Edith Gravel skrifaði:
Bonjour. Ce modèle est très joli. je voudrais vérifier avec vous que c’est bel et bien le diagramme A2 que l’on doit tricoter pour la moufle. Dans le texte sous moufle droite , deuxième paragraphe, on dit de tricoter A1 ... mais plus haut à l’item diagramme, c’est A2.....selon l’image, on voit que c’est le diagramme A2 qui est tricoté...merci de corriger s’il y a lieu...
19.12.2019 - 22:51
Marianne Bruus skrifaði:
Vanter: I opskriften står, at man skal strikke A.1, men på foto ser det ud til at være A.2
04.11.2019 - 14:56
Hilde Nielsen skrifaði:
Det er ikke diagram til oppskriften??...
04.09.2019 - 13:36DROPS Design svaraði:
Hei Hilde, Du finner diagrammene nederst på sida. God fornøyelse!
05.09.2019 - 09:30
Winter Fjords Set#winterfjordsset |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð húfa og vettlingar úr DROPS Air með norrænu mynstri.
DROPS 204-51 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1. Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.2. Allar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 21. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 20. og 21. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman. Endurtakið við hvert og eitt af prjónamerkjum sem eftir eru (= 8 lykkjur færri í umferð). ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 84 lykkjur á hringprjón 4 með litnum svartur. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) = 80 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur A.1 (= 8 lykkjur) alls 10 sinnum hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað áfram með litnum brúnn til loka. Þegar stykkið mælist 17 cm eru sett 8 prjónamerki í stykkið með 10 lykkja millibili. Nú byrjar úrtaka – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8 sinnum = 16 lykkjur eftir. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman = 8 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 25 cm. DÚSKUR: Gerið einn stóran lausan dúsk ca 8 cm með 1 þræði af hvorri tegund. Klippið til þannig að dúskurinn verði fallegur og jafn og festið á toppinn á húfunni. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með litnum svartur og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið síðan sléttprjón til loka. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur (= 5 mynstureiningar í umferð). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með litnum sægrænn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð fyrir þumal – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð alls 5 sinnum = 50 lykkjur. Setjið nú 11 þumallykkjur á þráð. Prjónið 1 umferð og fitjið upp 1 nýja lykkju aftan við þumal = 40 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 20 lykkjur á milli prjónamerkja). Haldið áfram hringinn með litnum sægrænn þar til stykkið mælist ca 22 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca 4½ cm að loka máli). Í næstu umferð er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð 2 sinnum til viðbótar, síðan í hverri umferð 5 sinnum = 8 lykkjur. Í næstu umferð eru prjónaðar 2 og 2 lykkjur slétt saman. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALL: Setjið til baka 11 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna 4 og takið að auki upp 4 lykkjur í kanti á bakhlið á þumallykkjum með litnum sægrænn = 15 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca ½ cm að loka máli). Prjónið 2 umferðir slétt JAFNFRAMT eru allar lykkjur prjónaðar 2 og 2 slétt saman í báðum umferðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, nema spegilmynd, þ.e.a.s. aukið út fyrir þumal hvoru megin við síðustu lykkju í umferð (í stað hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð). |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterfjordsset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-51
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.