DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Fall Festival

Hekluð hringpeysa úr 1 þræði DROPS Big Delight eða 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Flora (2 þræðir). Stærð S - XXXL.

DROPS 171-21
DROPS Design: Mynstur nr db-065
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
500-600-700 g litur nr 06, haustskógur

Eða notið:
DROPS FABEL frá Garnstudio (garnflokkur A)
250-300-350 g litur nr 542, grænn
og einnig:
DROPS Flora frá Garnstudio (garnflokkur A)
250-300-350 g litur nr 15, grænn

DROPS HEKLUNÁL NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 13 st x 8 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrstu fl í byrjun umf er skipt út fyrir 1 ll, umf endar með 1 kl í 1. ll í byrjun umf.
Fyrsta st í byrjun umf er skipt út fyrir 3 ll, umf endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
Fyrsta tbst í byrjun umf er skipt út fyrir 4 ll, umf endar með 1 kl í 4. ll í byrrjun umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

HRINGPEYSA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 5,5 með 1 þræði Big Delight eða 1 þræði Fabel og 1 þræði Flora (2 þræðir) og tengið saman í hring með 1 kl. Haldið síðan áfram eftir A.1. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið heklað til loka mælist hringurinn ca 33 cm að þvermáli og það eru 27 tbst-hópar í umf.

STÆRÐ L/XL-XXL/XXXL: Heklið eftir A.2, í fyrstu umf í A.2 er aukið út um 9 ll-boga jafnt yfir (aukið er alveg eins út eins og í 6. umf í A.1, aukið út um 1 ll-boga þannig: Heklið 1 fl um ll-bogann mitt í tbst-hópinn, 9 ll, 1 fl um ll á milli tbst-hópa, 9 ll, 1 fl um ll-boga mitt í næsta tbst-hóp) = 36-36 ll-bogar. Heklið A.2 til loka 1 sinni á hæðina.

ALLAR STÆRÐIR: = 27-36-36 tbst-hópar.
Næsta umf er hekluð eins og 1. umf í A.3, JAFNFRAMT er handvegurinn heklaður þannig:
1 fl um ll-boga mitt í tbst hópinn, heklið 30-33-36 lausar ll, hoppið yfir 5-6-7 tbst-hópa, 1 fl um ll-boga mitt í næsta tbst-hóp (nú er annar handvegurinn heklaður), * 12 ll, 1 fl um ll-boga mitt í næsta tbst-hóp *, endurtakið frá *-* alls 8-14-12 sinnum, heklið 30-33-36 lausar ll, hoppið yfir 5-6-7 tbst-hópa, 1 fl um ll-boga mitt í næsta tbst-hóp (nú er hinn handvegurinn heklaður), * 12 ll, 1 fl um ll-boga mitt í næsta tbst-hóp *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf (í stað 1 fl um næsta ll-boga).

Næsta umf er hekluð eins og 2. umf í A.3 þannig: Heklið alveg eins og áður með 2 st + 2 ll + 2 st um hvern ll-boga, um hvern ll-boga fyrir handveg eru heklaðir 6-7-8 st-hópar, JAFNFRAMT er aukið út um 7 st-hópa jafnt yfir í umf, aukið út um 1 st-hóp með því að hekla 2 st + 2 ll + 2 st + 2 st + 2 ll, 2 st um 1 ll-boga = 36-45-45 st-hópar.
UMFERÐ 3: Heklið 2 tbst + 2 ll + 2 tbst um ll-boga mitt í hvern st-hóp og 1 ll á milli hverra tbst-hópa = 36-45-45 tbst-hópar með 1 ll á milli hverra.

Haldið áfram að hekla eftir A.3, JAFNFRAMT er aukið út um 9 ll-boga jafnt yfir í hvert skipti sem 1. umf er hekluð þannig:
UMFERÐ 1: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga (mitt í tbst-hóp), 1 fl, * 12 ll, 1 fl um næsta ll-boga mitt í tbst-hóp *, endurtakið frá *-* umf hringinn JAFNFRAMT er aukið út um 9 ll-boga jafnt yfir í umf = 45-54-54 ll-bogara (endið umf með 6 ll og 1 þbst í fyrstu fl í byrjun umf).
UMFERÐ 2: Heklið 2 st + 2 ll + 2 st um hvern ll-boga umf hringinn = 45-54-54 st-hópar.
UMFERÐ 3: Heklið 2 tbst + 2 ll + 2 tbst um hvern ll-boga mitt í st-hópinn og 1 ll á milli hverra tbst-hópa umf hringinn = 45-54-54 tbst-hópur með 1 ll á milli hverra.
Endurtakið 1. – 3. umf 3-3-4 sinnum til viðbótar, JAFNFRAMT er aukið út um 9 ll-boga í hvert skipti sem 1. umf er hekluð = 72-81-90 tbst-hópar.

Til að peysan fái sporöskulaga form er nú heklað fram og til baka einungis yfir neðstu 47-54-61 tbst-hópana, ekki er heklað yfir miðju 25-27-29 tbst-hópa efst í hnakka.

