Lisa Merten skrifaði:
Pattern does not state when to change colour of yarn. Am I missing something?
30.09.2024 - 04:34DROPS Design svaraði:
Hi Lisa, colour changes are described in the paragraph STRIPES - see Explantion for the pattern above the pattern text. Happy knitting!
30.09.2024 - 05:43
Lene Hasle skrifaði:
I opskriften står der om bærestykket: “Efter sidste udtagning måler arbejdet ca 18-20-22-24-26-28 cm fra efter halskanten midt foran. Hvis arbejdet måler mindre end dette fortsættes der til rigtig mål.” Skal man så osse fortsætte udtagningerne? Så får man jo for mange masker?
09.11.2021 - 12:54DROPS Design svaraði:
Hej Lene. Nej då fortsätter du utan uttagningar tills du får riktigt mått. Mvh DROPS Design
09.11.2021 - 13:09
Line skrifaði:
Jeg vil gerne strikke denne i ensfarvet. Hvor meget garn skal jeg bruge til en XXL?
21.05.2020 - 10:36DROPS Design svaraði:
Hej Line, så skal du bruge ca 500 gr. God fornøjelse!
22.05.2020 - 15:08
Jeanette skrifaði:
Jeg skulle gjerne strikket en slik modell men med hals, finnes det noe sted? Evnt om noen kan henvise til en oppskrift på hals og hvor jeg evnt går fra den til denne oppskriften? Hilsen en så ikke strikkekyndig ;)
11.02.2020 - 14:14DROPS Design svaraði:
Hej Jeanette, du kan eventuelt søge på gensere - høy hals da kan du altid strikke denne stribede genser og strikke halsen på bagefter ifølge en opskrift fra samme garngruppe C. God fornøjelse!
11.02.2020 - 15:56
Randi Kæstrup skrifaði:
Kommer der en opskrift til denne sweater?
09.10.2019 - 15:27
Bente Skorstengaard skrifaði:
Hvornår kommer opskrift på denne model?
19.08.2019 - 21:24
Martin skrifaði:
Très joli, j'adore les modèles de ce genre. Me donne envie de le tricoter :)
30.06.2019 - 10:48
Row by Row#rowbyrowsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með röndum úr DROPS Alpaca Bouclé. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-38 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: 8 cm með dökk grár (mælt frá uppfitjunarkanti) 8 cm með ljós grár 8 cm með svartur 8 cm með natur 8 cm með ljós grár LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri hvoru megin við prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 5,5. Í þessu dæmi er aukið út til skiptis á eftir 5. og 6. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð. LEIÐBEININGAR (á við um lengd á ermum): Hægt er að stilla af lengd á ermum að óskaðri lengd, en passið uppá að lengdin á að vera aðeins lengri en venjulega svo að ermin poki aðeins neðst niðri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Berustykkið er prjónað fram þar til stykkið skiptist í fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjón og ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með litnum dökk grár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-20-16-16-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 100-104-112-112-116-124 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Lesið allt berustykki áður en byrjað er að prjóna! Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið12-12-14-14-14-14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 38-40-42-42-44-48 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 12-12-14-14-14-14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 38-40-42-42-44-48 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón og RENDUR Á BERUSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 18-20-21-24-26-28 sinnum = 244-264-280-301-324-348 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-20-22-24-26-28 cm frá eftir kanti í hálsmáli við miðju að framan. Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað áfram að réttu máli. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 48-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 74-80-84-92-100-110 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 74-80-84-92-100-110 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-172-184-200-220-240 lykkjur. Haldið áfram í hring í sléttprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 26 cm frá skiptingu í öllum stærðum, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 164-176-188-204-224-244 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 5,5. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-56-60-62-64 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-68-72-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar auka á út undir ermi. Haldið áfram með sléttprjón og rendur eins og á fram- og bakstykki – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3½-3½-3-3-3 cm millibili alls 9-9-8-8-8-8 sinnum = 72-76-80-84-88-90 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 40-39-37-36-34-33 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 7 cm að loka máli – sjá LEIÐBEININGAR). ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-4-0-4-0-2 lykkjur jafnt yfir = 72-72-80-80-88-88 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 36-36-40-40-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón 5,5 – fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 47-46-44-43-41-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rowbyrowsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.