Barbara Frow skrifaði:
I'm a total beginner with different kinds to stitches so I'm totally lost with this next bit - **pick up 1 loop in the hole, 1 loop in the side in the last of the loops, 1 loop in the same stitch as the last loop was picked up from** Can you please explain further how to do this? Where do I pick up the loop in the hole? Is there a video I can watch to do this? Thank you so much
19.10.2022 - 09:37DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Frow, sure, this video shows how to crochet the star partern in the round. Happy crocheting!
19.10.2022 - 10:22
Monique skrifaði:
Waarom moet je bij het ster patroon in de achterkant van een steek (die laatste 2 van de 6) opnemen en niet gewoon de hele steek?of de voorkant? Het is een Leuk patroon en niet moeilijk maar waarom is dat?
04.05.2022 - 15:21DROPS Design svaraði:
Dag Monique,
Op deze manier komt de steek beter tot zijn recht.
09.05.2022 - 17:38
Greetje Feunekes skrifaði:
Waar vind ik het patroon van 209-10
16.06.2021 - 21:07
Antonella skrifaði:
Buongiorno, vorrei fare questo cappello per una testa che misura 60cm circa. Come posso fare, per favore? Grazie mille, è bellissimo!
05.02.2021 - 07:57DROPS Design svaraði:
Buonasera Antonella, deve lavorare un campione e in base a quello riprogettare il modello per adattarlo alla misura che desidera. Buon lavoro!
05.02.2021 - 19:14
Kjersti Myrseth skrifaði:
Hei. Jeg hekler hatten nå og har vel måttet ta opp alt fire ganger fordi det blir for mange masker, rar form eller et hakk i høyde grunnet hekleinfo. Er det slik at hekleinfoen om to luftmasker skal erstatte første halvstav gjelde for hver eneste omgang gjennom hele oppskriften? Hatten får tydelig et hakk/"mellomrom" nedover når jeg gjør dette også ender jeg opp med for mange masker. Skal det være sånn? Jeg blir snart helt gal............ haha
12.01.2021 - 13:24DROPS Design svaraði:
Hei Kjersti. Du starter hver omgang der det skal hekles halvstav med 2 luftmasker, disse luftmaskene erstatter første halvstav. 2 luftmasker i høyden tilsvarer 1 halvstav i høyden. Slik at når det står i oppskriften, hekle 11 halvstaver om ringen er det 2 luftmasker og 10 halvstaver. Om du for mange halvstaver på omgangen, kanskje du har heklet både 2 luftmasker og 1 halvstav i 1. maske fra forrige omgang? mvh DROPS design
15.01.2021 - 11:55
Crisp Summer#crispsummerhat |
|
![]() |
![]() |
Heklaður hattur með stjörnumynstri úr DROPS Bomull-Lin. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hálfum stuðlum og stjörnumynstri í röndum.
DROPS 209-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð er fyrsta hálfa stuðli skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Hver umferð endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, heklað er ofan frá og niður. HATTUR: Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 11 hálfa stuðla um hringinn – SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 hálfa stuðla í hvern hálfan stuðul = 22 hálfir stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið * 2 hálfa stuðla i fyrsta/næsta hálfa stuðul, 1 hálfan stuðul i næsta hálfan stuðul *, endurtakið *-* hringinn úr umferðina = 33 hálfir stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið * 2 hálfa stuðla í fyrsta/næsta hálfa stuðul, 1 hálfan stuðul í hvern og einn af næstu 2 hálfa stuðla *, endurtakið *-* hringinn út umferðina = 44 hálfir stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 5: Heklið * 2 hálfa stuðla í fyrsta/næsta hálfa stuðul, 1 hálfan stuðul í hvern og einn af næstu 3 hálfum stuðlum *, endurtakið *-* hringinn út umferðina = 55 hálfir stuðlar. UMFERÐ 6: Heklið * 2 hálfa stuðla í fyrsta/næsta