DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Crisp Air Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-13
DROPS Design: Mynstur u-892
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-550-600 g litur 50, sægrænn
100-100-100-100-100-150 g litur 69, ljós grágrænn
100-100-100-100-150-150 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 54, beige

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni/norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 14-15-16-16-17-18 lykkjur slétt framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-30-32-32-34-36 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-45-48-48-51-54 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 56-60-64-64-68-72 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt út umferðina (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni), snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferðina (kantar að framan eru prjónaðari í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Fyrstu og síðustu 5 lykkjurnar í umferð eru prjónaðar í garðaprjóni og þegar prjónað er mynstur A.2/A.3 eru kantar að framan prjónaðir í mynstri A.1. Þegar prjónað er mynstur A.5/A.6 eru kantar að framan prjónaðir í mynstri A.4.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) mínus kanta að framan (= 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 29) = 3,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8-8½-9 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 108-112-116-120-124-132 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum sægrænn. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. Prjónið stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 3 cm. Setjið prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki prjóna upphækkunina, farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur fram og til baka þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – sjá KANTUR AÐ FRAMAN, A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, A.3 yfir næstu lykkju, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, JAFNFRAMT í hverri umferð með stjörnu er aukið út þannig:
STJARNA-1: Aukið út 29-31-33-35-37-41 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 137-143-149-155-161-173 lykkjur (nú er pláss fyrir 21-22-23-24-25-27 mynstureiningar A.2 með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
STJARNA-2: Aukið út 42-42-48-48-48-48 lykkjur jafnt yfir = 179-185-197-203-209-221 lykkjur (nú er pláss fyrir 28-29-31-32-33-35 mynstureiningar A.2 með 6 lykkjum).
STJARNA-3: Aukið út 48-54-54-60-60-60 lykkjur jafnt yfir = 227-239-251-263-269-281 lykkjur (nú er pláss fyrir 36-38-40-42-43-45 mynstureiningar með 6 lykkjum).
STJARNA-4: Aukið út 29-42-45-48-52-60 lykkjur jafnt yfir = 256-281-296-311-321-341 lykkjur (nú er pláss fyrir 49-54-57-60-62-66 mynstureiningar A.2 með 5 lykkjum).
STJARNA-5: Aukið út 27-34-43-44-50-54 lykkjur jafnt yfir = 283-315-339-355-371-395 lykkjur (nú er pláss fyrir 34-38-41-43-45-48 mynstureiningar A.2 með 8 lykkjum).
Þegar 1 umferð er eftir í mynsturteikningu, mælist stykkið ca 22 cm frá prjónamerki. Nú er prjónað áfram mismunandi eftir stærðum þannig:
Í stærð S er hoppað yfir næsta kafla og prjónað er áfram frá kafla með Allar stærðir – sjá útskýringu að neðan.

Stærð M, L, XL, XXL og XXXL:
Prjónið nú áfram með mynstur A.5 yfir A.2, A.6 yfir A.3 og kanta að framan í garðaprjóni með þeim lit sem sýndur er í A.4. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, mælist stykkið ca 24 cm frá prjónamerki og niður. Stærð M er nú lokið (ef stykkið er styttra en 24 cm, prjónið áfram með litnum sægrænn að réttu máli). Í stærð L, XL, XXL og XXXL prjónið fram og til baka með sægrænn, sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 27-28-29-30 cm frá prjónamerki, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 27-28-29-30 cm (frá prjónamerki).Aukið út 0-11-19-27 lykkjur jafnt yfir = 339-366-390-422 lykkjur.

Allar stærðir:
Síðasta umferð á berustykki er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 45-49-52-57-62-68 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 81-89-95-104-114-126 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 45-49-52-57-62-68 lykkjur sem eftir eru á prjóni (= vinstra framstykki). Prjónið síðan ermar og fram- og bakstykki hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 187-203-219-238-262-286 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Í stærð S er prjónað áfram eins og útskýrt er að neðan og í stærð M, L, XL, XXL og XXXL er hoppað yfir næsta kafla og prjónað er áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan.

Stærð S:
Nú eru 187 lykkjur í umferð. Prjónið nú mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og mynstur A.4 yfir lykkjur í kanti að framan, prjónið A.5 yfir hverja einingu A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, A.6 yfir næstu lykkju og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og mynstur A.4 yfir lykkjur í kanti að framan. Haldið svona áfram fram og til baka þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina. Haldið áfram eins og útskýrt er að neðan.

Allar stærðir:
Haldið áfram fram og til baka með litnum sægrænn, sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 7 cm millibili alls 4 sinnum = 203-219-235-254-278-302 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29 cm aukið út 37-41-45-50-54-58 lykkjur jafnt yfir = 240-260-280-304-332-360 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni ( 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið yfir á 1 númeri grófari prjóna ef affellingarkanturinn verður stífur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 56-64-70-74-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 nýja lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-72-80-84-88-92 lykkjur.
Í stærð S er mynstrið prjónað eins og útskýrt er að neðan, í hinum stærðunum er prjónað áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan.

Stærð S:
Byrjið umferð á undan 8 nýjum lykkjum undir ermi og prjónið A.2 yfir hverja einingu A.1 (frá berustykki). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan.

Allar stærðir:
Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum sægrænn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-3-3-3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 11-14-17-18-19-20 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar ermin mælist 37-36-34-33-31-29 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Aukið út 6-8-10-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið yfir á 1 númeri grófari prjóna ef affellingarkanturinn verður stífur. Ermin mælist ca 41-40-38-37-35-33 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = sægrænn
symbols = ljós grágrænn
symbols = natur
symbols = beige
symbols = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Crisp Air

Antje, Germany

207-13 Crisp Air Jacket

AntjeRi, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Vladi Angeliki wrote:

Je vous remercie de votre réponse rapide. Je me demandais s'il fallait faire une taille au dessus mais un deuxième échantillon m'a rassurée. Je continue mon ouvrage qui est de plus en plus joli.

23.06.2020 - 18:59

country flag Vladi Zelina wrote:

Bonjour! Je suis embrouillée avec les mesures du gilet. Si 20 mailles donnent 10 cm, les 304 mailles devraient donner 150 cm au lieu de 122 cm indiqué pour la taille XL.

23.06.2020 - 13:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Zelina, les 304 mailles se tricotent en côtes avec les petites aiguilles = il faut plus de mailles qu'en jersey avec les grandes aiguilles - en XL vous terminez par 254 mailles soit 127 cm / 2 - les bordures des devants = env. 61 cm. Bon tricot!

23.06.2020 - 16:21

country flag Inkeri K-L wrote:

When will this jacket be published? It’s my favourite, the yarns are waiting😘😙

20.08.2019 - 19:17

country flag Johanna H wrote:

Lovely colours. I really want to make this!!!

07.07.2019 - 18:28

country flag Bullermor wrote:

Flot, skønne farver også.

19.06.2019 - 23:44

country flag Doris wrote:

1A, gefällt mir beides, Jacke und Pulli :-)

17.06.2019 - 10:28

country flag Ellis wrote:

My vote, elegant, colourband can be repeated on hips

09.06.2019 - 21:20

country flag Gabriele wrote:

Da stimmt Alles!Wird auf alle Fälle gestrickt!

06.06.2019 - 09:19

country flag Ángela wrote:

Favorece ese canesú

05.06.2019 - 20:21