Byrjið frá réttu og endurtakið 1.-3. umf í A.3 eins og áður alls 2 sinnum (þ.e.a.s. bakstykki fær 6 umf fleiri á hæðina), til að fá fallega skiptingu í hvert skipti sem snúið er við er heklað eins og útskýrt er í A.4 og A.5, JAFNFRAMT er aukið út um 7 ll-boga í hvert skipti sem 1. umf er hekluð (= alls 86-95-104 tbst- hópar í umf meðtaldir tbst-hópar í hnakka).
Að lokum er hekluð 1 umf með ll-bogum í kringum alla peysuna (frá réttu) þannig: * 4 ll, 1 fl um ll-boga mitt í einn tbst-hóp, 4 ll, 1 fl á undan næsta tbst-hóp *, endurtakið frá *-* umf hringinn, klippið frá og festið enda.

ERMI:
Heklið upp 60-66-72 st í kringum handveginn (ca 5 st í hvern tbst-hóp og ca 30-33-36 st um ll-boga – byrjið mitt undir ermi).

Næsta umf er hekluð þannig:
* 1 st í fyrsta/næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30-33-36 st + 30-33-36 ll.
Heklið síðan þannig:
UMFERÐ 1: * 6 ll, hoppið yfir 5 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 10-11-12 ll-bogar.
UMFERÐ 2: Heklið 2 st + 2 ll + 2 st um hvern ll-boga umf hringinn = 10-11-12 st-hópar.
UMFEÐR 3: Heklið 2 tbst + 2 ll + 2 tbst um hvern ll-boga mitt í st-hópinn og 1 ll á milli hverra tbst-hópa umf hringinn = 10-11-12 tbst-hópar með 1 ll á milli hverra.
UMFERÐ 4: * 12 ll, 1 fl um ll-boga mitt í tbst-hópinn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 10-11-12 ll-bogar, en fækkið jafnframt um 1 ll-boga í umf mitt undir ermi þannig: 1 fl um ll-boga mitt í næst síðasta tbst-hóp í umf, 6 ll, 1 st um ll-boga mitt í tbst-hópinn sem hoppa á yfir, 6 ll, 1 fl um ll-boga mitt í næsta tbst-hóp). Í næstu umf er heklaður st-hópur mitt undir ermi í st á milli 2 ll-boga með 6 ll = 9-10-11 st-hópar.
Endurtakið umf 2-4 og fækkið jafnframt um 1 ll-boga í 3. hverri umf þannig að í hverri mynstureiningu á hæðina verður 1 tbst-hópur/ll-bogi færri í umf. Þegar það eru 5-6-7 tbst-hópar/ll-bogar í umf er síðan heklað án úrtöku þar til ermin mælist 54-54-56 cm, eða að óskuðu máli, mátið e.t.v. peysuna á meðan hún er í vinnslu. Klippið frá, festið enda og endurtakið á sama hátt á hinni erminni.

Mynstur

symbols = 4 ll (loftlykkjur) l kl (keðjulykkja) í fyrstu ll (sjá punkt í hring) umferðin byrjar og endar hér
symbols = 1 ll (loftlykkja)
symbols = 1 kl (keðjulykkja)
symbols = heklið 1 kl (keðjulykkju) um byrjun á fyrsta ll-boga (loftlykkjuboga), 1 ll (loftlykkja)
symbols = 1 fl um ll-boga (fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga)
symbols = 1 st um ll-boga (stuðull um loftlykkjuhring/loftlykkjuboga)
symbols = 1 st í l (stuðull í lykkju)
symbols = 1 tbst í l (tvíbrugðinn stuðull í lykkju)
symbols = 1 þbst í l (þríbrugðinn stuðull í lykkju)
symbols = 6 ll (loftlykkjur)
symbols = 12 ll (loftlykkjur
symbols = 9 ll (loftlykkjur)
symbols = 2 tbst + 2 ll + 2 tbst um ll-boga í st-hóp (2 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 tvíbrugðnir stuðlar um loftlykkjuboga í stuðlahóp)
symbols = 4 ll, 1 tbst + 2 ll + 2 tbst um ll-boga í st-hóp (4 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull + 2 loftlykkjur + 2 tvíbrugðnir stuðlar um loftlykkjuboga í stuðlahóp)
symbols = þessi umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig næsta umferð er hekluð í lykkjurnar
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Fall Festival

Silvia Fernández-Longo, Spain

171-21 Fall Festival

Roser, Spain

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (292)

country flag Ingrid De Heij wrote:

Hallo, ik ben met de mouw bezig. Bij toer 4 moet ik 12 lossen haken en 1 v om l- lus in midden van dtst-groep.Moet ik die v bij de allereerste dstk groep haken? Die 11 dstk groep heb ik met hv afgesloten en dan die 12 lossen gehaakt. Ik kom er niet uit, Ik zou 11 lossenlussen moeten hebben volgens beschrijving en tegelijkertijd 1 lus minderen. Al 3 keer uitgehaald en nog steeds niet gelukt.

