Sonja Sændergaard skrifaði:
Hvad måler trøjen over brystet i st. L og. Xl Flot trøje
26.08.2024 - 17:35DROPS Design svaraði:
Hej Sonja, du finder måleskitsen nederst i opskriften. L 62x2=124 cm og XL 67x2=134cm :)
28.08.2024 - 08:35
Kirsi skrifaði:
Miten voin vaihtaa langan siististi ilman reikää vaihtokohdassa, kun neulon raidallista suljettua neuletta ja lanka vaihtuu joka kerroksen jälkeen? Solmuilla?
06.05.2024 - 20:11DROPS Design svaraði:
Hei, voit vaihtaa langan esim. seuraavalla tavalla: Kun vaihdat uuteen väriin, kierrä irtonainen langanpää aiemman värin ympärille, jottei muodostuisi reikää. Aseta neulottava lanka sormesi taakse ja vie lanka vuorotellen langanpään ylitse ja alitse yhdistääksesi sen neuleeseen. Kun olet neulonut n. 4-6 silmukkaa tähän tapaan, voit katkaista langanpään.
07.05.2024 - 16:28
Maria Nybro Rubech skrifaði:
Er der en video til udtagning. Jeg forstår nemlig ikke helt beskrivelsen
16.02.2024 - 07:52DROPS Design svaraði:
Hej Maria, ja, her ser du: udtagning med omslag men der er mange måder at tage ud på: Tag ud
16.02.2024 - 12:24
Ace skrifaði:
Going off of last comment: you noted in another comment to do bind off at the beginning of the row. But this isn’t where the neck is. Wouldn’t it be at the end of the row, so it adds to the part that is already binded off? Also, is this part in the round or back and forth?
25.01.2024 - 19:44DROPS Design svaraði:
Dear Ace, when binding off for neck you work the stitches for the left shoulder (from RS), then cast off the middle stitches for neck, then work the remaining sts for right shoulder and finish each shoulder separately, next row from RS on right shoulder/from WS on left shoulder will start from neck towards armhole. Happy knitting!
26.01.2024 - 07:49
Ace skrifaði:
Please respond in detail if able. I don’t understand in the back piece “Continue by binding off 1 stitch on the next row from the neck = 19-20-23-24-27-30 stitches.” What are those stitches supposed to denote? How many rows is this supposed to be? Just one or multiple? How do we know where the neck is supposed to be? This step is very unclear. I saw the previous answer to a similar question but it still does not make sense. Please clear this step up if able. Thank you so much.
25.01.2024 - 19:34
Ace skrifaði:
Please respond in detail if able. I don’t understand in the back piece “Continue by binding off 1 stitch on the next row from the neck = 19-20-23-24-27-30 stitches.” What are those stitches supposed to denote? How many rows is this supposed to be? Just one or multiple? How do we know where the neck is supposed to be? This step is very unclear. I saw the previous answer to a similar question but it still does not make sense. Please clear this step up if able. Thank you so much.
25.01.2024 - 19:33DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Ace, after you have cast off the middle stitches for neck you will work each shoulder separately to the finished measurements, if you cast off the sts from RS you are now working the right shoulder, work next row from WS, then at the beg of next row from RS (= from neck), cast off 1 stitch then continue as before over the remaining 19-20-23-24-27-30 sts and cast off when piece measures 54-56-58-60-62-64 cm. Then work left shoulder the same way, casting off 1 stitch at the beg of first row from neck/from WS. Happy knitting!
26.01.2024 - 07:48
Claire skrifaði:
Can you clarify what is meant by "Continue by binding off 1 stitch on the next row from the neck = 19-20-23-24-27-30" in the "back piece" section?? also, when it says repeat on the other shoulder, what step do i start on?
11.01.2024 - 17:29
Claire skrifaði:
Can you clarify (in the "back piece") what is meant by "Continue by binding off 1 stitch on the next row from the neck = 19-20-23-24-27-30" ? also, when it says do the same from the other shoulder, what step should i start on for this shoulder?
11.01.2024 - 17:28DROPS Design svaraði:
Dear Claire, if you worked first the left shoulder on back piece, you cast off for neck at the beg of every row from right side; when working the right shoulder you will cast off for neck at the beg of every row from wrong side. Happy knitting!
12.01.2024 - 07:44
Claire H skrifaði:
When i start the back piece after completing the body in the round....am i switching to straight needles??! there is no indication to switch, but i just started the back piece in the round, and it does not look quite right
11.01.2024 - 05:03DROPS Design svaraði:
Hi Claire, You work the back and front pieces separately, after the body, back and forth. But you can continue to use circular needles even though you are working back and forth. Happy knitting!
11.01.2024 - 07:39
Maja skrifaði:
Hej, Jag testade stickfastheten genom att sticka 12 maskor på bredden och 14 varv på höjden med slätstickning som ni angav ovan. Men rutan blir inte 10x10 utan ca 11x11 med sticka 9. Kommer tröjan ändå bli bra eller bör jag istället använda mig av sticka 8 istället för 9 och 7 istället för 8?
30.12.2023 - 20:59
Moroccan Market Muse#moroccanmarketmusesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með röndum úr DROPS Melody. Stærð XS - XXL.
DROPS 212-20 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Endurtakið A.1 á hæðina til loka. ÚTAUKNING: Aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn hvoru megin við prjónamerki + 1 lykkja í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 2,5. Í þessu dæmi þá er prjónuð ca 1. og 2. hver lykkja og 2. og 3. hver lykkja slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Stykkið skiptist við handveg og er prjónað til loka fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 120-128-140-148-160-176 lykkjur á hringprjón 8 með litnum perlugrár. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 9. Haldið áfram með sléttprjón yfir allar lykkjur. Prjónið nú rendur eftir A.1 til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 1 lykkju, prjónið 58-62-68-72-78-86 lykkjur, fellið af 2 lykkjur, prjónið 58-62-68-72-78-86 lykkjur, fellið af 1 lykkju. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu 58-62-68-72-78-86 lykkjur á þráð og prjónið síðan yfir síðustu 58-62-68-72-78-86 lykkjur á bakstykki. BAKSTYKKI: = 58-62-68-72-78-86 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 18-20-20-22-22-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 19-20-23-24-27-30 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm (= 18-19-20-21-22-23 cm frá þar sem felld var af 1 lykkja í hvorri hlið fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 58-62-68-72-78-86 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, setjið miðju 12-14-14-16-16-18 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 19-20-23-24-27-30 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm (= 18-19-20-21-22-23 cm frá þar sem 1 lykkja var felld af í hvorri hlið fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Prjónið upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur í kringum handveg í ystu lykkjubogana á hringprjón 9 með litnum múrsteinn – þ.e.a.s. byrjið þar sem stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki, takið upp 22-23-24-25-26-27 lykkjur upp fyrir axlasaum og takið upp 22-23-24-25-26-27 lykkjur frá axlasaumi og niður þar sem stykkið skiptist á bakstykki. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón og A.2. Þegar stykkið mælist 30-29-28-27-26-23 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – SJÁ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5 cm millibili alls 3 sinnum í öllum stærðum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.2 þar til stykkið mælist 44-43-42-41-40-37 cm. Prjónið nú til loka með litnum perlugrár. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-22-20-22-20-22 lykkjur jafnt yfir = 30-30-34-34-38-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8, prjónið stroff, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar ermin mælist 48-47-46-45-44-41 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu með litnum perlugrár og stuttan hringprjón 8. Prjónið upp ca 60-80 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði og deilanlegt með 2). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #moroccanmarketmusesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.