Maria Selvarolo skrifaði:
Quando metterete le spiegazioni per realizzare questo modello? Grazie!
17.04.2020 - 00:07
Hanne Mortensen skrifaði:
A lovely summercardigan, I Will love to do it. Why are you not making new Colors in this yarns ?
26.02.2020 - 15:46
Angelika skrifaði:
Da freue ich mich schon auf die Anleitung. Eine wunderschöne Jacke!
25.01.2020 - 13:39
Tricy skrifaði:
Beau modèle avec une laine hyper douce !
11.12.2019 - 10:20
Natalie skrifaði:
Waooh la douceur de l'alpaca bouclé !!! c'est un très beau modèle pour le printemps
10.12.2019 - 19:31
Creamy Spring Jacket#creamyspringjacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð síð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca Bouclé. Stærð XS – XXL.
DROPS 213-19 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA: Öll úrtaka fyrir v-hálsmáli er gerð frá réttu, lykkjum er fækkað innan við 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni + 1 lykkja sléttprjón (= 6 lykkjur). Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) 2 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) 5-5-7-6-6-6 sinnum. Á eftir 6 lykkjum er lykkjum fækkað þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Á undan 6 lykkjum er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). HNAPPAGÖT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (innan við 2 lykkjur frá kanti) frá réttu: Prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkjur slétt saman. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist 16-18-16-17-18-16 cm frá uppfitjunarkanti, síðan er fellt af fyrir hinum þremur götunum með ca 8-8-9-9-9-10 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna neðan frá og upp. BAKSTYKKI: Fitjið upp 52-56-62-66-70-76 lykkjur með 2 þráðum Alpaca Bouclé á hringprjón 9. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm (= klauf), prjónið í sléttprjóni yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 46-48-49-50-50-51 cm. Í næstu 2 umferðum eru felldar af 2-3-5-5-6-8 lykkjur í hvorri hlið = 48-50-52-56-58-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 61-64-66-68-70-72 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af miðju 12-12-12-14-14-14 lykkjur og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (18-19-20-21-22-23 lykkjur eftir fyrir hvora öxl). Prjónið áfram og fellið af 1 lykkju í fyrstu umferð frá hálsi = 17-18-18-20-21-22 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 63-66-68-70-72-74 cm frá uppfitjunarkanti – ATH! Það er mikilvægt að fella af (ekki sauma lykkjuspor), svo að flíkin haldi forminu. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 31-33-37-38-40-43 lykkjur með 2 þráðum Alpaca Bouclé á hringprjón 9. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm (= klauf), prjónið síðan með sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í vinstri hlið séð frá réttu. Prjónið þar til stykkið mælist 40-42-43-44-45-46 cm frá uppfitjunarkanti. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjar innan við þar sem fellt var af fyrir handveg og úrtaka fyrir v-hálsmáli heldur áfram eftir að fellt hefur verið af fyrir handveg. Byrjið úrtöku fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan. Fellið af 2-3-5-5-6-8 lykkjur fyrir handveg í gagnstæðri hlið þegar stykkið mælist 46-48-49-50-50-51 cm. Þegar affelling fyrir handveg og öll úrtaka fyrir v-hálsmáli er lokið eru 22-23-23-25-26-27 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram í sléttprjóni og kantlykkjur að framan þar til stykkið mælist 63-66-68-70-72-74 cm, stillið af þannig að næsta umferð sé frá réttu. Fellið af fyrstu 17-18-18-20-21-22 lykkjur með sléttum lykkjum = 5 kantlykkjur að framan eru eftir á prjóni. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir þessar lykkjur þar til kanturinn að framan mælist ca 9-9-10-10-11-11 cm frá öxl. Það á að sauma þennan hluta af kanti að framan niður meðfram kanti í hálsi á bakstykki í lokin. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 31-33-37-38-40-43 lykkjur með 2 þráðum Alpaca Bouclé á hringprjón 9. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm (= klauf), prjónið síðan í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í vinstri hlið séð frá réttu. Prjónið þar til stykkið mælist 16-18-16-17-18-16 cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 40-42-43-44-45-46 cm frá uppfitjunarkanti. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjar innan við þar sem fellt var af fyrir handveg og úrtaka fyrir v-hálsmáli heldur áfram eftir að fellt hefur verið af fyrir handveg. Byrjið úrtöku fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan og fellið af 2-3-5-5-6-8 lykkjur í annarri hlið fyrir handveg þegar stykkið mælist 46-48-49-50-50-51 cm. Þegar affellingin fyrir handveg og öll úrtaka fyrir v-hálsmáli er lokið eru 22-23-23-25-26-27 lykkjur eftir í umferð. Prjónið í sléttprjóni og kantlykkjur að framan þar til stykkið mælist 63-66-68-70-72-74 cm, stillið af að næsta umferð sé frá röngu. Fellið af fyrstu 17-18-18-20-21-22 lykkjur með brugðnum lykkjum = 5 kantlykkjur að framan eftir á prjóni. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir þessar lykkjur þar til kanturinn að framan mælist ca 9-9-10-10-11-11 cm frá öxl. Það á að sauma þennan hluta á kanti niður meðfram kanti í hálsmáli á bakstykki í lokin. ERMI: Fitjið upp 32-32-34-34-36-36 lykkjur á hringprjón 9 með Alpaca Bouclé. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið í sléttprjóni þar til stykkið mælist 20 cm, nú er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 lykkju í hvorri hlið (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 1-2-2-3-4-5 sinnum = 34-36-38-40-44-46 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-47-48-47-47-47 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi ca 3-4-7-7-8½-11 cm niður frá affellingarkanti – þetta prjónamerki er notað þegar sauma á ermar í framstykki og bakstykki. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant. Saumið saman kantinn með garðaprjóni – affellingarkantur við affellingarkant. Saumið niður hlið á kanti að framan við kant í hálsmáli á bakstykki, saumið með smáu spori kant í kant. Saumið ermina niður við framstykki og bakstykki innan við þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Saumið ermina saman frá uppfitjunarkanti og upp að prjónamerki á ermi. Saumið síðustu ca frá prjónamerki og upp að affellingu fyrir handveg á framstykki og bakstykki. Saumið hliðarsauma niður þar sem garðaprjónið byrjar í hlið (= 8-8-8-10-10-10 cm klauf). |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #creamyspringjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.