DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 212-20
DROPS Design: Mynstur ml-054
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
100-100-100-150-150-150 g litur 03, perlugrár
50-50-50-50-50-50 g litur 19, múrsteinn
50-50-50-50-50-50 g litur 20, vínber
50-50-50-50-50-50 g litur 16, turkos
50-50-50-50-50-50 g litur 17, skærbleikur
50-50-50-50-50-50 g litur 18, sinnep

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8: fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Endurtakið A.1 á hæðina til loka.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn hvoru megin við prjónamerki + 1 lykkja í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 2,5. Í þessu dæmi þá er prjónuð ca 1. og 2. hver lykkja og 2. og 3. hver lykkja slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Stykkið skiptist við handveg og er prjónað til loka fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 120-128-140-148-160-176 lykkjur á hringprjón 8 með litnum perlugrár. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 9. Haldið áfram með sléttprjón yfir allar lykkjur. Prjónið nú rendur eftir A.1 til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 1 lykkju, prjónið 58-62-68-72-78-86 lykkjur, fellið af 2 lykkjur, prjónið 58-62-68-72-78-86 lykkjur, fellið af 1 lykkju. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu 58-62-68-72-78-86 lykkjur á þráð og prjónið síðan yfir síðustu 58-62-68-72-78-86 lykkjur á bakstykki.

BAKSTYKKI:
= 58-62-68-72-78-86 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 18-20-20-22-22-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 19-20-23-24-27-30 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm (= 18-19-20-21-22-23 cm frá þar sem felld var af 1 lykkja í hvorri hlið fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 58-62-68-72-78-86 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, setjið miðju 12-14-14-16-16-18 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 19-20-23-24-27-30 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm (= 18-19-20-21-22-23 cm frá þar sem 1 lykkja var felld af í hvorri hlið fyrir handveg), fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.
Prjónið upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur í kringum handveg í ystu lykkjubogana á hringprjón 9 með litnum múrsteinn – þ.e.a.s. byrjið þar sem stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki, takið upp 22-23-24-25-26-27 lykkjur upp fyrir axlasaum og takið upp 22-23-24-25-26-27 lykkjur frá axlasaumi og niður þar sem stykkið skiptist á bakstykki. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón og A.2. Þegar stykkið mælist 30-29-28-27-26-23 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – SJÁ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5 cm millibili alls 3 sinnum í öllum stærðum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.2 þar til stykkið mælist 44-43-42-41-40-37 cm. Prjónið nú til loka með litnum perlugrár. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-22-20-22-20-22 lykkjur jafnt yfir = 30-30-34-34-38-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8, prjónið stroff, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar ermin mælist 48-47-46-45-44-41 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu með litnum perlugrár og stuttan hringprjón 8. Prjónið upp ca 60-80 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði og deilanlegt með 2). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = perlugrár
symbols = vínber
symbols = sinnep
symbols = múrsteinn
symbols = skærbleikur
symbols = turkos
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Moroccan Market Muse

Francesca, Italy

Moroccan Market Muse

Frøy, Norway

Moroccan Market Muse

Frederrikke, Denmark

Moroccan Market Muse

Anne-Birthe, Norway

Moroccan Market Muse

Katarzyna, Poland

Moroccan Market Muse

Agnieszka, Poland

Pullover

Lori Ann, United States

Lindes choice

Leen, Belgium

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (74)

country flag Lærke wrote:

Hej, jeg forstår ikke helt hvad der menes, i afsnittet om forstykket, med dette “Videre lukkes der af på hver pind fra halsen således: Luk 2 masker af 1 gang og 1 maske 2 gange = 19-20-23-24-27-30 masker tilbage på skulderen.” Håber i kan hjælpe mig

26.05.2022 - 21:30

DROPS Design answered:

Hej Lærke. På första pinde lukker du 2 masker mot halsen, på neste pinde lukker du 1 maske mot halsen och på neste pinde lukker du 1 maske mot halsen. Mvh DROPS Design

27.05.2022 - 12:53

country flag Pia wrote:

