Mona skrifaði:
Læg mærke til hæl-konstruktionen - efter min mening ikke særlig pæn. Så nu trevler jeg lidt op og laver en traditionel hæl.
21.02.2024 - 21:48
Maylen skrifaði:
Hvor i omgangen skal man bytte til korall før tåfelling? Midt under foten eller ved første merketråd?
19.12.2023 - 12:51DROPS Design svaraði:
Hej Maylen, det er en god ide at starte omgangen under foden, så ser du ikke det lille hak der kan blive når man skifter tråd :)
19.12.2023 - 14:32
Solya skrifaði:
Hello, Úgy látom a magyar fordításban sajnos nem minden pontos. Amit eddig észrevettem, hogy a kezdőszemek száma más: az angol verzióban 40-42-46 szemmel kell kezdeni, míg a magyarban ez 39-42-45 (és így a bordás minta 1S, 1F-ja sem jön ki). Illetve később a sarok leírásában az áll: "szaporítsunk 4-4-4 szemet = 20-22-24 szemünk lesz" - de előtte eddig 26 szemünk volt, úgyhogy pont, hogy fogyasztani kell, nem? Köszönöm. :)
17.04.2023 - 08:29
Sissel skrifaði:
Hei - sokker med brushed alpaca silk - bruker oppskrift med nepalgarn - skal gå ifølge tabellen - skal jeg bruke dobbelt garn av alpaca/sil garnet - det gjelder denne oppskriften på sokker med nepalgarn
03.04.2022 - 12:56DROPS Design svaraði:
Hei Sissel, Begge garn er i samme garngruppe så da kan Nepal erstatte Brushed Alpaca Silk, Da følger du oppskriften som gitt, men det er lurt å strikke en prøvelapp før du begynner, for å sjekke strikkefastheten din. God fornøyelse!
04.04.2022 - 07:03
Ferial skrifaði:
"Force" a raison quoi faire avec les 2 m?,...les laisser sur l aiguille toute seules et continuer comme ca en jersey?...1 aiguille a 2m...1 a 11 m (relevé)...1 a les m en attentes et 1 a 11 mailles relevé ?en continuant en jersey sur 4 aiguilles,?...sinon sur quelles aiguilles mettre les 2 m ?....et combien de mailles par aiguille sinon..?...merci..et la video s arrete exactement la ou on as besoin d explications.
23.01.2022 - 00:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Ferial, remettez ces 2 dernières mailles sur l'aiguille droite et tournez, relevez 11 m (3ème taille), tricotez les 24 m du dessus du pied et relevez 11 m = 2+11+24+11=48 mailles. Tricotez maintenant en rond, en jersey. Bon tricot!
24.01.2022 - 10:32
Lena Falk skrifaði:
Hej. Jag har en fråga om hälen: är det resårstickning samt 1 m rätstickning i var sida? Lite otydlig beskrivning.
06.09.2021 - 17:16DROPS Design svaraði:
Hej Lena. Ja det stämmer. Mvh DROPS Design
07.09.2021 - 09:43
Force skrifaði:
I think I don't understand. There are 2 stitches from heel, I pick up 22 stitches in total and I have 22 stitches on thread = 46 stitches not 44.
19.02.2020 - 15:12DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Force, pattern will be here edited, you will have to pick up only 10 sts in 2nd size (=9-10-11 sts) on each side of heel so that the total number of stitches will be 44 stitches together with the stitches from thread + the 2 remaining sts from heel. Happy knitting!
21.02.2020 - 15:18
Force skrifaði:
Hi again, I would like to follow up on my question you answered with video, the problem is the video ends exactly in situation in which i am at this moment and i don't know how to continue. What do I do with the two stitches left after the heel is done (right at tvé end of the video)? Thank you
19.02.2020 - 10:25DROPS Design svaraði:
Dear Force, the 2 remaining stitches are slipped on the right needle, turn piece so that you will continue from RS, then follow pattern under FOOT: pick up 11 sts along first side of heel, knit stitches from thread and pick up 11 sts along last side of heel and continue now in the round over the 44 stitches. Happy knitting!
