Bettina skrifaði:
J'aime sa couleurs ainsi que les points fantaisie un joli pull pour l'automne.
10.07.2019 - 21:38
Bertha skrifaði:
Sehr schöner Pullover! Wann oder wo gibt's die Anleitung?
26.06.2019 - 13:14
Johanna skrifaði:
Love the colour, love the yarn and especially love to crochet !!
15.06.2019 - 23:04
Sunny Trails#sunnytrailssweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með laskalínu úr DROPS Lima. Stykkið er heklað ofan frá og niður með stuðlum og röndum í áferð með fimmföldum stuðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-28 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkjunni með 1 loftlykkju, þ.e.a.s. í byrjun á að hoppa yfir 1. lykkjuna frá fyrri umferð. Umferð endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með hálfum stuðlum, skiptið út fyrsta hálfa stuðulinn með 2 loftlykkjum, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 7. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju í 7. hverja lykkju. Ef fækka á lykkjum, heklið þá 6. og 7. hverja lykkju saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. A.1 og A.3 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. Sjá LEIÐBEININGAR. HEKLLEIÐBEININGAR: Ef A.2a mælist meira en 4½ cm á hæðina, skiptið út fimmföldu stuðlunum fyrir fjörfalda stuðla, þ.e.a.s. bregðið þræðinum 1 sinni færra um heklunálina. Byrjið umferð með 6 loftlykkjum í stað 7 loftlykkja. Ef A.2a mælist minna en 4½ cm á hæðina, skiptið út fimmföldu stuðlunum fyrir sexfalda stuðla, þ.e.a.s. bregðið þræðinum 1 sinni oftar um heklunálina. Byrjið umferð með 8 loftlykkjum í stað 7 loftlykkja. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Aukið út um 16 lykkjur þannig: Á eftir prjónamerki: Heklið 1 lykkju í fyrstu lykkju á eftir prjónamerki, heklið næst 2 lykkjur í hverja af næstu 2 lykkjum (= 2 lykkjur fleiri). Á undan prjónamerki: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, heklið 2 lykkjur í hverja af fyrstu 2 lykkjum, heklið 1 lykkju í lykkju á undan prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri). Aukið út um 8 lykkjur þannig: Á eftir prjónamerki: Heklið 1 lykkju í fyrstu lykkju á eftir prjónamerki, heklið næst 2 lykkjur í næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri). Á undan prjónamerki: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, heklið 2 lykkjur í fyrstu lykkju, heklið 1 lykkju í lykkju á undan prjónamerki (= 1 lykkja fleiri). ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 STUÐLA SAMAN – sjá útskýringu að neðan, heklið 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), heklið 2 stuðla saman. HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar alveg eins. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er heklað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað í hring, ofan frá og niður. Ermar í hring, ofan frá og niður KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 70-74-76-84-86-90 loftlykkjur – sjá LOFLYKKJA, með heklunál 4,5 með Lima og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 70-74-76-84-86-90 fastalykkjur. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í aftari lykkjubogann í hverja fastalykkju. Heklið síðan 1 umferð með 1 fastalykkju í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli jafnframt því sem aukið er út um 10-6-12-4-6-10 fastalykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 80-80-88-88-92-100 fastalykkjur. Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í aftari lykkjubogann í hverja fastalykkju = 80-80-88-88-92-100 fastalykkjur – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Setjið 4 prjónamerki (þetta er gert án þess að hekla) þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, setjið annað prjónamerki eftir næstu 28-28-32-32-34-38 lykkjur (= bakstykki), setjið þriðja prjónamerki eftir næstu 12 lykkjur (= ermi), setjið fjórða prjónamerki eftir næstu 28-28-32-32-34-38 lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 12 lykkjur fram að fyrsta prjónamerki (= ermi). BERUSTYKKI: Heklið síðan í hring eftir mynsturteikningu – sjá MYNSTUR þannig: Heklið A.1a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), endurtakið A.2a umferðina hringinn – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Aukið út í hverri umferð þannig: Aukið út um 16 lykkjur alls 6-7-7-6-7-7 sinnum, síðan er aukið út um 8 lykkjur alls 6-7-8-13-13-15 sinnum. Þegar A.1a/A.2a hefur verið heklað alls 3 sinnum á hæðina, heklið A.1b/A.2b, síðan er heklað áfram með 1 stuðul í hverja lykkju (í gegnum báða lykkjubogana). Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 224-248-264-288-308-332 stuðlar í umferð og stykkið mælist ca 18-20-22-25-27-28 cm frá kanti í hálsi. Heklið áfram þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá kanti í hálsi. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 67-73-78-85-92-101 stuðla (= bakstykki), heklið 6-6-8-8-10-10 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir 42-48-52-56-58-60 stuðla (= ermi), heklið 70-76-80-88-96-106 stuðla (= framstykki), heklið 6-6-8-8-10-10 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir 42-48-52-56-58-60 stuðla (= ermi), heklið þá 3-3-2-3-4-5 stuðla sem eftir eru (= bakstykki). Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. Klippið frá. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið á að hekla í 4.-4.-5.-5.-6.-6. loftlykkju af 6-6-8-8-10-10 loftlykkjum sem heklaðar voru í handvegi á fram- og bakstykki þannig: Heklið 1 keðjulykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðul í hverja og eina af næstu 2-2-3-3-4-4 loftlykkjum, 1 stuðul í hvern stuðul, 1 stuðul í hvern stuðul, 1 stuðul í hverja og eina af 6-6-8-8-10-10 loftlykkjum undir ermi, heklið 1 stuðul í hvern stuðul og endið með 1 stuðul í hverja og eina af síðustu 3-3-4-4-5-5 loftlykkjum undir ermi = 152-164-176-192-212-232 stuðlar. Haldið áfram hringinn með stuðlum þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Byrjið á að hekla í 4.-4.-5.-5.-6.-6. loftlykkju af 6-6-8-8-10-10 loftlykkjum sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki þannig: Heklið 1 keðjulykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðul í hverja af 2-2-3-3-4-4 næstu loftlykkjum, 1 stuðul í hvern stuðul og endið með 1 stuðul í hverja af síðustu 3-3-4-4-5-5 loftlykkjum undir ermi = 48-54-60-64-68-70 stuðlar. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Haldið áfram hringinn með stuðlum. Þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir frá skiptingu, fækkið um 2 stuðla mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í 3. hverri – annarri hverri- hverri-hverri-hverri-hverri umferð alls 4-6-8-10-11-11 sinnum = 40-42-44-44-46-48 stuðlar. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 41-39-38-36-34-33 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Heklið 1 umferð þar sem fækkað er um 12-14-12-12-12-12 stuðla jafnt yfir (fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman) = 28-28-32-32-34-36 stuðlar. Heklið nú í hring eftir mynsturteikningu þannig: Heklið A.3 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), endurtakið A.4 umferðina hringinn. Haldið áfram þar til A.3/A.4 hefur verið heklað til loka, klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við miðju að aftan og festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fastalykkju, heklið 1 loftlykkju (= 1 fastalykkja), heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul umferðina hringinn = 70-74-76-84-86-90 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunnytrailssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.