Super flot bluse 👌… jeg er dog ikke så vild med de vige ærmer. Hvis jeg ønsker alm. ærmer, hvor mange masker, jeg skal så slå op…? PFT Pia

24.04.2022 - 08:01

DROPS Design answered:

Hei Pia. Kommer litt an på hvilken str du strikker, men ta en titt på andre gensere som er strikket i Melody (som har samme strikkefasthet) og som har en erme vidde som du syns vi passe deg. Du kan da tilpasse den til Moroccan Market Muse genseren i den str. du strikker. Husk å se målene på målskissen. mvh DROPS Design

25.04.2022 - 11:33

country flag Lærke wrote:

Hej, er sweateren strikket i enkelttråd eller dobbelttråd? Vh

22.04.2022 - 10:59

DROPS Design answered:

Hej Lærke, sweateren er strikket (lidt løst) med enkelt tråd DROPS Melody :)

22.04.2022 - 11:51

country flag Pavla wrote:

Are the measurements on a picture a finished garment measurements? Thank you Pavla

19.04.2022 - 11:39

DROPS Design answered:

Dear Pavla, the measurements in the chart are for the finished garment and are taken flat from side to side. Read more here. Happy knitting!

19.04.2022 - 13:08

country flag Nina Nguyen wrote:

Hei, lurer på hvilken str genseren er i bildet? Vil gjerne ha lik størrelse som på bildet, så hadde vært fint å bli opplyst dette!

16.02.2022 - 17:16

DROPS Design answered:

Hei Nina, Du finner mål til alle størrelsene i en skisse på bunnen av oppskriften. God fornøyelse!

17.02.2022 - 06:51

country flag Tanja wrote:

Gør det noget at man har læst diagrammet A1 fra den forkerte ende? Altså oppefra og ned, i forhold til garnmængde???

28.01.2022 - 20:51

DROPS Design answered:

Hei Tanja. Ikke i forhold til garnmengden nei. mvh DROPS Design

31.01.2022 - 13:49

country flag Emma wrote:

Ik heb deze trui gebreid, Prachtig geworden en heel veel werk aan gehad. Met name om de draadjes netjes af te werken. Het garen pluist enorm dus ik heb het in de wasmachine op hele lage temperatuur gespoeld. Het is nu volkomen vervilt en een kindertrui geworden. Zo jammer. Geen idee wat ik dan had moeten doen om het pluizen te verminderen. Dit garen zal ik in ieder geval niet meer kopen.

25.01.2022 - 22:35

country flag Eva wrote:

Bonjour, Je tricote en rond et je change de couleur à chaque tour comme demandé dans le modèle, je tricote donc de la première à la dernière maille du rang d'une couleur puis recommence avec une autre. Comme je change de pelote à chaque début de rang la première et dernière maille ne sont pas relié comme habituellement pour un tricot avec aiguille circulaire. Comment faire ?

25.11.2021 - 19:05

DROPS Design answered:

Bonjour Eva, quand on tricote des rayures en rond, on peut utiliser cette technique pour estomper la différence de changement de tours sur des rayures de quelques tours - pour les autres, on ne peut éviter un décalage. Bon tricot!

26.11.2021 - 07:30

country flag Mette Thielke wrote:

I opskriften står der: "Ærmerne strikkes rundt på lille rundpind / strømpepinde, ovenfra og ned. Strik 44-46-48-50-52-54 masker op rundt om ærmegabet i yderste led af yderste maske på rundpind 9 med mursten....." Hvad betyder 'mursten i denne forbindelse?? Mvh Mette

15.11.2021 - 13:55

DROPS Design answered:

Hej Mette. Det är namnet på farve nr. 19 som det ska stickas med. Mvh DROPS Design

16.11.2021 - 08:47

country flag Ilja wrote:

For which part do you use the 9mm needles? Can you also use the 'normal 9 mm needles, which are single pointed?

15.11.2021 - 10:34

DROPS Design answered:

Dear Ilja, circular needles are used for stocking stitch/striped pattern; body is worked first in the round on circular needle to armhole then worked back and forth separately. This lesson explains how to adapt a pattern onto single pointed needles. Happy knitting!

15.11.2021 - 13:00