Ann Law skrifaði:
Love your patterns but are they written in American terms or English? Thank you.
17.10.2019 - 10:04DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Law, our patterns are written in English with both UK and US crochet terms, click on the scroll down menu under the pictures and select the apropriate language. Happy crocheting!
17.10.2019 - 10:18
Edith Kristensen skrifaði:
Flot kunne hede spindelnet
03.08.2019 - 11:36
Marlis skrifaði:
Die Jacke , passt zu meinem Stil , ich freue mich schon auf die Anleitung !
13.07.2019 - 12:07
Peggy skrifaði:
Love it !!! Love to have the pattern
17.06.2019 - 08:56
Ellis skrifaði:
In thin yarn I think I would like it
09.06.2019 - 21:08
Britt Yman skrifaði:
Börjar bli tjatig. Modellen har funnits i flera år. Vi måste kunna begära lite mer påhittighet.
08.06.2019 - 19:51
Stone Circle Jacket#stonecirclejacket |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Hekluð hringpeysa úr DROPS Big Delight. Stykkið er heklað frá miðju og út í hring. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-36 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 tvíbrugðinn stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta tvíbrugðna stuðli er skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Endið með 1 keðjulykkju í fjórðu loftlykkju í byrjun á umferð. ÚRTAKA (á við um ermar): 2 tvíbrugðnir stuðlar er heklaðir saman í 1 tvíbrugðinn stuðul þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju og út. Ermar eru heklaðar frá handveg og niður. HRINGUR: Heklið 4 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með Big Delight með heklunál 6 og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í umferð. Heklið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina, setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónamerki fylgir með í stykkinu. Nú er heklað mynstur í hring þannig: Heklið A.2 alls 14 sinnum hringinn í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar allt A.2 hefur verið heklað til loka heldur mynstrið áfram og útaukning á sama hátt, en í hverri umferð sem er hekluð er heklaður 1 tvíbrugðinn stuðull + 1 loftlykkja fleiri á milli hverra útaukninga = 14 tvíbrugðnir stuðlar + 14 loftlykkjur fleiri í hverri umferð. Haldið áfram þar til 112-112-126-126-140-140 tvíbrugðnir stuðlar + 112-112-126-126-140-140 loftlykkjur eru í umferð, hringurinn mælist ca 20-20-23-23-25-25 cm frá miðju (= 40-40-46-46-50-50 cm að þvermáli). Næsta umferð er hekluð (án útaukninga) þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul + 1 loftlykkju í hvern og einn af fyrstu 16-16-18-18-20-20 tvíbrugðnu stuðlum, heklið 24-24-28-28-32-32 lausar loftlykkjur fyrir handveg, hoppið yfir næstu 16-16-18-18-20-20 tvíbrugðna stuðla, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul + 1 loftlykkju í hvern tvíbrugðinn stuðul þar til eftir eru 32-32-36-36-40-40 tvíbrugðnir stuðlar í umferð, heklið 24-24-28-28-32-32 lausar loftlykkjur fyrir handveg, hoppið yfir næstu 16-16-18-18-20-20 tvíbrugðna stuðla, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul + 1 loftlykkju í hvern af síðustu 16-16-18-18-20-20 tvíbrugðnu stuðlum. Næsta umferð er hekluð þannig: * Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul + 1 loftlykkja í hvern af næstu 7-7-8-8-9-9 tvíbrugðnu stuðlum, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul + 1 loftlykkju + 1 tvíbrugðinn stuðul + 1 loftlykkju í næsta tvíbrugðna stuðul *, heklið frá *-* 2 sinnum, heklið 18-18-20-20-22-22 tvíbrugðna stuðla með 1 loftlykkju á milli hverra loftlykkjuboga, * heklið 1 tvíbrugðinn stuðul + 1 loftlykkju í hvern af næstu 7-7-8-8-9-9 tvíbrugðnu stuðlum, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul + 1 loftlykkju + 1 tvíbrugðinn stuðul + 1 loftlykkju í næsta tvíbrugðna stuðul *, heklið frá *-* 6 sinnum, heklið 18-18-20-20-22-22 tvíbrugðna stuðla með 1 loftlykkju á milli hverra um loftlykkjuboga, heklið * 1 tvíbrugðinn stuðul + 1 loftlykkja + 1 tvíbrugðinn stuðul + 1 loftlykkja í næsta tvíbrugðna stuðul *, endurtakið frá *-* 2 sinnum = 126-126-140-140-154-154 tvíbrugðnir stuðlar + 126-126-140-140-154-154 loftlykkjur í umferð. Heklið nú þannig: * 1 tvíbrugðinn stuðull + 1 loftlykkja í hvern af næstu 8-8-9-9-10-10 tvíbrugðnu stuðum, heklið síðan 1 tvíbrugðinn stuðul + 1 loftlykkja + 1 tvíbrugðinn stuðull + 1 loftlykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 14 tvíbrugðnir stuðlar + 14 loftlykkjur fleiri í umferð. Haldið síðan áfram í mynstri með útaukningu eins og áður, en í hverri umferð er heklaður 1 tvíbrugðinn stuðull + 1 loftlykkja fleiri á milli hverrar útaukninga = 14 tvíbrugðnir stuðlar + 14 loftlykkjur fleiri í hverri umferð. Þegar hringurinn mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá miðju (= 104-108-112-116-120-124 cm að þvermáli), endið þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul + 1 loftlykkju í hvorn af næstu 2 tvíbrugðnu stuðlum, 1 stuðull + 1 loftlykkja í hvorn af næstu 2 tvíbrugðnu stuðlum, 1 hálfur stuðull + 1 loftlykkja í hvorn af næstu 2 tvíbrugðnu stuðlum, 1 fastalykkja + 1 loftlykkja í næsta tvíbrugðna stuðul, 1 keðjulykkja í næsta tvíbrugðna stuðul, klippið frá og festið enda. ERMAR: Byrjið með heklunál 6 og Big Delight – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið 36-38-40-42-44-46 tvíbrugðna stuða í kringum opið yfir ermi, byrjun á umferð á að vera undir ermi. Heklið síðan 3 umferðir með 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern tvíbrugðinn stuðul. Haldið áfram með 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern tvíbrugðinn stuðul – JAFNFRAMT er fækkað um 2 tvíbrugðna stuðla mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 7 cm millibili alls 7 sinnum = 22-24-26-28-30-32 tvíbrugðinn stuðull. Haldið svona áfram þar til ermin mælist 54-55-54-55-54-55 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stonecirclejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.