16.04.2024 - 16:48

DROPS Design answered:

Dag Ingrid,

Ja, die vaste haak je gelijk met de eerste dubbele stokjes groep. Dus na het afsluiten van de vorige toer, haak je 12 lossen, 1 vaste tussen de dubbele stokjes groep, 12 lossen, 1 vaste... enz.

24.04.2024 - 12:55

country flag Ingrid De Heij wrote:

De mouwen: Haak 60-66-72 stk rondom een armsgat (ongeveer 5 stk in elke dstk-groep en ongeveer 30-33-36 stk om de l-lus – begin midden onder de mouw). Mijn vraag is waar ik de 33 stk om de l-lus moet haken, want die kant van het armsgat heeft de onderkant van de stokjes op de grote lossenlus van het armsgat.

15.04.2024 - 23:38

country flag Ingrid De Heij wrote:

Herhaal 1e-3e toer nog 3-3-4 keer en meerder TEGELIJKERTIJD 9 l-lussen elke keer dat de 1e toer wordt gehaakt = 72-81-90 dstk-groepen. Moet toer 2 niet gehaakt worden?

11.04.2024 - 17:04

DROPS Design answered:

Dag Ingrid,

Ja, toer 2 moet ook gehaakt worden, maar elke keer als toer 1 wordt gehaakt meerder je steken.

11.04.2024 - 20:44

country flag Ingrid De Heij wrote:

Waar moet ik de 9 groepjes extra meerderen. In de mouwlossen of over de gehele toer? Er staat dat je 7 stokjesgroepen bij de mouwlossen moet haken.

05.04.2024 - 20:56

DROPS Design answered:

Dag Ingrid,

Je meerdert gelijkmatig over de hele toer, dus niet alleen over het armsgat, maar over de hele toer.

07.04.2024 - 18:18

country flag Cindy wrote:

171-21 Swing jacket. Please explain how the long (30) chains act as the armhole. If you continue working the rounds after the chains it erases the underarm part of the armhole. It seems the underarm trbls should be skipped to maintain the hole if your supposed to put you arm from wrong side thru armhole to the front side. The chains look like they form the top of the shoulder of the sleeve. Thnx

23.02.2024 - 01:44

DROPS Design answered:

Dear Cindy, to make armholes, you will crochet chain stitches and skip stitches from previous round to create a "hole" where you will crochet the sleeves from afterwards; in this video we show how to make such a armhole, You will work here another pattern but the way to make armhole will be the same: crochet chain stitches and skip stitches from previous round. Happy crocheting!

23.02.2024 - 08:26

country flag Vogel wrote:

Bonjour, pourriez-vous me dire combien de pelotes je dois acheter merci.

01.08.2023 - 17:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vogel, la quantité se trouve dans l'en-tête après les tailles et avant le crochet et l'échantillon, il faut par ex. 500 g DROPS Big Delight en taille S/M, toutefois, cette laine a été arrêtée, utilisez notre convertisseur pour voir les alternatives proposées et les quantités correspondantes. Bon crochet!

01.08.2023 - 17:56

country flag Karin Weyh wrote:

Hallo, Da ich ein dünneren Garn verwende komme ich mit den angegebenen Maschen nicht hin und muss variieren. Könnt ihr mir sagen bei welchem Durchmesser ich mit den Armlöchern beginnen muss? Danke für Eure Info. Viele Grüße Karin

15.02.2023 - 18:28

DROPS Design answered:

Liebe Frau Weih, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage bzw jeder Maschenprobe anpassen -mit Ihrer eigenen Maschenprobe und die Anleitung können Sie dann das Modell anpassen - gerne kann Ihnen Ihr Wollladen (auch per Telefon oder per Mail) weiterhelfen. Danke im voraus für Ihr verständnis. Viel Spaß beim häkeln!

16.02.2023 - 11:47

country flag Sharon Ray wrote:

Do you ever allow crocheters to create YouTube videos of how to make your patterns? If so, and the yarn for the pattern is discontinued, do you require that a specific yarn be used in the video? I love this Fall Festival pattern and would love to make a video that I can just go back and watch when I want to make a new one. I just didn't know whether I could do so and keep it private or if you allow it to be shared to help others. Thanks for all the wonderful patterns.

31.01.2023 - 15:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ray, please send your request to media(at)garnstudio.com - thanks for your comprehension. Happy crocheting!

31.01.2023 - 16:59

country flag Aina wrote:

Omöjligt att välja storlek utifrån måttskissen. Vad är bystmåttet i de olika storlekarna?

19.10.2022 - 19:42

DROPS Design answered:

Hej Aina, det findes ikke et brystmål til en cirkel-model. Men du ser at den mindste er 100 cm i bredden/omkredsen på det bredeste. Vælg den størrelse du normalt bruger :)

25.10.2022 - 11:33

country flag Debbie Little wrote:

How do i crochet A.2 vertically? I'm new at this

14.07.2022 - 04:59

DROPS Design answered:

Hi Debbie, You work from the middle ring outwards, so first a round of treble crochets around the chain-stitch ring, then a round with 1 treble crochet in each treble crochet, etc.. The diagram explanations tell you what each symbol means on each round. Happy crocheting!

14.07.2022 - 06:52