Valentina skrifaði:
Precioso modelo. Espero que salgan pronto las instrucciones. Gracias.
01.09.2019 - 23:46
Ans skrifaði:
Zeer mooi vest. Wanneer komt het patroon
29.08.2019 - 16:56
Claudotte AUBRY skrifaði:
Je suis impatiente d'avoir les explications de ce modèle. tout à fait ce que je recherchais, je le trouve magnifique !
26.08.2019 - 10:08
Annie Louise Bauwens skrifaði:
J'ai bien envie de me le faire pour cet hiver...
12.08.2019 - 16:33
Annie Bauwens skrifaði:
Très beau modèle. Vivement les explications !
18.07.2019 - 18:33
Ingrid skrifaði:
Very nice
04.07.2019 - 15:09
Johanna skrifaði:
Beautiful pattern, like to knit this !
15.06.2019 - 23:19
Ellis skrifaði:
Wonder how many threats helt together , alpaca is mm3 , this looks bigger
09.06.2019 - 21:10
Katherine skrifaði:
I would like this for any occasion except for maybe working in the garden. It would look just as beautiful with a dress to go out nights as it does in your picture with jeans. Another Pretty Pretty!
08.06.2019 - 07:23
Bat skrifaði:
Encolures trop larges
05.06.2019 - 17:55
Story of Snow Jacket#storyofsnowjacket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S -XXXL.
DROPS 207-23 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 252 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 242 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 24,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 24. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 23. og 24. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónameri, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju lykkjurnar í sléttprjóni. ÚRTAKA-2 (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 7-7-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7-7-7-8-8-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist síðan fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 87-94-101-108-115-122 lykkjur á hringprjón 5,5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 11-12-13-14-15-16 mynstureiningar með 7 lykkjum) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 252-274-296-318-340-362 lykkjur í umferð. Prjónið næstu umferð slétt frá réttu, JAFNFRAMT er fækkað um 10-4-2-0-6-4 lykkjur jafnt yfir = 242-270-294-318-334-358 lykkjur – SJÁ ÚRTAKA. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: Prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 35-39-42-46-50-54 lykkjur brugðið (= framstykki), setjið næstu 46-52-58-62-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 70-78-84-92-100-108 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 46-52-58-62-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 35-39-42-46-50-54 lykkjur brugðið og endið með 5 lykkjum slétt (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-178-190-206-226-242 lykkjur. Prjónið þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, A.2 þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 lykkjur garðaprjón. Í síðustu umferð í A.2 er lykkjufjöldinn jafnaður út til 161-171-191-201-231-241 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón eins og áður, A.3A (= 3 lykkjur), prjónið A.3B yfir næstu 140-150-170-180-210-220 lykkjur (= 14-15-17-18-21-22 mynstureiningar), A.3C (= 8 lykkjur), endið með 5 lykkjum garðaprjón eins og áður. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað frá réttu – þannig: 5 lykkjur garðaprjón, A.4 yfir allar lykkjur, 5 lykkjur garðaprjón. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 43-45-50-53-60-63 lykkjur inn frá hvorri hlið, bakstykki = 75-81-91-95-111-115 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 20 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) – SJÁ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 5 sinnum = 181-191-211-221-251-261 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 39-41-43-40-42-44 cm. Prjónið þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, A.4 þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið A.4 1 sinni á hæðina, prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið síðan af. Stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl. ERMI: Setjið 46-52-58-62-62-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-58-64-68-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-6-8-8 lykkjurnar. Prjónamerkið merkir mitt undir ermi og umferðin byrjar við prjónamerki. Prjónið A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm, byrjar úrtaka mitt undir ermi – SJÁ ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 44-50-56-60-62-66 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 16 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð brugðið, 2 umferðir slétt, 1 umferð brugðið og 2 umferðir slétt. Prjónið síðan A.2 yfir allar lykkjur. Haldið áfram með A.2 þar til ermin mælist 37-38-38-34-34-35 cm frá skiptingu (styttri ermi í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 2 umferðir garðaprjón, síðan er fellt af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #storyofsnowjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.