Crisp Air Sweater#crispairsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-14 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 14-15-16-16-17-18 lykkjur slétt framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-30-32-32-34-36 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-45-48-48-51-54 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 56-60-64-64-68-72 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 31 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 31) = 3,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekk i myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-104-108-112-116-124 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum sægrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 3 cm. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki prjóna upphækkunina, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur A.1, JAFNFRAMT í hverri umferð með stjörnu er aukið út þannig: STJARNA-1: Aukið út 26-28-30-32-34-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 126-132-138-144-150-162 lykkjur (nú er pláss fyrir 21-22-23-24-25-27 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! STJARNA-2: Aukið út 42-42-48-48-48-48 lykkjur jafnt yfir = 168-174-186-192-198-210 lykkjur (nú er pláss fyrir 28-29-31-32-33-35 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). STJARNA-3: Aukið út 48-54-54-60-60-60 lykkjur jafnt yfir = 216-228-240-252-258-270 lykkjur (nú er pláss fyrir 36-38-40-42-43-45 mynstureiningar með 6 lykkjum). STJARNA-4: Aukið út 29-42-45-48-52-60 lykkjur jafnt yfir = 245-270-285-300-310-330 lykkjur (nú er pláss fyrir 49-54-57-60-62-66 mynstureiningar A.1 með 5 lykkjum). STJARNA-5: Aukið út 27-34-43-44-50-54 lykkjur jafnt yfir = 272-304-328-344-360-384 lykkjur (nú er pláss fyrir 34-38-41-43-45-48 mynstureiningar A.1 með 8 lykkjum). Þegar 1 umferð er eftir í mynsturteikningu, mælist stykkið ca 22 cm frá prjónamerki. Nú er prjónað áfram mismunandi eftir stærðum þannig: Í stærð S er hoppað yfir næsta kafla og prjónað er áfram frá kafla með Allar stærðir – sjá útskýringu að neðan. Stærð M, L, XL, XXL og XXXL: Prjónið nú áfram með mynstur A.2. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, mælist stykkið ca 24 cm frá prjónamerki. Stærð M er nú lokið (ef stykkið er styttra en 24 cm, prjónið áfram með litnum sægrænn og sléttprjóni að réttu máli). Í stærð L, XL, XXL og XXXL prjónið hringinn með litnum sægrænn og sléttprjóni þar til stykkið mælist 26-28-30-32 cm frá prjónamerki, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-27-29-31 cm (frá prjónamerki).Aukið út 0-12-20-28 lykkjur jafnt yfir = 328-356-380-412 lykkjur. Allar stærðir: Síðasta umferð á berustykki er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 40-44-47-52-57-63 lykkjurnar (= hálft bakstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 80-88-94-104-114-126 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 40-44-47-52-57-63 lykkjur sem eftir eru á prjóni (= hálft bakstykki). Prjónið síðan ermar og fram- og bakstykki hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 176-192-208-228-252-276 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Í stærð S er prjónað áfram eins og útskýrt er að neðan og í stærð M, L, XL, XXL og XXXL er hoppað yfir næsta kafla og prjónað er áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan. Stærð S: Nú eru 176 lykkjur í umferð. Prjónið nú mynstur A.2 hringinn í umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram eins og útskýrt er að neðan. Allar stærðir: Haldið áfram hringinn með litnum sægrænn og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 7 cm millibili alls 4 sinnum = 192-208-224-244-268-292 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29 cm aukið út 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 228-248-268-292-320-348 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið yfir á 1 númeri grófari prjóna ef affellingarkanturinn verður stífur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 56-64-70-74-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 nýja lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-72-80-84-88-92 lykkjur. Í stærð S er mynstrið prjónað eins og útskýrt er að neðan, í hinum stærðunum er prjónað áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan. Stærð S: Byrjið umferð á undan 8 nýjum lykkjum undir ermi og prjónið A.2 yfir hverja einingu A.1 (frá berustykki). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan. Allar stærðir: Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum sægrænn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-3-3-3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 11-14-17-18-19-20 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar ermin mælist 37-36-34-33-31-29 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Aukið út 6-8-10-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið yfir á 1 númeri grófari prjóna ef affellingarkanturinn verður stífur. Ermin mælist ca 41-40-38-37-35-33 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crispairsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.