Bea skrifaði:
Hallo👋Bitte sind die Drops Stricknadel Nr 15 oder 12 etcgrössenangabe?Heisst,andere Marke dicke 15mm 12mm etc.? Ich würde den Pulli den ihr mit Eskimo u Brushed Alpaka Silk gestrickt habt,gerne mit Steinbach Eroica Art 51 ausprobieren.Diese hab ich vorrätig u als Anfänger zum probieren.......☺️⚘Danke u liebe Grüsse Bea
27.02.2020 - 08:04DROPS Design svaraði:
Liebe Bea, wir bitten um Verständnis, daß wir nur unsere Produkte und nicht Produkte unserer Konkurrenz empfehlen können und der Kauf des Materials uns hilft, weiterhin kostenlose Anleitungen zur Verfügung stellen zu können. Wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden oder an dem Laden, wo Sie Ihre Wolle gekauft haben. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!
27.02.2020 - 09:46
Thea Van Son skrifaði:
Prachtig
23.01.2020 - 15:33
Louise skrifaði:
Un nuage de douceur
17.01.2020 - 23:20
Bar Bro Öberg skrifaði:
Så tuff, modernt stuk
21.12.2019 - 22:40
Barbara Kolb skrifaði:
Leicht und kuschelig, besonders die längere Form gefällt mir gut
21.12.2019 - 17:10
Sigrid Vintertun skrifaði:
Snow
19.12.2019 - 23:17
Naimy Nilsson skrifaði:
Bare elsker den typen gensere. Helt herlig!
18.12.2019 - 01:38
Sandrine skrifaði:
Coup de cœur pour ce pull tunique fendu sur les côtés il a l'air très doux
16.12.2019 - 23:06
White Comfort Sweater#whitecomfortsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með klauf í hliðum úr DROPS Snow og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð XS - XXL.
DROPS 213-30 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. MÆLING: Öll mál á breiddina eru gerð þegar stykkið liggur flatt án þess að strekkja á því. Öll mál á lengdina eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur peysan til með að verða of síð við notkun. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 4 kantlykkjur í perluprjóni (A.1). Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 4 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan A.1, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 kantlykkjur í A.1 eins og áður (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir 4 kantlykkjum þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í A.1 eins og áður, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, til skiptis í byrjun og í lok umferðar eins og útskýrt er í uppskrift. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð, prjónið uppsláttinn snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki, framstykki og ermar er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman á öxlum, ermar eru saumaðar í og saumar undir ermum og hliðarsaumar eru saumaðir í eitt niður að klauf í hvorri hlið. BAKSTYKKI: Fitjið upp 33-35-37-41-45-49 lykkjur á prjón 12 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið A.1 fram og til baka á 4 prjóna (= 1. umferð = rétta). Skiptið yfir á prjón 15. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm – sjá MÆLING, fellið af 2-2-2-3-4-5 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 29-31-33-35-37-39 lykkjur eftir. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 61-64-67-70-73-76 cm, prjónið A.1 yfir miðju 17-17-17-19-19-19 lykkjur (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður). Þegar stykkið mælist 65-68-71-74-77-80 cm, fellið af miðju 9-9-9-11-11-11 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður með 4 kantlykkjum í A.1 við háls, sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsi – sjá ÚRTAKA = 9-10-11-11-12-13 lykkjur eftir á öxl. Þegar 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 68-71-74-77-80-83 cm, prjónið næstu umferð slétt frá röngu. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykkið mælist ca 68-71-74-77-80-83 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafn margar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 58-61-63-66-68-71 cm. Prjónið nú A.1 yfir miðju 15-15-15-17-17-17 lykkjur (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður). Þegar stykkið mælist 62-65-67-70-72-75 cm, fellið af miðju 7-7-7-9-9-9 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með 4 kantlykkjur í A.1 að hálsi, sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð alls 2 sinnum – munið eftir ÚRTAKA = 9-10-11-11-12-13 lykkjur eftir á öxl. Þegar 1 lykkja er eftir þar til stykkið mælist 68-71-74-77-80-83 cm, prjónið næstu umferð slétt frá röngu. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Framstykkið mælist ca 68-71-74-77-80-83 cm frá öxl og niður. ERMI: Fitjið upp 17-17-18-19-19-20 lykkjur á prjón 10 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 3 cm. Skiptið yfir á prjón 15 og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 6-6-6-8-9-9 cm, aukið út um 1 lykkju í byrjun á umferð – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu til skiptis í lok umferðar og í byrjun á umferð með 5½-4-4-3½-2½-2½ cm millibili alls 4-5-5-5-6-6 sinnum í hvorri hlið = 25-27-28-29-31-32 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 46-46-45-44-41-40 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkin merkja hvar botninn á handveg byrjar. Prjónið síðan með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til öll ermin mælist 49-49-48-48-47-47 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. Á mynd höfum við brotið aðeins uppá ermarnar. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í og saumið botninn á handveg – prjónamerkin sem sett voru í eiga að passa við hliðar á fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur, en endið sauminn þegar eftir eru ca 25 til 30 cm neðst niðri í hvorri hlið á framstykki/bakstykki (= klauf). |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitecomfortsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.