hálfa stuðul, 1 hálfan stuðul í hvern og einn af næstu 4 hálfum stuðlum *, endurtakið *-* hringinn út umferðina = 66 hálfir stuðlar. UMFERÐ 7: Heklið * 2 hálfa stuðla í fyrsta/næsta hálfa stuðul, 1 hálfan stuðul í hvern og einn af næstu 5 hálfum stuðlum *, endurtakið *-* hringinn út umferðina = 77 hálfir stuðlar. UMFERÐ 8: Heklið * 2 hálfa stuðla í fyrsta/næsta hálfa stuðul, 1 hálfur stuðull í hvern og einn af næstu 6 hálfum stuðlum *, endurtakið *-* hringinn út umferðina = 88 hálfir stuðlar. UMFERÐ 9: Heklið * 2 hálfa stuðla í fyrsta/næsta hálfa stuðul, 1 hálfan stuðul í hvern og einn af næstu 43 hálfum stuðlum *, endurtakið *-* hringinn út umferðina = 90 hálfir stuðlar. Haldið áfram með 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 12 cm frá toppi. Skiptið yfir í litinn brúnn og heklið stjörnumynstur þannig: UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur, takið upp 2 lykkjur með byrjun í 2. loftlykkju frá heklunálinni, takið síðan upp 1 lykkju aftan í hvern lykkjuboga á næstu 2 hálfum stuðlum (= 5 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 5 lykkjurnar, heklið 1 loftlykkju sem myndar gat efst í 5 lykkjunum, * takið upp 1 lykkju í gatinu, 1 lykkju í hlið á síðustu af lykkjunum, 1 lykkju í sömu lykkju og síðasta af lykkjunum sem tekið var upp í, 1 lykkja í aftari lykkjubogann á hverri og einn af næstu 2 lykkjum í umferð (= 6 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 lykkjurnar og gerið 1 loftlykkju *, heklið frá *-*, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 45 hálfar stjörnur. UMFERÐ 2: Heklið 2 loftlykkjur, heklið 1 hálfan stuðul í fyrsta «stjörnugatið», síðan eru heklaðir 2 hálfir stuðlar í hvert «stjörnugat» umferðina hringinn, endið umferðina með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð = 45 heilar stjörnur (= 90 hálfir stuðlar meðtaldar fyrstu 2 loftlykkjur). UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn natur og heklið 3 loftlykkjur, takið upp 1 lykkju í 2. og 3. loftlykkju frá heklunálinni, 1 lykkja í aftari lykkjubogann á fyrstu 2 hálfu stuðlum í umferð (= 5 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 5 lykkjurnar, 1 loftlykkja, * takið upp 1 lykkju í gatinu, 1 lykkju í hlið á síðustu af lykkjunum, 1 lykkju í sama hálfa stuðulinn sem síðasta af lykkjunum var tekið upp í, 1 lykkja í aftari lykkjubogann á hverjum og einum af næstu 2 hálfu stuðlum (= 6 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 lykkjurnar og gerið 1 loftlykkju *, heklið frá *-*, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 45 hálfar stjörnur. UMFERÐ 4: Heklið 2 loftlykkjur, heklið 1 hálfan stuðul í fyrsta «stjörnugatinu», heklið síðan 2 hálfa stuðla í hvert «stjörnugat» umferðina hringinn, endið umferðina með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð = 45 heilar stjörnur (= 90 hálfir stuðlar meðtaldar 2 loftlykkjur). Skiptið yfir í litinn brúnn og heklið umferð 3 og 4 einu sinni til viðbótar. Stykkið mælist ca 18 cm frá toppi. BARÐ: Skiptið yfir í litinn natur. Setjið 10 prjónamerki með 8 lykkju millibili á milli prjónamerkja (prjónamerkin sitja í lykkjunum). * Heklið 1 umferð með hálfum stuðlum og aukið út 1 lykkju með því að hekla 2 hálfa stuðla í hverja lykkju með prjónamerki = 10 lykkjur fleiri = 100 hálfir stuðlar. Heklið 1 umferð með hálfum stuðlum *. Heklið frá *-* alls 3 sinnum = 120 hálfir stuðlar. Heklið síðan umferð með 1 hálfum stuðli í hvern hálfan stuðul þar til barðið mælist ca 7 cm. Klippið frá og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crispsummerhat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 209-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.