Anja skrifaði:
Hoe worden de teruggaande naalden (dus de verkeerde kant) van het kabelpatroon gebreid? Dat staat volgens mij nergens vermeld. Recht boven averecht en averecht boven recht of allemaal averecht? Dank u
29.02.2020 - 19:02DROPS Design svaraði:
Dag Anja,
Waar je recht op de goede kant breit, brei je averecht op de verkeerde kant en vice versa.
04.03.2020 - 11:24
Birgit Urke skrifaði:
Hei, det står at jeg skal øke på hver side av merketrådene. ( i begynnelsen av oppskriften). Skal jeg øke før og etter 6. maske? Fint om jeg kan få hjelp her.
26.01.2020 - 09:33DROPS Design svaraði:
Hej Birgit, Ja, du sætter en mærketråd 6 masker ind fra hver side og du tager ud på hver side af disse 2 mærketråde ifølge opskriften. God fornøjelse!
31.01.2020 - 08:20
Janka skrifaði:
W dziale Promocja widnieje sklep Outlery, w którym chyba nie ma już włóczek. Wprowadza to zamieszanie.
09.01.2020 - 09:24
Dina skrifaði:
Buonasera! Avete un video per vedere come vanno cucite le pantofole? Non riesco a capire che forma abbiano da aperte e quindi come cucirle. Grazie!
09.12.2019 - 17:06DROPS Design svaraði:
Buongiorno Dina. Purtroppo un video non è ancora disponibile. Le cuciture sono sulla parte dietro della pantofola (corrisponde alle maglie intrecciate alla fine del lavoro) e sulla parte sopra del piede (guardando la fotografia, la parte dalla treccia verso la punta del piede). Buon lavoro!
16.12.2019 - 15:09
Blätterbauerová skrifaði:
Děkuji, je to nádhera. Pokusím se uplést.
01.12.2019 - 09:24
Heartfelt Christmas#heartfeltchristmasslippers |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Þæfðar tátiljur með köðlum úr DROPS Alaska. Stærð 26-44. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1459 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hinn merkiþráðinn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið til að koma í veg fyrir gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.1 á við um stærð 26/28 - 29/31 og mynsturteikning A.2 á við um stærð 32/34 - 35/37 - 38/40 - 42/44. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í eitt stykki frá framhluta að afturhluta með sauminn ofan á fæti. TÁTILJA: Fitjið upp 8-9-10-11-12-13 lykkjur á prjón 5 með DROPS Alaska, látið endann vera ca 50 cm langan, hann er notaður síðar til að sauma tátiljuna saman. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu JAFNFRAMT eru auknar út 8-8-10-10-11-12 lykkjur jafnt yfir = 16-17-20-21-23-25 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 2 merkiþræði í stykkið, 4-4-5-5-6-6 lykkjur inn frá hvorri hlið. Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT í 4. umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina (= 4 útauknar lykkjur) – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu 6 sinnum til viðbótar = 44-45-48-49-51-53 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 11-11½-12½-13½-15-16½ cm. Fitjið nú upp 13-14-16-16-17-18 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 70-73-78-81-85-89 lykkjur. Prjónið næstu umferð þannig: 1 lykkja garðaprjón, A.1-A.1-A.2- A.2- A.2- A.2, 1-2-0-0-1-2 lykkjur brugðið (séð frá réttu), prjónið sléttprjón þar til eftir eru 13-14-16-16-17-18 lykkjur í umferð, prjónið 1-2-0-0-1-2 lykkjur brugðið (séð frá réttu), A.1-A.1-A.2- A.2- A.2- A.2, 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 24-25-27½-30½-33½-37 cm, fellið laust af. FRÁGANGUR: Saumið þráðinn í gegnum lykkjuna á tánni og herðið að, saumið sauminn fyrir miðju á fæti í ystu lykkjubogana fram að útauknu 13-14-15-16-17-18 lykkjunum. Saumið tátiljuna saman fyrir miðju að aftan kant í kant, svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. ÞÆFING: Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #heartfeltchristmasslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1459
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.