftlykkjur í byrjun á umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkju
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Annie wrote:

After row 2 on the back piece, it says "continue back and forth with pattern until 10 rows with fans have been worked in total." do these 10 rows include the rows before the chain, as in the ones that are pieced before? or only the rows after the chain's addition? thanks :)

08.01.2024 - 01:22

DROPS Design answered:

Dear Annie, measure from top on shoulder, ie including the first row worked separately in each shoulder (piece should measure approx. 13 cm with 8 rows = 10 cm). Happy crocheting!

08.01.2024 - 11:03

country flag Dagna wrote:

Dziękuję za odpowiedz. Pierwszy raz robię sweter i zupełnie nie mam wiedzy na ten temat, jak widac myślałam dokładnie odwrotnie. Serdecznie pozdrawiam.

13.01.2023 - 11:42

country flag Dagna wrote:

Dziękuję za odpowiedz. Pierwszy raz robię sweter i zupełnie nie mam wiedzy na ten temat, jak widac myślałam dokładnie odwrotnie. Serdecznie pozdrawiam.

13.01.2023 - 11:42

country flag Dagna wrote:

Nie rozumiem dlaczego w rękawach jest taki opis 55-43-49-37-37-37, wynikalo by z tego, ze dla rozmiaru xs/s trzeba nabrac 55 oczek, a dla rozmiaru xxl tylko 37. To jest nielogiczne. Czy ten zapis, zgodnie ze stylem stosowanym w opisie przodu i tylu nie powinien byc 37-37-37-43-49-55? Czy wielkosc rekawa nie zalezy od rozmiaru?

12.01.2023 - 20:37

DROPS Design answered:

Witaj Dagno, we wzorze nie ma błędu. To o czym piszesz wynika z konstrukcji rękawa. Główka rękawa w mniejszych rozmiarach (gdzie podkrój rękawa jest krótszy a ramiona węższe) jest krótsza i szersza na górze (spłaszczona). W większych rozmiarach główka rękawa jest dłuższa i węższa na górze. Pozdrawiamy!

13.01.2023 - 08:52

country flag Ulla Poulsen wrote:

Hej. I diagramforklaringen står der ved tegn fire: “1 standmaske”. Er det korrekt eller skulle der stå “stangmaske”? Hvis det er korrekt med standmaske, hvad er det i så fald?

24.09.2022 - 17:34

DROPS Design answered:

Hei Ulla. Her var det bare en tastefeil på den danske siden. Det skal være stangmaske. Dette er nå ordnet, takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh DROPS Design

26.09.2022 - 10:37

country flag Johanna S Houman wrote:

I don't understand when to increase for the armholes. It says that the piece should measure 5 1/8" (for XXL) when increases start? How many times do I repeat the A2a and A2c? Very confusing. Thanks!

03.06.2022 - 22:54

DROPS Design answered:

Dear Johanna, since the number of repeats may vary due to your personal gauge, it's more exact to indicate the amount of cm/ inches where you should start increasing for the armholes. For the armhole increases you work A.2a and A.2c, which include the increases and are worked once vertically in full and a second time from the row with the arrow to the next to last row. Happy crocheting!

04.06.2022 - 18:44

country flag William wrote:

When working the front piece, after connecting the left and right shoulder with a chain, how many rows should there be before increasing for the armhole? Is it 10, like with the back piece, or should I be increasing in the 7th row immediately after finishing the 6th?

01.05.2022 - 01:40

DROPS Design answered:

Dear William, You work pattern and increase for armhole on front piece as you worked on back piece. You should have the same number of rows from the top of shoulder (foundation chain) on back and front piece before connecting them. Happy crocheting!

02.05.2022 - 08:49

country flag Janneke wrote:

Bij het achterpand moeten er 10 toeren met waaiers gehaakt worden voor het meerderen. Tellen dan de toeren van de schouders al mee, of moet ik vanaf de halslijn tellen? En die 13cm, zelfde vraag is dat vanaf de schouder of de halslijn?

23.02.2022 - 22:25

DROPS Design answered:

Dag Janneke,

Dit is vanaf de schouder geteld en gemeten.

26.02.2022 - 14:17

country flag Lorraine Roberts wrote:

On the body, A3, where the final rows have clusters of double treble stitches, the pattern shows a single treble stitch in between: should that be a single double treble stitch, as for the sleeve A5? I’ve done a couple of rows as per the pattern but I’m not convinced it isn’t curling up a little at the edge. Thanks for your help.

20.01.2022 - 10:15

DROPS Design answered:

Dear Lorraine, yes, the idea is that the pattern becomes slightly curly or wavy at the end, both in the sleeve and on the body. But if you want it to be straight, you may work a double treble crochet. Happy crocheting!

05.02.2022 - 19:52

country flag Nelly wrote:

I don't see any info to determine the size I need to make. How do I know? All I see on the pattern is sizes SX-XXL but usually patterns have a chart like using bust size to determine size to use.

31.10.2021 - 05:07

DROPS Design answered:

Dear Nelly, the measurements of the finished piece are given on the shcematic drawing at the bottom of the pattern. We suggest that you take a garment that fits the intended user and compare those measurements. Happy Stitching!

31.10.2021 - 07:55