19.02.2020 - 11:53
Force skrifaði:
Hi I do not quite understand what to do with the two remaining stitches after WORKING TOGETHER THE HEEL-STITCHES. I am doing the 38/40 size. You say:"Place the 2 stitches on the right needle and turn the piece to the right side. " Then I am supposed to pick up 11 stitches, then knit the threaded stitches and then pick up another 11 = 44 but what do I do with the two remaining from the heel? Thank you
18.02.2020 - 17:36DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Force, this video shows how to work such a heel - to time code 08.41 you see how to work the first part of heel, than you work half of the stitches (11 sts in your size) and work now the decreases from WS as shown from 10:10. Happy knitting!
19.02.2020 - 08:50
Maria Holm skrifaði:
Når det er oddetall i vrangborden, hvordan fungerer det? Blir det to like etter hverandre på et punkt? 1 r og 1 v går vel i togangen, men 39 masker er ikke i togangen.
16.01.2020 - 23:21DROPS Design svaraði:
Hej Maria, jo det stemmer, vi retter og slår 1 maske mere op - tak for info :)
04.02.2020 - 08:39
Tippy Toe#tippytoesocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með stroffi, sléttprjóni og klassískum hæl. Stærð 35-43.
DROPS 203-36 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja, setjið þráðinn á vinstri prjón og prjónið snúið slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna niður yfir stroff, hællinn er prjónaður fram og til baka áður en hann er prjónaður saman mitt undir. Prjónið síðan fótinn í hring á sokkaprjóna. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 39-41-45 lykkjur með litnum kamel á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff með 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4, prjónið sléttprjón og aukið út um 0-2-2 lykkjur í fyrstu umferð = 40-44-48 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 15 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 20-22-24 lykkjur í umferð (= ofan á fæti) og setjið þessar lykkjur á þráð. Prjónið sléttar lykkjur og aukið jafnframt út 4-4-4 lykkjur jafnt yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð – SJÁ ÚTAUKNING! = 24-26-28 lykkjur (= hællykkjur). Skiptið yfir í litinn kórall, snúið stykkinu og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. HÆLL: Prjónið síðan fram og til baka yfir hællykkjur þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju garðaprjón. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til hællinn mælist 5-5½-6 cm. Setjið eitt prjónamerki mitt í umferð (það er notað síðar til að mæla frá). Í næstu umferð frá réttu er prjónað sléttprjón og fækkað um 4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 20-22-24 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið nú fram og til baka frá röngu til að prjóna hællykkjurnar saman. HÆLLYKKJUR PRJÓNAÐAR SAMAN: Allar umferðir eru prjónaðar frá röngu. Snúið og prjónið fyrstu 10-11-12 lykkjur brugðið frá röngu. Passið uppá að þráðurinn sé frá bakhlið á stykki (= liggi að réttu á stykki) og prjónið þannig: VINSTRI PRJÓNN: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, lyftir síðan til baka lykkjunum sem prjónaðar voru saman yfir á vinstri prjón og herðið á þræði. Ekki snúa stykkinu. HÆGRI PRJÓNN: Stingið inn vinstri prjóni í 2 næstu lykkjur á hægri prjón (prjónið inn frá vinstri til hægri og passið uppá að prjóninn liggi aftan við hægri prjón), sækið þráðinn og leggið hann utan um vinstri prjón, dragið síðan þráðinn í gegnum þessar 2 lykkjur (frá hægri til vinstri) og sleppið síðan 2 lykkjunum af hægri prjóni. Lyftið síðan til baka lykkjunum sem prjónaðar voru saman yfir á hægri prjón og herðið á þræði. Ekki snúa stykkinu. Endurtakið VINSTRI og HÆGRI PRJÓNN svona þar til 2 lykkjur eru eftir. Nú hafa hællykkjurnar verið prjónaðar saman. Setjið 2 lykkjur sem eftir eru á hægri prjón og snúið stykkinu að réttu. FÓTUR: Notið litinn kamel og prjónið 9-10-11 lykkjur meðfram fyrri hlið á hæl (innan við 1 lykkju garðaprjón), setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur eins og áður, prjónið upp 9-10-11 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hæl (innan við 1 lykkju garðaprjón) = 40-44-48 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist 19-20-23 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir 3-4-4 cm að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fæti (þannig að það verða 20-22-24 lykkjur bæði ofan á og undir fæti). Skiptið yfir í kórall, prjónið sléttprjón og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja) og prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið alveg eins við hitt prjónamerkið. Fækkið lykkjum í hverri umferð þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið síðan 2 og 2 lykkjur slétt saman í næstu umferð = 4 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar nokkrum sinnum og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tippytoesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.